Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 14. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Kristín Pálsdóttir – 14. maí 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Kristín Halldóra Pálsdóttir. Kristín er fædd 14. maí 1945 og á því 70 ára stórafmæli í dag. Kristín er í Golfklúbbnum Keili (GK) í Hafnarfirði. Hún starfaði lengi sem hjúkrunarforstjóri við Heilsugæslu Hafnarfjarðar, Sólvangi. Golf 1 óskar Kristínu innilega til hamingju með merkisafmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Gallerý Ársól, 14. maí 1951 (64 ára); Snaedis Gunnlaugsdottir, 14. maí 1952 (63 ára); Hafsteinn Baldursson, 14. maí 1952 (63 árs); Frank Ivan Joseph Nobilo, 14. maí 1960 (55 ára); Þjóðhildur Þórðardóttir 14. maí 1969 (46 ára); Zuzana Kamasová, 14. maí 1978 (37 ára); Blair O´Neal, 14. maí 1981 (34 ára); Shaun Norris (suður-afrískur) 14. maí 1982 (33 ára ); Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 14. 2015 | 13:45
Evróputúrinn: Fylgist með Opna spænska hér!

Í dag hófst Opna spænska á El Prat golfvellinum nálægt Barcelona, sem margir Íslendingar hafa spilað á! Mótið er mót vikunnar á Evrópumótaröðinni og hefir verið haldið allar götur síðan 1912 þegar Arnaud Massy sigraði. Margir kunnir kylfingar hafa síðan þá staðið uppi sem sigurvegarar í mótinu; kylfingar á borð við Peter Thomson, Roberto DeVicenzo og Seve Ballesteros. Margir kunnir kylfingar taka þátt í ár menn á borð við Miguel Ángel Jiménez, Sergio Garcia og Thorbjörn Olesen. Leikur á 1. hring stendur nú yfir og sem stendur er Trevor Fisher Jnr. frá Suður-Afríku efstur; hefir leikið El Prat á 7 undir pari, 65 höggum. Margir eiga þó eftir að ljúka leik. Fylgjast má Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 14. 2015 | 13:10
GH: Snjór yfir Katlavelli 13. maí

Það er enn víða snjór fyrir norðan þannig að ekkert hefir verið hægt að spila golf. Í gær var t.a.m. sums staðar 80 cm snjór á Katlavelli á Húsavík. Hér má sjá mynd þar sem horft er tilbaka eftir 9. braut á Katlavelli: Og svo er enn ein mynd af æfingasvæðinu við Katlavöll, með hin gullfallegu Kinnarfjöll í baksýn: Þeir sem enn eiga eftir að spila Katlavöll ættu að gera það í sumar þegar snjóa hefir leyst , en Katlavöllur er líklega einn mest krefjandi 9 holu golfvöllur á Íslandi með margar skemmtilegar brautir!
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 14. 2015 | 10:00
Adam Scott hitti Írisi Kötlu

Nr. 11 á heimslistanum Adam Scott hitti Írisi Kötlu Guðmundsdóttur, GR og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri. Myndin náðist á æfingu fyrir Wells Fargo mótið, sem er mót vikunnar á PGA Tour og fer fram í Quail Hollow golfklúbbnum í Charlotte, Norður-Karólínu, en Scott tekur þátt í því. Íris Katla er nýútskrifuð frá Queens háskólanum í Charlotte, þar sem hún lék í 3 ár með golfliði skólans. Íris Katla og fjölskylda hennar, sem kom frá Íslandi til að vera viðstödd voru útskrift hennar, fylgdust með æfingu PGA Tour leikmannanna fyrir Wells Fargo mótið, en þau eru öll miklir kylfingar. Íris Katla sagði eftirfarandi um myndina af henni og Adam Scott: Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 13. 2015 | 21:30
Vonn sást í dag í LA

Rúm vika er síðan að Lindsey Vonn og Tiger tilkynntu að þau lifðu bæði svo stressuðu lífi, við keppnisgreinar sínar með mikilli fjarveru hvort frá öðru, að þau ætluðu að skilja. Mörgum fannst þessi skýring heldur óvenjuleg og svo virðist sem Tiger hafi haldið framhjá Vonn, líkt og hann gerði við Elínu Nordegren. Til Lindsey sást í dag þar sem hún fór út að borða í Los Angeles ásamt vinkonu sinni. Eftir mat gengu þær stöllur um LA. Vonn, 30 ára, neitaði að svara spurningum um samband sitt við hinn 39 ára Tiger og keyrði í burtu á silfurlituðum bíl.
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 13. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Hafsteinn Sigurður Hafsteinsson – 13. maí 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Hafsteinn Sigurður Hafsteinsson. Hafsteinn Sigurður er fæddur 13. maí 1965 og á því 50 ára stórafmæli í dag! Komast má á facebook síðu Hafsteins Sigurðar hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með afmælið Hafsteinn Sigurður Hafsteinsson (50 ára stórafmæli – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jóhannes Ólafsson, 13. maí 1951 (64 ára); Finnur Sturluson, 13. maí 1952 (63 ára); Iain McGregor (kylfusveinn Alastair Forsyth) f. 13. maí 1961 – d. 11. maí 2014; Arnar Loftsson, 13. maí 1967 (48 ára); Patrik Sjöland 13. maí 1971 (44 ára); Nathan Andrew Green, 13. maí 1975 (40 ára stórafmæli); Caroline Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 13. 2015 | 12:00
Hver er kylfingurinn: Rickie Fowler? (2/5)

Nafnið sem er á allra vörum þessa dagana er Rickie Fowler. Hann sannaði það s.l. helgi 9-10. maí 2015 að hann er ekki bara sætur strákur, kynþokkafullur kylfingur, Boys banda meðlimur með bíladellu heldur frábær kylfingur. Félagar hans á PGA Tour voru stuttu fyrir sigur hans á The Players mótinu, sem oft er nefnt 5. risamótið, búnir að velja hann ásamt Ian Poulter „ofmetnustu kylfingana á PGA Tour.“ Fowler er svo sannarlega búinn að þvo þau hallmæli af sér og nú er m.a. talað um hann sem „verðandi golfgoðsögn“! En hver er kylfingurinn Rickie Fowler? Því verður reynt að svara í 5 greinum og birtist 2. greinin nú í dag. Eftir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 13. 2015 | 09:30
Rickie og Alexis nýtt ofurpar golfsins?

Viðbrögð við ástríðufulla kossinum sem Alexis Randock, kærasta Rickie Fowler smellti á hann eftir að hann sigraði á The Players hafa verið gríðarleg; jafnt í fjölmiðlum, meðal meðspilara hans á PGA Tour, sem hins almenna golfáhugamanns. T.a.m. tvítaði Erin Walker eiginkona Jimmy Walker að hún og eiginmaður sinn yrðu að fara að æfa sigurkossinn betur. Twitter sprakk líka næstum því af hamingjuóskum til Rickie Fowler. Einn þeirra fyrstu sem tvítuðu hamingjuóskir til Rickie Fowler var Webb Simpson. Hann sagði í tvíti sínu: „Such a fitting response to that overrated poll by @RickieFowlerPGA. One of the classiest guys on Tour. Actions > words. Huge congrats buddy!“ (Lausleg þýðing: „Þetta eru þvílíkt viðeigandi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 13. 2015 | 08:15
Heimslistinn: Rickie í 9. sæti!

Vegna sigurs síns á The Players Championship á TPC Sawgrass vellinum í Flórída fór Rickie Fowler upp um 4 sæti á heimslistanum þ.e. úr 13. sætinu í 9. sætið á topp-10. Ofmetinn kylfingur? Nei, einn af 9 bestu kylfingum heims! George Coetzee frá Suður-Afríku, sem sigraði á AfrAsia Bank Mauritius Open fer upp um 11 sæti úr 63. sætinu í 52. sætið á heimslistanum. Staða efstu 10 á heimslistanum er þá eftirfarandi: 1. sæti Rory McIlroy 2. sæti Jordan Spieth 3. sæti Henrik Stenson 4. sæti Bubba Watson 5. sæti Jim Furyk 6. sæti Justin Rose 7. sæti Sergio Garcia 8. sæti Jason Day 9. sæti Rickie Fowler 10. sæti Dustin Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 13. 2015 | 08:00
10 bestu björgunarhögg á PGA Tour

Allir kylfingar kannast við að bolti þeirra hafi einhvern tímann á ferlinum verið í svo til vonlausri legu. T.a.m. á erfiðum stað í hárri sandglompu eða ef spilað er erlendis upp í tré eða við kaktus. Það er sérstök kúnst að slá björgunarhögg til þess að koma sér úr vondu stöðunni. Sumir eru betri við það en aðrir, en aðrir eru e.t.v bara heppnir en þessi heppnisbjörgunarhögg eru engu að síður flott. Til þess að sjá myndskeið með 10 bestu björgunarhöggum á PGA Tour SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

