Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2011 | 11:00

Hver er kylfingurinn William McGirt?

Bandaríski kylfingurinn William McGirt er í efsta sæti ásamt Jhonattan Vegas frá Venezuela á Justin Timberlake Shriners Hospital for Children Open, sem fram fer á TPC Sumerlin, í Las Vegas þessa helgina, þ.e. 29. september – 2. október 2011. William McGirt fæddist 21. júní 1979 og er því 32 ára. Hann segir pabba sinn, afa og frænku hafa haft mest áhrif á að hann hóf að spila golf. McGirt spilaði golf með golfliði Wofford College, en gerðist atvinnumaður í golfi 2004. Hann var á Nationwide Tour en komst í gegnum Q-school PGA í fyrra, deildi reyndar 2. sætinu með öðrum þar. McGirt býr í Boiling Springs, í Suður-Karólínu. Hann segir Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2011 | 09:00

Allt í góðu milli DJ og Tiger – Keith Sbarbaro nýr kaddý DJ

Dustin Johnson (DJ) sagðist ekki bera þungar tilfinningar til Tigers eftir að sá síðarnefndi„stal” kaddý hans, Joe LaCava.  Joe LaCava fór frá DJ, sem er nr. 5 á heimslistanum til þess að verða kaddý Tiger Woods, sem er nr. 50 á heimslistanum, sem stendur. „Ég talaði við Tiger um þetta. Það eru engin illindi,” sagði DJ í gær eftir að hafa komið í hús á -1 undir pari, þ.e. 71 höggi á 1. hring Dunhill Links Championship í Skotlandi. „Við áttum gott samtal. Hann bara gerði það sem hann gerði.” Joe LaCava var lengi á pokanum hjá Fred Couples, en fór til DJ í sumar, sem er einn af betri Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2011 | 07:00

PGA: McGirt og Vegas deila 1. sæti eftir 1. dag

Það eru Jhonattan Vegas frá Venezuela og Bandaríkjamaðurinn William McGirt, sem deila 1. sætinu á Justin Timberlake Shriners Hospital for Children Open, sem hófst á TPC Sumerlin í Las Vegas, Nevada. Báðir komu þeir í hús á glæsilegum 63 höggum, þ.e. -8 undir pari vallar. Jhonattan fekk 5 fugla og 1 skolla á fyrri 9 og endurtók leikinn á seinni 9, þ.e. 5 fuglar og 1 skolli litu dagsins ljós. McGirt hins vegar spilaði skollafrítt og var með alls 8 fugla á skorkortinu. Þriðja sætinu deila Charlie Wi frá Suður-Kóreu og Ástralinn Nathan Green, báðir 1 höggi á eftir forystumönnunum. Í 5. sæti 2 höggum á eftir þeim McGirt og Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2011 | 20:30

LET: Cassandra Kirkland í forystu á Lacoste Open eftir 1. dag

Það er franska stúlkan Cassandra Kirkland, 26 ára, frá Saint Nom la Bretèche, sem hefir tekið forystu á Lacoste Ladies Open de France, eftir frábæran hring upp á 64 högg. Fast á hæla hennar kemur hin 32 ára Virginie Lagoutte-Clement, frá Montelimar aðeins 1 höggi á eftir löndu sinn. Virginie deilir hins vegar 2. sætinu með hinni finnsku Kaisu Ruuttila, sem hefir verið að gera góða hluti á Evrópumótaröð kvenna að undanförnu, en ekki enn náð toppsætinu. Í 4. sæti er síðan norska frænka okkar Marianne Skarpenord, sem kom inn á 66 höggum á þessum hlýja eftirmiðdegi á Paris International golfvellinum. Caroline Hedwall, sem stóð sig svo vel á Solheim Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2011 | 20:00

Evróputúrinn: Bello, Brier, Hoey og Oosthuizen, deila efsta sætinu á Alfred Dunhill

Nú er aftur komið að Alfred Dunhill mótinu en það er haldið á 3 völlum í Skotlandi: St. Andrews, Carnoustie og Kingsbarns. Spilað verður dagana 29. september -2. október. Eftir fyrsta daginn eru 4 sem leiða hóp 168 keppenda: Louis Oosthuizen frá Suður-Afríku, Marcus Brier frá Austurríki, Norður-Írinn Michael Hoey og Rafael Cabrera-Bello frá Gran Kanarí (golfklúbbur hans er Maspalomas, sem margir Íslendingar kannast við). Ofangreindir 4 kylfingar luku allir leik á 66 höggum og eru því -6 undir pari. Oosthuizen vann fyrsta risamótstitil sinn 2010 á Opna breska og sagði í tilefni dagsins, eftir að ljóst var að hann væri í forystu á Alfred Dunhill: „Það var gaman að Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2011 | 16:00

Hver er kylfingurinn: Cristie Kerr?

Bandaríski kylfingurinn Cristie Kerr er í uppáhaldi hjá mörgum.  Því fannst mörgum sárt þegar hún var orðin svo þjáð af úlnliðsmeiðslum á Solheim Cup í tvímenningnum s.l sunnudag að hún gaf leik sinn á móti Karen Stupples – Margir Bandaríkjamenn efast ekki um að ef hún hefði verið ómeidd hefði staðan orðið 14:14 en ekki 15:13 og telja þeir lið Evrópu hafa hagnast á meiðslum Kerr.  Rosie Jones, fyrirliði bandaríska liðsins hefir sætt töluverðri gagnrýni fyrir að láta Kerr spila meidda alla dagana. En Rosie sér ekki eftir að hafa látið Cristie spila og segir það hafa verið að ósk og í samvinnu við Cristie allan tímann að láta hana Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2011 | 14:00

Afmæliskylfingur dagsins: Kermit Millard Zarley – 29. september 2011

Afmæliskylfingur dagsins er maður sem ber sama nafn og froskurinn í Prúðuleikurunum – Kermit.  Kermit Millard Zarley Jr. fæddist 29. september 1941 í Seattle, Washington og á því 70 ára stórafmæli í dag.  Á háskólaárum sínum í University of Houston var Kermit í golfliði skólans og meistari í einstaklingskeppni 1962 í NCAA Division I Championships, en leiddi jafnfram lið sitt til sigurs. Kermit gerðist atvinnumaður í golfi 1963. Á ferli sínum vann hann 6 sinnum þar af tvisvar á PGA og 1 sinni á Champions Tour.  Í þrjár tylftir skipta endaði hann meðal 10 efstu á PGA mótum á 18 ára ferli sínum á túrnum (þ.á.m. var hann þrívegis á Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2011 | 12:00

Sólskinstúrinn: Justin Harding og Merrick Bremner efstir eftir 1. dag Platinum Classic

Það er Suður-Afríkubúinn Justin Harding sem er efstur eftir 1. dag á Platinum Classic mótinu sem hófst í dag í MooiNooi Golf Club (North West). Mótið stendur frá 29. september – 1. október. Justin kom í hús á 64 höggum og er því -8 undir pari eftir 1. dag. Sérlega glæsilegt var spil hans á síðustu holum dagsins þeirri 17. og 18. Hann fékk fugl á 18. og á  par-5, 17. brautinni fékk Justin örn. Um örninn sinn sagði Justin: „Ég tók dræver og 7-járn þegar ég sló fyrir erninum og í 3. höggi mínu lenti boltinn 5 metra frá flaggi og rúllaði í holuna.  Þetta var lengsta púttið mitt Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2011 | 09:00

Bélen Mozo kemur nakin fram

Hin spænska Belen Mozo, sem er nýliði á LPGA mun koma nakin fram í nýjasta blaði ESPN „The Magazine´s Body Issue“, skv. blaðamanni USA Today, Michael McCarthy. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem kylfingur hefir látið mynda sig nakinn fyrir Body Issue-hluta blaðsins. Kólombíski kylfingurinn Camilo Villegas var sem kunnugt er myndaður í frægu köngulóar-stellingu sinni, þó sú mynd hafi verið photo-shop-uð að verulegu leyti til þess að hylja viðkvæma líkamsparta. Hins vegar þótti mörgum kvenkylfingnum myndin hreint augnakonfekt! Fyrir tveimur árum voru Christina Kim, Sandra Gal og Anna Grezebien (en tvær síðarnefndu voru þá W-7 módel) myndaðar naktar fyrir blaðið. Staðfest hefir verið að Tiger Woods sé ekki Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2011 | 07:00

PGA: Dave Hill látinn

James David Hill, alltaf kallaður Dave 13-faldur sigurvegari á PGA Tour er látinn, 74 ára að aldri. Hann hafði glímt við lungnaþembu í nokkur ár. Dave fæddist 20. maí 1937 í Jackson, Michigan. Hann byrjaði ferilinn með því að spila með golfliði University of Detroit í bandaríska háskólagolfinu og gerðist atvinnumaður 1958. Þrjá af 13 sigrum sínum á PGA vann Dave árið 1969. Árið 1970 hlaut hann Vardon Trophy, sem er veittur þeim kylfingi sem er með lægsta meðalskorið en skor Dave  var 70,34. Dave var í 3 Ryder Cup liðum Bandaríkjanna; 1969, 1973 og 1977. Eins sigraði hann 6 sinnum á Champions Tour. Dave var einkum þekktur fyrir beitt Lesa meira