Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2011 | 20:00

13 kvenstjörnur golfsins nr. 2: Patty Berg

Hér verður fram haldið umfjölluninni um 13 kvenstjörnur golfsins og ítrekað að listinn er langt frá því tæmandi. Reyndar vantar sumar skærustu stjörnurnar á hann eins og Lady Margaret Scott, Mrs. Charles Brown, May Hezlet , Rhonu Adair, Cecil Leitch, Joyce Wethered, Glennu Colett Vare,  Helen MacDonald, Babe Didrickson Zaharias, Louise Suggs, Mickey Wright, Kathy Whitworth, Lauru Baugh og svo að sjálfsögðu Anniku Sörenstam og þá eru aðeins fáar taldar.  Svo sem sést væri með auðveldum hætti hægt að skrifa grein um 13 allt aðrar kvenstjörnur golfsins og síðan 13 aðrar o.s.frv. Að baki þessari grein lá bara sú hugmynd að skrifa um nokkra kvenkylfinga sem voru stjörnur síðustu aldar á Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2011 | 19:00

LET: Caroline Hedwall tekur þátt í Lacoste Open í Frakklandi

Caroline Hedwall mun reyna að ná 4. sigri sínum á Ladies European Tour (skammst.: LET), í Lacoste Ladies Open, sem hefst í Frakklandi á morgun, eftir eina æsilegustu helgi í kvennagolfinu í Killeen Castle, á Írlandi, þar sem hún átti stóran þátt í að ná Solheim Cup aftur til Evrópu, þegar lið Evrópu vann lið Bandaríkjanna í þessum Ryder kvennagolfsins. Caroline er enn hátt uppi eftir frumraun sína á Solheim og fyrsta sigurinn fyrir Evrópu í 8 ár, eða frá 2003. Hún er samt ákveðin að færast ofar á Henderson peningalistanum. „Síðasta vika er hvatning og ég vil bara spila vel í þessari viku til þess að fá punkta fyrir Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2011 | 17:00

Golfvellir á Ítalíu: Garda Golf & Country Club

Garda Golf & Country Club á Ítalíu er golfklúbburinn þar sem Matteo Manassero steig sín fyrstu skref í golfíþróttinni (en til þess að fræðast nánar um Matteo fylgist með skemmtilegu viðtali Golf World við hann, sem birtist hér á Golf 1 í íslenskri þýðingu næstu daga). Sérfræðingar telja Gardagolf einn af bestu golfvöllunum, sem byggðir hafa verið s.l. 15 ár. Golfvöllurinn, sem er 27 holu, liggur á 110 ha landi og var hannaður af bresku golfvallarhönnuðunum Cotton, Penninck, Steel & Partners. Golfklúbburinn var stofnaður af Riccardo Pisa staðbundnum sjálfstæðum atvinnurekanda og Giorgio Simonini, sem árið 1984 vildu stofna golfklúbb á Valtenesi svæðinu, þar sem hægt væri að sameina golf og Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2011 | 14:00

Afmæliskylfingur dagsins: Sigurjón Harðarson – 28. september 2011

Það er Sigurjón Harðarson, formaður Golfklúbbs Ásatúns sem er afmæliskylfingur dagsins í dag. Sigurjón fæddist í Reykjavík 28. september 1952 og er því 59 ára. Sigurjón ólst upp í Laugarneshverfinu og var mikið í sveit á sumrin, sem barn og unglingur. Sigurjón byrjaði í golfi þegar hann fékk lóð undir sumarbústað í landi Ásatúns.  Í framhaldinu byggði hann 9 holu golfvöll og stofnaði Golfklúbb Ásatúns árið 2005.  Afmæliskylfingur dagsins er með 22 í forgjöf, en hann spilar aðallega golf á veturna, þar sem háannatími er í fyrirtæki hans á sumrin. Golfklúbbur Ásatúns er að verða með stærstu klúbbum á Suðurlandi vegna fjaraðildar, þ.e. mikillar aðsóknar kylfinga, sem spila ekki nema Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2011 | 12:00

LPGA: Hvað er í uppáhaldi hjá Christinu Kim?

Stuðboltinn í liði Bandaríkjamanna á Solheim Cup, s.s. endranær, var Christina Kim.  Það er sjaldan lognmolla þar sem þessi hressi bandaríski kylfingur fer, eins og sást m.a. á Solheim Cup.  En hvað skyldi nú vera í uppáhaldi hjá Christinu? Blaðafulltrúi LPGA lagði nokkrar spurningar fyrir Cristinu og hér fara þær og svör hennar: Hver er uppáhalds litur þinn? Christina Kim: Grænn. Hver er uppáhalds borgin þín í heiminum? Christina Kim: Dubai. Hvert er í uppáhaldi að fara þegar þú átt frí? Christina Kim: Til Christchurch á Nýja Sjálandi. Hver er uppáhalds drykkur/drykkir þínir? Christina Kim: Vín frá Nýja-Sjálandi. Hvert er uppáhalds tækið þitt? Christina Kim: Allt frá Apple. Hver er Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2011 | 10:00

Presidents Cup: Fred Couples valdi Bill Haas og Tiger – Greg Norman Allenby og Baddeley

Það kom í ljós að bráðabaninn sem Bill Haas sigraði á East Lake var meira virði en $11.44 milljónir.  Með sigrinum hlaut Bill sæti í bandaríska Presidents Cup liðinu. Fyrirliði bandaríska liðsins Fred Couples mátti velja tvo í liðið og hann kaus Tiger Woods og Bill Haas, en sá síðarnefndi vann sem kunnugt er Tour Championship í fyrsta sinn s.l. sunnudag. Couples tók Haas, sem er sonur aðstoðarfyrirliðans Jay Haas, fram yfir Keegan Bradley, sem sigrað hefir tvívegis í ár, m.a. á risamótinu PGA Championship, (en Bill hefir aldrei sigrað á risamóti.) Fyrirliði alþjóðlega liðsins, Greg Norman valdi Robert Allenby og Aaron Baddeley, sem báðir eru frá Melbourne. Hann sagði Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2011 | 20:00

13 kvenstjörnur golfsins nr. 1: Dorothy Campbell

Dorothy Iona Campbell (fædd 24. mars 1883 – dáin 20. mars 1945) var fyrsti kvenkylfingurinn sem eitthvað kvað að á alþjóðavettvangi. Hún var einnig þekkt undir nöfnunum Dorothy Hurd, Mrs. J.V. Hurd og sem Dorothy Howe. Eins var hún þekkt undir sambreiskingnum Dorothy Campbell Hurd Howe. Hún fæddist inn í mikla golffjölskyldu í Norður Berwick á Skotlandi og byrjaði að sveifla kylfum aðeins 18 mánaða gömul. Innan örfárra ára var hún farin að keppa við systur sína. Hún var fyrsta konan til að sigra bandarísku, bresku og kanadísku Ladies Amateur Golf meistaramótin. Á ferli sínum vann hún 11 alþjóðlega titla á Bretlandi, Bandaríkjunum, Kanada og Skotlandi, þann síðasta vann hún Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2011 | 18:30

Ólafur Loftsson í 27. sæti á VCU Shoot Out

Ólafur Björn Loftsson, NK, hefir nú nýlokið við að spila lokahring sinn á 2 daga háskólamóti í Bandaríkjunum, VCU Shoot Out. Spilaðir voru alls 3 hringir á Hermitage Country Club golfvellinum, í Manakin-Sabot, í Virginíu í gær og dag. Þátttakendur voru 90 frá 15 háskólum . Ólafur varð T-27, þ.e. deilir 27. sætinu með 5  öðrum. Ólafur spilaði á samtals +1 yfir pari, þ.e. lauk keppni á samtals 217 höggum (75 70 72). Sjá úrslit í mótinu með því að smella HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2011 | 17:00

Ungi, ítalski ástríðukylfingurinn: Matteo Manassero – I. hluti

Í júníblaði Golf World 2011 er stórskemmtilegt viðtal við unga, ítalska undra-kylfinginn Matteo Manassero, sem varð 18 ára 19. apríl s.l. vor. Hér er fyrsti hlutinn af fimm  þar sem stiklað er á því helsta í viðtalinu: Matteo er sannkallað undrabarn í golfi. Hann vann British Amateur aðeins 16 ára og komst í gegnum niðurskurð á Masters, með langbesta skor af áhugamönnunum, sem þátt tóku á þessu risamóti allra risamóta 2010. Hann var aðeins 17 ára þegar hann vann sinn fyrsta sigur á Evróputúrnum. Nú eru sigrarnir orðnir 2, því hann vann líka á Maybank Malaysian Open, 17. apríl 2011. Og hann er þegar búinn að landa 6 risastyrktar- og Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2011 | 15:00

Úrslit: Vodafone vann firmakeppni GA 2011

Það voru yfir 60 fyrirtæki sem voru skráð til leiks í Firmakeppni Golfklúbbs Akureyrar sem fram fór s.l. sunnudag, 25. september.  Spilaður var betri bolti og 9 holur fyrir hvert fyrirtæki. Það voru þeir Geir Kristinn Aðalsteinsson framkvæmdastjóri Vodafone á Akureyri og félagi hans Heimir Árnason sem spiluðu fyrir Vodafone og sigruðu á 25 punktum. Í öðru sæti var Skýrr/EJS en það voru Guðlaug María Óskarsdóttir og Hallur Guðmundsson sem spiluðu fyrir þá og fengu þau 24 punkta. Síðan komu nokkur fyrirtæki með 23 og 22 punkta. Nú er það Vodafone hér á Akureyri sem fær að nafn sitt á þennan elsta og verðmætasta bikar í eigu klúbbsins, sem gefinn var af Helga Skúlasyni Lesa meira