Nýi FootJoy XPS-1 golfskórinn
Hér að neðan er fréttatilkynning um nýjustu viðbótina meðal FootJoy golfskófatnaðar. Kynntur er til sögunnar nýi FootJoy XPS-1 golfskórinn, sem kemur á markað 2012. Í lok tilkynningarinnar er myndskeið sem sýnir hvernig „reima” eigi Boa útgáfu golfskósins. „FootJoy XPS-1 (Xtreme Platform Stability) golfskórinn hefir verið hannaður til þess að auka stöðugleika kylfingsins þegar hann tekur sér stöðu og til að bæta jafnvægi hans. XtremeOutsole hönnun FootJoy sameinar TPU hliðar „outrigger” sem er létt fíberglas stuðnings strúktúr og HeeLocZone binditækni Footjoy. TPU hliðar „outriggerarnir” ná yfir efri sólann til þess að skapa hámarks snertingu við jörð. Stuðningsstrúktúrinn sér fyrir hliðar og mið- vefju sem styður miðfót kylfingsins og HeeLocZone er hannað Lesa meira
PGA: Wi, Na og Vegas á toppnum í Las Vegas
Bandaríkjamaðurinn Kevin Na átti frábæran hring á Justin Timberlake mótinu í Las Vegas kom inn á 63 höggum. Hann er því efstur á mótinu ásamt Jhonattan Vegas frá Venezuela og Charlie Wi frá Suður-Kóreu, en allir eru búnir að spila á samtals 130 höggum og eru samtals -12 undir pari; Wi (64 66); Na (67 63) og Vegas (63 67). Tim Herron, Kris Blanks og Hunter Haas deila 4. sætinu og er vert að geta hrings þess síðastnefnda því hann átti lægsta skorið í gær, á skorkorti hans var aðeins 61 högg! Sjá má stöðuna þegar Justin Timberlake mótið er hálfnað með því að smella HÉR: Til þess að Lesa meira
Ungi, ítalski ástríðukylfingurinn: Matteo Manassero II. hluti
Í júníblaði Golf World 2011 er stórskemmtilegt viðtal við unga, ítalska undra-kylfinginn Matteo Manassero, sem varð 18 ára 19. apríl s.l. vor. Hér er annar hlutinn af fimm þar sem stiklað er á því helsta í viðtalinu: Það er eitt sem allir taka eftir þegar þeir kynnast Matteo Manassero, en það er hversu þroskaður hann er, þannig að hann virðist mun eldri en árin segja til um. Kannski stafar það af því að hann er einkabarn. Kannski ekki. En hvað um það framkvæmdastjóri R&A bað Matteo t.d., þá 16 ára. að halda ræðu fyrir nefnd í Kaupmannahöfn, sem átti á ákveða hvort golf yrði íþróttagrein á Olympíuleikunum 2016. „Ég held Lesa meira
Lexi yngst á LPGA 2012!
Táningsgolfstjarnan Lexi Thompson mun fá fullan keppnisrétt á LPGA mótaröðinni á næsta ári, 2012. Thomspon, 16 ára, sótti um það hjá LPGA að undantekning yrði gerð á því skilyrði að kylfingar sem kepptu á mótaröðinni yrðu að vera orðnir 18 ára. Framkvæmdastjóri LPGA, Michael Whan féllst á undanþágubeiðni Lexi í dag, (30. september 2011,) einum degi eftir að Lexi lagði hana fram. Lexi sigraði s.s. allir muna Navistar LPGA Classic í Alabama í þessum mánuði og varð þar með yngsti sigurvegari í (61. ára) sögu LPGA. Whan lýsti Lexi sem stúlku með óvenjumikla hæfileika, sem hefði nú þegar sýnt þroska í að höndla slæmt gengi sem velgengni. Lexi fær að Lesa meira
13 kvenstjörnur golfsins nr. 3: Judy Rankin
Judy Torluemke Rankin fæddist 18. febrúar 1945, í St. Louis, Missouri. Hún var aðeins 14 ára gömul þegar hún sigraði á „the Missouri Amateur.” Fimmtán ára var hún best af áhugamönnum sem þátt tóku í US Woman´s Open risamótinu. Aðeins 17 ára gömul gerðist hún atvinnumaður og sama ár, 1962, hóf hún langan og farsælan feril sinn á LPGA, þar sem hún vann alls 26 titla.Judy var efst á peningalista LPGA 1976 og 1977 og var á topp-10 peningalistans 11 sinnum á árunum 1965-1979. Hvað sem öðru leið þá tókst henni aldrei að sigra á risamóti; besti árangur hennar í þeim var 2. sætið á LPGA Championship, 1976; T-2 á Lesa meira
Evróputúrinn: Fleetwood og Hoey leiða þegar Dunhill mótið er hálfnað
Tommy Fleetwood átt alveg hreint frábæran hring á Kingsbarns vellinum í dag, skilaði sér í hús á 63 höggum. Tommy var með „hreint” skorkort, þar sem á voru 9 fuglar og 9 pör. Glæsilegt! Hann er því samtals búinn að spila á -12 undir pari, 132 höggum (69 63) og deilir nú 1. sætinu með einum úr forystufjórmenningsklíkunni frá því í gær, Norður-Íranum Michael Hoey, sem fékk 7 fugla og 1 skolla, en átti til góða betri fyrri hring í gær (66 66). Tommy Fleetwood vann Kazakhstan Open fyrr í mánuðnum og hlaut fyrir það tékk upp á € 64.000,- sem færði hann á topp Challenge Tour listans og tryggði Lesa meira
LET: Stefanie Michl leiðir á Lacoste Open
Það er Stefanie Michl frá Austurríki sem leiðir þegar Lacoste Open er hálfnað í París. Stefaníe spilaði á 67 höggum í gær og var á 68 höggum í dag þannig að samtals hefir hún spilað á 135 höggum eða -5 undir pari. Stefanie er að vonast eftir 1. sigri sínum á LET. Stefanie spilaði fyrri 9 í dag á 32, dró fram úr erminni 5 fugla og 1 skolla en síðan gekk ekki eins vel á seinni 9, þar sem hún fékk hún aftur skolla og 2 fugla. Michl sagðist stöðugt vera að vinna í sveiflu sinni og eftir daginn í dag sagði hún: „Ég er ánægð með hvernig Lesa meira
Sólskinstúrinn: Jaco Ahlers leiðir þegar Platinum Classic er hálfnað
Það var Suður-Afríkumaðurinn Jaco Ahlers, sem tók forystuna á Platinum Classic mótinu, kom inn á 64 höggum í dag og er því samtals búinn að spila á 129 höggum (65 64) þ.e. -15 undir pari. Í 2. sæti eru forystumennirnir frá því í gær Justin Harding og Merrick Bremner, báðir höggi á eftir Ahlers og undarlegt nokk, báðir búinir að spila á sama skori báða dagana (64 66). Fjórða sætinu deila 4 kylfingar: Hennie Otto, Dean O´Riley, Warren Abery og Vaughn Groenewald, allir á -12 undir pari hver, þ.e. 3 höggum á eftir Ahlers. Til þess að sjá stöðuna í MooiNooi þegar Platinum Classic er hálfnað smellið HÉR:
Horft til baka yfir íslenska golfsumarið 2011 – Lancôme kvennamótið 2011 á Hellu – 7. maí 2011 – Úrslit og myndasería
Hér á næstu dögum verður í máli og myndum farið yfir íslenska golfsumarið 2011. Golf 1 hefir verið starfandi frá því snemma í vor, þótt Golf 1 golffrétta-vefsíðan hafi ekki farið í loftið fyrr en s.l. sunnudag, 25. september. Fjölmargir íslenskir kylfingar hafa orðið varir við ljósmyndara Golf 1, sem farið hefir á hin ýmsu golfmót í vor og sumar og tekið myndir af þeim. Hér birtast loks myndirnar, sem og upprifjun á úrslitum mótanna. Nr. 1: Lancôme kvennamótið – 7. maí 2011 Mikil hefð er komin fyrir Lancôme kvennamótinu, sem fram fór að Hellu, nú í vor, 7. maí 2011, þ.e. á dánardægri golfgoðsagnarinnar Seve Ballesteros. Mótið var fyrsta kvennamót Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Anna Einarsdóttir – 30. september 2011
Afmæliskylfingur dagsins er Anna Einarsdóttir, GA, en hún fæddist á Akureyri 30. september 1964 og ólst upp á Eyrinni. Anna byrjaði í golfi fyrir 5 árum síðan, vegna þess að henni var gefið golfsett í jólagjöf. Hún er, og hefir allt frá upphafi verið, í Golfklúbbi Akureyrar. Anna er gift Arinbirni Kúld og á 3 börn og 1 barnabarn. Hún spilar mikið golf ásamt eiginmanni og yngsta syni sínum og segir samveruna við fjölskylduna vera það besta við golfið þ.e. að allir geti verið fleiri, fleiri tíma úti saman á sumrin í skemmtilegum leik. Yngsti sonur Önnu er Akureyrarmeistari í golfi, Tumi Kúld og hefir Anna verið dugleg að draga Lesa meira










