Ragnheiður Jónsdóttir | október. 8. 2011 | 07:58

PGA: Casey í forystu á 2. degi FrysOpen.com – Tiger náði niðurskurði

Það var Englendingurinn Paul Casey, sem tók forystuna á FrysOpen.com þegar hann kom inn á lægsta skori gærdagsins á Corde Valle vellinum í St. Martin, glæsilegum 64 höggum! Samtals er Casey búinn að spila á 134 höggum (70 74); -8 undir pari. Paul Casey þarf að spila sig aftur inn í eða upp fyrir topp-125 til þess að tryggja sér kortið sitt á PGA túrnum. Hann hefir átt við fótarmeiðsli að stríða m.a. hefir hann þurft að ganga um með innlegg í skónum og með tærnar „teipaðar.”  Hann fór í meðferð hjá Gary Institute og segist vera kominn 70% í lag. „Þetta er í fyrsta sinn, sem ég hef verið Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2011 | 21:00

13 kvenstjörnur golfsins nr. 9: Pat Bradley

Í dag ef spurt yrði hver Pat Bradley væri, þá myndu eflaust flestir svara: „Hún er frænka Keegan Bradley, nýliðans sem vann PGA Championship risamótið í ár (2011).” En hver er annars Pat Bradley? Pat fæddist í Westford, Massachusetts 24. mars 1951 og átti því 60 ára stórafmæli á árinu. Hún hefir sigrað á 31 móti á LPGA, þar af 6 risamótum. Hún sigraði á New Hampshire Amateur árin 1967 og 1969 og New England Amateur árin 1972-73. Sem hluti af golfliði Florida International University var hún útnefnd  All-American árið 1970. Sem áhugamaður varð hún jöfn annarri í 12. sæti á móti á LPGA árið 1973 þ.e. á Burdine’s Invitational. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2011 | 20:19

LPGA: Yani Tseng leiðir á Hana Bank-mótinu í Incheon eftir 1. dag

Yani Tseng lék eins og heimsins besti kylfingur (sem hún er skv. Rolex-listanum) á LPGA Hana Bank Championship, sem fram fer nú um helgina í Sky 72 Golf Club í Incheon í Suður-Kóreu. Yani kom inn á 65 höggum. Yani fékk 10 fugla og 3 skolla og á eitt högg á Chellu Choi, sem er í 2. sæti. Sú sem á titil að verja heimakonan Na Yeon Choi deilir 3. sætinu með þýska fyrrum W-7 módelinu og Solheim Cup liðsmanni Evrópu, Söndru Gal.  Þær eru báðar á -5 undir pari. Meðal 6 stúlkna sem deila 5. sætinu eru Paula Creamer og Sophie Gustafsson – hinar eru allt heimakonur Meena Lee, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2011 | 19:16

Bandaríska háskólagolfið: Ólafía í 4. sæti eftir 1. dag Tar Heel-mótsins – Glæsilegt!

Ólafía Þórunn átti glæsilegan opnunarhring í dag á  UNC Finley golfvellinum í Chapel Hill í Norður-Karólínu þar sem Tar Heel Invitational mótið, fer fram.  Þátttakendur eru 96 úr 18 háskólum. Ólafía kom inn á 69 höggum og er -3 undir pari.  Liðsfélagi hennar Cheyenne Woods, frænka Tigers, spilaði höggi betur og er -4 undir pari.  Ólafía Þórunn deilir, sem stendur 4. sætinu með nokkrum öðrum og Cheynne Woods er T-1 . Lið Wake Forest er í 2. sæti. Nokkrar eiga eftir að koma inn þannig að sætaröð gæti breyst en ljóst er að þetta er glæsileg byrjun! Til að sjá stöðuna eftir 1. dag á Tar Heel Invitational smellið HÉR: Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2011 | 19:00

Ungi, ítalski ástríðukylfingurinn: Matteo Manassero – IV. hluti

Binaghi (þjálfari Matteo Manassero) segir að nákvæmin sé ekki mikilvægasti hæfileiki Matteo Manassero. „Matteo var fæddur með eitthvað í sér sem gerir hann sérstakan,” segir hann. „Bara af eiginn hvötum er vilji hans sterkur til þess að verða frábær kylfingur. Hann einbeitir sér að því og engu öðru.  Engar afsakanir, ekkert drama, hann ætlar bara að koma sér þangað. Þegar hann hefir tækifæri til þess að „performera“, þá vill hann skara fram úr og hann veit hvernig á að gera það. Þetta er ekki nokkuð sem hann skilgreinir sem eitthvað sérstakt. Það væri erfitt fyrir kylfing, sem elst upp á Ítalíu að vita þetta. Edoardo sigraði US Amateur [árið 2005], Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2011 | 18:30

LET: Trish Johnson í forystu á Opna sikileyska eftir 1. dag

Trish Johnson frá Englandi er í forystu eftir fyrsta dag Opna sikileyska (Sicilian Ladies Italian Open), kom inn á -6 undir pari, 66 höggum, á Il Picciolo Golf Club. Trish fékk 5 fugla á fyrri 9 og var á 30 höggum og á síðan var seinni hringurinn hennar blanda af 4 fuglum í viðbót og 3 skollum, útkoman 36 högg á seinni. Ítalska stúlkan Stefanía Croce naut þess að spila á heimavelli fyrir framan fjölskyldu og vinu og kom inn í dag á 68 höggum, og deilir 2. sætinu með Kym Larratt frá Englandi. sem, var með 8 fugla og 2 skolla og 1 skramba á skorkortinu sínu. Spænski nýliðinn Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2011 | 18:00

Evróputúrinn: Slattery leiðir á Madrid Masters eftir 2. dag

Bretar eru búnir að hafa sætaskipti þegar Bankia Madrid Masters er hálfnað. Fyrsta sætið vermir nú Englendingurinn Lee Slattery í stað McGowen sem var þar í gær. Hinn 33 ára gamli Slattery kom inn á 66 höggum og er þá samtals búinn að spila á 133 höggum (67 66);  -11 undir pari.  McGowen deilir  5. sætinu með Ástralanum Brett Rumford, fylgdi frábærum hring í gær upp á 64 högg eftir með hring í dag upp á 72 högg. Öðru sætinu deila er Ítalinn Francesco Molinari og Spánverjinn Eduardo De La Riva, höggi á eftir Lee Slattery og í 4. sæti er Ítalinn Lorenzo Gagli. Slattery náði ekki að endurnýja kortið Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2011 | 15:20

Evróputúrinn: Elliot Saltman fór holu í höggi – fær þyngdar sinnar virði í spænskri skinku

Skoski kylfingurinn Elliot Saltman fór holu í högi á 2. hring Madríd Masters í dag og vann gúmmulaðisverðlaun – þyngdar sinnar virði í spænskri skinku. (Smá innskot: Skinkan (Jamón Serrano) er mörgum Íslendingum að góðu kunn – síðast þegar greinarhöfundur fór í golfferð til Spánar voru nokkrir í ferðinni, sem sögðust geta lifað vikum saman á þessari skinku einni, svo góð þykir hún – reyndar þykir hún algert lostæti!) Saltman sló draumahöggið á par-3, 3. brautinni á El Encin Golf Hotel. Þrátt fyrir afrekið er Saltman (nr. 686 á heimslistanum) hvergi nálægt vinningssæti. Í gær kom hann í hús á 75 höggum er +3 yfir pari og 11 höggum á Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2011 | 11:00

Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn keppir í dag á Tar Heel Invitational

Í dag hefst á UNC Finley golfvellinum í Chapel Hill í Norður-Karólínu, Tar Heel Invitational mótið.  Þátt taka 96 keppendur frá 18 háskólum, þ.á.m. Wake Forest háskóli Ólafíu Þórunnar.  Ólafía Þórunn á rástíma kl. 13:36 að íslenskum tíma. Cheyenne Woods, frænka Tigers, sem ekki gengur nógu vel á FrysOpen.com, er í hollinu á undan Ólafíu Þórunn. Fylgjast með stöðunni á Tar Heel Invitational, með því að smella HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2011 | 10:30

LET: Belen Mozo byrjar vel á Sikiley

Hin spænska Belen Mozo tók forystuna snemma á Opna sikileyska (ens.: Sicilian Ladies Italian Open ) undir heiðbláum himni Il Picciolo Golf Club núna í morgun. Þessi 23 ára stúlka frá Cadiz, sem var meistari British Amateur fékk fugla á fyrstu 3 holunum og náði 1 höggs forystu fram yfir Rebeccu Hudson, sem er slöpp í bakinu, en var að öðru leyti í góðu formi því hún setti niður fugla á 4. og 6. holu. Hæst rankaði ítalski kylfingurinn, Giulia Sergas frá Trieste byrjaði líka vel með fugl á fyrstu og það sama er að segja um ítölsku stúlkurnar  Sophie Sandolo og Stefania Croce,  Lee-Anne Pace frá Suður-Afríku og  Garrett Phillips frá Lesa meira