PGA: Briny Baird efstur eftir 3. dag – Tiger í 38. sæti
Það er Bandaríkjamaðurinn Briny Baird, sem leiðir eftir 3. dag á FrysOpen.com – er – 13 undir pari á samtals 200 höggum (67 69 64). Briny er sigurlaus í 347 PGA mótum, sem hann hefir tekið þátt í. Hringurinn, sem hann spilaði í gær var einkar glæsilegur, sérstaklega örninn, sem hann fékk eftir að setja niður 5 metra pútt á par-4, 17. brautinni, sem varð til þess að hann fór -7 undir á hringnum og fékk frábæra skorið 64 högg. Ernie Els og forystumaður gærdagsins Paul Casey deila 2. sætinu, 2 höggum á eftir Briny. Tiger Woods átti síðan ágætis hring upp á 68 og greinilegt að hann er á Lesa meira
13 kvenstjörnur golfsins nr. 10: Rosie Jones
Ef íslenskir kylfingar yrðu spurðir að því hver Rosie Jones væri, þá er næsta víst að flestir sem á annað borð hefðu svar við spurningunni myndu svara: „Já var hún ekki fyrirliði Bandaríkjanna á Solheim Cup 2011?” Og rétt er það Rosie var fyrirliði bandaríska liðsins á Solheim Cup, sem tapaði fyrir Evrópu 15:13. En Rosie er svo miklu meira en það… Rosie Jones fæddist 13. nóvember 1959 í Santa Ana í Kaliforníu. Hún á að baki 13 sigra á LPGA og vann sér á ferli sínum inn næstum $8.4 millijóna í verðlaunafé. Á unglingsárum sínum (1974-1976) varð hún þrívegis unglingameistari í New Mexico og vann New Mexico State Championship Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn T-27 eftir 2. dag Tar Heel – Cheyenne Woods T-4
Ólafía Þórunn spilaði 2. hring á Tar Heel á 77 höggum í dag og féll við það úr 4. sætinu í það 27. Ólafía Þórunn er nú +2 yfir pari, búin að spila á samtals 146 höggum (69 77). Liðsfélagi Ólafíu Þórunnar og frænka Tigers, Cheynne Woods sem deildi 1. sætinu í gær ásamt nokkrum öðrum átti líka lakari hring í dag og er komin í 4. sætið, sem hún deilir með 3 öðrum stúlkum. Hún er á samtals -5 undir pari, samtals 139 höggum (68 71). Lið Wake Forest féll eftir daginn úr 2. sætinu í það 6. sem skólinn deilir með liði Georgiu háskóla. Á efsta sæti á Lesa meira
Viðtalið: Andrea Ásgrímsdóttir, GO.
Um miðjan maí, þegar allt var að vakna til lífsins þetta herrans ár 2011 fór Golf 1 af stað með að taka viðtöl við íslenska kylfinga, þ.e. leggja fyrir þá á fjórða tug staðlaðra spurninga, með örlitlum frávikum í hvert sinn. Hér fer eitt af fyrstu viðtölunum, en viðmælandi er Andrea Ásgrímsdóttir. Andrea er klúbbmeistari GA í kvennaflokki 1990, 1994, 1997 og 1999-2001, Norðurlandsmeistari í kvennaflokki 1994, 1999-2000, Íslandsmeistari 35+, árið 2010, kylfingur ársins hjá GA 2010 og nú á síðustu árum golfkennari í Golfklúbbnum Oddi í Garðabæ. Andrea er ættuð er frá Akureyri, en býr í Frakklandi. Hér eru spurningarnar og svör Andreu: Nafn: Andrea Ásgrímsdóttir. Fæðingardagur: 10. janúar 1974. Hvar Lesa meira
LET: Gwladys Nocera leiðir eftir 3. dag á Sicilian Ladies Italian Open
Það er franska stúlkan Gwladys Nocera, sem er komin í forystu eftir 3. dag Opna sikileyska. Hún spilaði í dag á glæsilegu skori 66 höggum og fékk m.a. örn á par-5 11. brautina á golfvelli Il Picciolo Golf Club. Hún er því samtals á -6 undir pari á samtals 138 höggum (72 66). Í 2. sæti er bandaríski stuðboltinn Christina Kim. Hún er aðeins 1 höggi á eftir Nocera og sjóðandi heit og til alls líkleg á morgun. Fjórða sætinu deila franska stúlkan Juliet Greciet og hæst rankaða ítalska stúlkan í mótinu Giulia Sergas, þær eru báðar á -4 undir pari og munar því aðeins 2 höggum á þeim og Lesa meira
Evróputúrinn: Lee Slattery efstur fyrir lokahringinn í Madríd
Lee Slattery heldur 2 högga forystu sinni á þá sem næstir koma, eftir 3. dag Madríd Masters. Samtals er Lee á 202 höggum (67 66 69) og þ.a.l. – 14 undir pari. Í 2. sæti eru Ítalinn Lorenzo Gagli (65 70 69) og Ástralinn Brett Rumford (65 71 68). Fjórða sætinu deilir síðan Francesco Molinari, með Argentínumanninum Cesar Monasterio og Svíanum Oscar Floren, en þeir eru allir á samtals -11 undir pari og því 3 höggum á eftir Lee. Það stefnir því í hörkubaráttu á morgun um sigursætið! Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag á Madríd Masters smellið HÉR:
LPGA: Soo-Jin Yang er efst í Kóreu eftir 2. dag
Það er heimakonan Soo-Jin Yang sem er efst í Sky 72 Golf Club á Ocean golfvellinum í Incheon í Suður-Kóreu. Soo-Jin spilaði skollafrítt í dag og setti niður 7 fugla – og glæsilegur hringur upp á 65 högg staðreynd. Samtals er Soo-Jin á -10 undir pari, samtals 134 höggum (69 65). Sú sem á titil að verja landa hennar Na Yeon Choi og nr. 1 í heiminum Yani Tseng frá Taíwan eru 1 höggi á eftir, fyrir lokahringinn, þ.e. -9 undir pari og samtals á 133 höggum hvor. Soo-Jin er þrívegis búin að vinna á kóreönsku LPGA (skammst. KLPGA) og er sem stendur nr. 2 á lista yfir bestu kylfinga Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Guðmundur Ágúst Kristjánsson – 8. október 2011
Það er Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, sem er afmæliskylfingur dagsins en hann er fæddur 8. október 1992 og því 19 ára í dag. Guðmundur Ágúst er afrekskylfingur í GR, varð m.a. klúbbmeistari GR árið 2010 og hlaut háttvísibikar GR það ár. Guðmundur Ágúst á vallarmetið á Korpunni af gulum teigum, 63 högg, sem hann setti á unglingamóti Arionbankamótaraðarinnar 6. júní 2010. Sama ár, þ.e. 2010, varð Guðmundur Ágúst Íslandsmeistari í höggleik í flokki pilta 17-18 ára og vann síðan eftirminnilega Duke of York mótið, en sá sigur er einn glæsilegasti árangur íslensks kylfings á erlendri grund. Í ár, 2011 varð Guðmundur Ágúst m.a. Íslandsmeistari með sveit GR, í sveitakeppni GSÍ. Lesa meira
Morgan Pressel leggur sitt af mörkum til baráttunnar gegn brjóstakrabbameini
Í Flórída í Bandaríkjunum hefir baráttan gegn brjóstakrabbameini sjaldan verið jafnbragðgóð. Bakarís-keðja í Flórida, Panera Bread, ákvað nefnilega að leggja sitt af mörkum til baráttunnar gegn brjóstakrabbameini og bakaði nammilegar beyglur, fylltar með kirsuberjaflögum, þurrkuðum kirsuberjum, vanillu, hunangi og púðursykri í sömu lögun og bleika slaufan er í. Um 10% af söluandvirði beyglnanna fara til bleiku slaufu átaksins í Bandaríkjunum. Beylurnar renna út eins og… ja eins og þær gómsætu beyglur sem þær eru… en ekki skemmir fyrir að LPGA leikmaðurinn og ein helsta stjarna í liði Bandaríkjanna á Solheim Cup, Morgan Pressel var fengin til að afgreiða beyglurnar í bakaríi Panera í Boca Raton, í Flórída. Morgan var aðeins Lesa meira
Asíska mótaröðin: Fowler í forystu á 3. degi Opna kóreanska – á 63 höggum í dag!
Dagana 6.-9. október fer fram í Woo Jeong Hills Country Club, í Suður-Kóreu, Kolon Korean Open (ísl.: Opna kóreanska). Í dag lauk 3. hring mótsins. Bandaríkjamaðurinn Rickie Fowler hefir tekið forystuna eftir 3. dag og fyrir lokahringinn, sem spilaður verður á morgun. Rickie átti glæsihring upp á 63 högg og er á samtals -13 undir pari, þ.e. samtals 200 höggum (67 70 63). Í 2. sæti er heimamaðurinn Y.E. Yang á samtals -9 undir pari, þ.e. samtals 204 höggum (67 70 67) og Meen Whee Kim er í 3. sæti, samtals 206 höggum og -7 undir pari. Rory McIlroy og Bronson La´Cassie deila 4. sætinu, báðir á samtals 210 höggum Lesa meira










