Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2011 | 06:58

PGA: Bryce Molder vann Frys.com Open eftir 6 holu umspil við Briny Baird – Tiger í 30. sæti

Það voru 2 fremur óþekktir bandarískir kylfingar, sem kepptu um 1. sætið í Frys.com Open: Bryce Molder og Briny Baird. Báðir voru að keppa um 1. sigur sinn á PGA mótaröðinni og um að halda korti sínu.  Bryce Molder er nr. 108 á heimslistanum en Briny Baird nr. 269, en fróðlegt verður að sjá hvar þeir verða seinna í dag þegar nýr heimslisti verður birtur. Báðir voru jafnir að loknum hefðbundnum 18 holum; búnir að spila á samtals -17 undir pari, á samtals 267 höggum; Briny Baird (67 69 64 67) og Bryce Molder (71 67 65 64). Þannig að það varð að koma til umspils og til þess kom Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2011 | 21:00

13 kvenstjörnur golfsins nr. 11: Dottie Pepper

Bandaríski atvinnukylfingurinn Dottie Pepper fæddist 17. ágúst 1965 í Saratoga Springs, New York.  Á árunum 1988-1995 keppti hún sem Dottie Mochrie, sem var nafn hennar fyrir skilnað, en eftir skilnaðinn tók hún aftur upp fjölskyldunafn sitt: Pepper. Á ferli sínum sigraði hún í 2 risamótum kvennagolfsins  (Nabisco Dinah Shore risamótið, árin 1992 og 1999)  og alls 17 mótum á LPGA túrnum. Sem atvinnumaður vann Dottie samtals 28 mót, þar af 1 á Futures Duramed mótaröðinni og 1 á japanska LPGA, sem og  í 9 öðrum mótum. Í dag starfar Dottie, sem golffréttakona í sjónvarpi, í Bandaríkjunum. Pabbi Dottie, Don, var atvinnuhafnaboltamaður, sem m.a. birtist árið 1968 á forsíðu Sports Illustrated Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2011 | 20:20

Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn, Cheyenne og lið Wake Forest í 8. sæti

Ólafía Þórunn spilaði 3. og síðasta hring á Tar Heel á 77 höggum eins og í gær og féll við það úr 27. sætinu í það 44. Ólafía Þórunn spilaði á samtals +7 yfir pari, 223 höggum (69 77 77). Liðsfélagi Ólafíu Þórunnar og frænka Tigers, Cheynne Woods sem deildi 4. sætinu í gær ásamt nokkrum lauk leik í 5. sætinu. Cheyenne spilaði  á samtals -7 undir pari, samtals 209 höggum (68 71 70). Lið Wake Forest deildi 8.sætinu með Michigan State. Til þess að sjá úrslitin á Tar Heel Invitational smellið HÉR:  

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2011 | 20:00

LET: Christina Kim sigraði á Sicilian Ladies Italian Open

Það var hin bandaríska Christina Kim sem bar sigurorð af öðrum þátttakendum Opna sikileyska. Christina sigraði nokkuð örugglega, var á samtals -7 undir pari og 209 höggum (70 69 70). Christina var 4 höggum á undan ítölsku stúlkunni Giuliu Sergas, sem var á samtals -3 undir pari, þ.e. 213 höggum (71 69 73). „Það var virkilega erfitt í dag og það glitti í allar tennur golfvallarins í rigningunni, vindinum, þrumunum, eldfjallinu og öllu.  Þetta er bara svo ótrúleg tilfinning í augnablikinu,” sagði Christina Kim rétt eftir sigurinn. Þriðja sætinu deildu ítalska stúlkan Stefanía Croce og sú sem leiddi í gær franska stúlkan Gwladys Nocera, báðar á samtals -2 undir pari, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2011 | 19:51

Evróputúrinn: Lee Slattery vann sinn fyrsta titil í Madríd í dag

Nr. 136 í heiminum, Bretinn Lee Slattery, 33 ára, vann sinn fyrsta titil á Evrópumótaröðinni í dag á Bankia Madrid Masters mótinu.  Hann var á samtals – 15 undir pari, þ.e. samtals 273 höggum (67 66 69 71). „Ég hef aldrei skolfið jafn mikið og yfir síðasta púttinu sem var innan við meter frá holu. Um leið og ég gerði mistök á síðustu var það ansi taugatrekkjandi.” Í 2. sæti varð Lorenzo Gagli frá Ítalíu, aðeins 1 höggi á eftir Lee. Þriðja sætinu deildu heimamaðurinn Eduardo de la Riva og Argentínumaðurinn Cesar Monasterio, á samtals 276 höggum hvor. Sjá má úrslit á Bankia Madrid Masters með því að smella HÉR: Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2011 | 15:00

Afmæliskylfingur dagsins: Annika Sörenstam – 9. október 2011

Annika Sörenstam fæddist í Bro í Svíþjóð 9. október 1970 og er því 41 árs í dag. Annika byrjaði ung að spila golf ásamt Charlottu systur sinni, en þær tvær eru einu systurnar sem hafa unnið sér inn yfir $ 1.000.000 bandaríkjadala í verðlaunafé á LPGA. Alls eru sigrar Anniku frá því hún gerðist atvinnumaður í golfi, árið 1992, 93 talsins, þ.á.m. 72 skráðir sigrar á LPGA, en þar af eru 10 sigrar á risamótum. Annika hefir jafnframt sigrað í 18 alþjóðlegum mótum. Hún er sá kvenkylfingur sem hefir unnið sér inn mesta verðlaunaféð yfir $22 milljónir bandaríkjadala og munar $ 8 milljónum á henni og þeirri sem kemur næst Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2011 | 12:45

LPGA: Yani Tseng sigraði á Hana Bank mótinu í Incheon

Yani Tseng, sýndi í dag og sannaði af hverju hún er nr. 1 í heimi. Þessi 22 ára stúlka sem deildi ásamt þeirri sem átti titil að verja, heimakonunni Na Yeon Choi, 2. sætinu á eftir óþekktari kylfing á heimsmælikvarða Soo-Jin Yang í gær, sannaði í dag hver er best í heimi.  Hin högglanga Yani sýndi klærnar, kom inn á 67 höggum 1 höggi betur en Na Yeon, sem varð í 2. sæti á 68 höggum. Þetta er 6. sigur Yani á LPGA í ár og ber hún höfuð og herðar hinar á túrnum – virðist á stundum ósigrandi. Samtals var Yani á -14 undir pari, spilaði hringina 3 á Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2011 | 11:15

Hver er kylfingurinn Briny Baird?

Það er alltaf gaman þegar fremur óþekktum kylfingum, sem búnir eru að vera lengi að með litlum árangri tekst að skara fram úr. Svo var líklega í gær hjá Briny Baird, þegar hann landaði 1. sætinu á FrysOpen.com… daginn fyrir lokahringinn, sem spilaður verður í dag. Flestallir fréttamenn og golfaðdáendur fylgjast  fyrst og fremst með þessu veigalitla móti á PGA vegna ofurlöngunar á að sjá Tiger spila í sínu gamla formi… en það virðist eitthvað standa á því.   Briny hins vegar er búinn að sigra með því að landa 1. sætinu (þó það sé ekki lokaniðurstaðan) en 1. sætinu náði hann… með frábærum hring upp á 64 högg þar Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2011 | 10:10

Asíska mótaröðin: Rickie Fowler sigraði í Kóreu

Rickie Fowler náði fyrsta sigri sínum á atvinnumannsferlinum eftir sigur á Korea Open í dag, (sunnudaginn, 9. október 2011.) Bandaríkjamaðurinn, 22 ára, (Rickie) sem leiddi með 4 höggum fyrir lokahringinn, lauk keppni með -3 undir pari, þ.e. á 68 höggum og sigraði US Open risamótssigurvegarann Rory McIlroy með 6 höggum. Norður-Írinn (Rory) lauk keppni með hring upp á 64 högg og nældi sér í 2. sætið á -13 undir pari og Kim Meen-whee frá Suður-Kóreu varð í 3. sæti á -10 undir pari. Eftir sigurinn á Woo Jeong Hills sagði Rickie Fowler, sem spilaði fyrri hringina á 67 70 63: „Þetta var mjög skemmtilegt. Ég spilaði snemma vel á lokahringnum Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2011 | 10:00

Nokkrar góðar golftilvitnanir úr ýmsum áttum

Le golf est un jeu facile, difficile à jouer . Inconnue „Golf er auðveldur leikur, sem erfitt er að spila.” Óþekktur.   „I know I´m getting better at golf because I´m hitting fewer spectators.“ „Ég veit að mér fer fram í golfinu vegna þess að ég hitti færri áhorfendur.” Gerald Ford, 38. forseti Bandaríkjanna.    “No golfer can ever become too good to practice.” May Hezlet „Enginn kylfingur verður of góður til að æfa.” May Hezlet   “Grip it and rip it. It works for John Daly. It never worked for me. All I did was wear out golf gloves.” Chuck Stark, The Sun Link, June 17, 2003. Þrífðu og Lesa meira