Sólskinstúrinn: Vaughan í 1. sæti í Zambía Open
Það er Bradford Vaughan, sem vermir 1. sætið á Zambía Open. Bradford kom inn á 67 höggum í dag og er því samtals búinn að spila á -9 undir pari, þ.e. samtals 135 höggum (68 67). Í 2. sæti eru Jean Hugo og Divan van den Heever. Divan kom inn á 67 höggum í dag og er samtals búinn að spila á – 8 undir pari, þ.e. 136 höggum ( 69 67 ). Jean Hugo hins vegar var á 66 höggum, en 70 í gær. Fjórða sætinu deila síðan 4 kylfingar: Daníel Green, sem leiddi í gær; Doug McGuigan; Wallie Coetzee og Svisslendingurinn Robert Wiederkehr á -7 undir pari. Hér Lesa meira
GSG: Vetrarmót n.k. sunnudag – 16. október 2011
Í tilkynningu frá Golfklúbbi Sandgerðis segir eftirfarandi: „Golfklúbbur Sandgerðis verður með golfmót alla sunnudaga í vetur. Þetta er að sjálfsögðu háð veðri. Fyrsta mótið verður sunnudaginn 16. okt. Boðið verður uppá vöfflur og/eða súpu og er innifalið í mótsgjaldinu. Búið er að opna fyrir skráningu á golf.is“ Fjölmennum á frábæran 18 holu Kirkjubólsvöll á sunnudaginn!
LPGA: Lewis og Lang leiða á Sime Darby þegar mótið er hálfnað
Það eru bandarísku stúlkurnar Brittany Lewis og Stacy Lang sem leiða þegar LPGA Sime Darby mótið í Malasíu er hálfnað. Þær stöllur eru báðar búnar að spila á samtals -9 undir pari, þ.e. 133 höggum; Brittany (66 67) og Stacy (68 65). Na Yeon Choi og Dewi Claire Schreefel deila 3. sætinu eru 1 höggi á eftir forystukonunum. Í 5. sæti er Azahara Munoz og 6. sætinu deila nr. 1 í heimi Yani Tseng, Michelle Wie og IK Kim. Hér má sjá stöðuna á mótinu eftir 2. dag: SIME DARBY MALASÍA
Afmæliskylfingar dagsins: J.C. Snead og Ingvar Hreinsson, GKS – 14. október 2011
Annar afmæliskylfinga dagsins er Ingvar Hreinsson, í Golfklúbbi Siglufjarðar. Ingvar er fæddur 14. október 1961 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Golf 1 óskar Ingvari innilega til hamingju með merkisafmælið! Hinn afmæliskylfingurinn er Jesse Carlyle „J.C.“ Snead, sem fæddist í Hot Springs, Virginíu, 14. október 1940 og er því 71 árs í dag. J.C. er frændi hins fræga Sam Snead. J.C var í hinum fræga East Tennessee State University í Johnson City, Tennessee og var þar félagi í Sigma Phi Epsilon. Hann spilaði sem atvinnumaður hafnarbolta fyrir Washington Senators áður en hann gerðist atvinnukylfingar 1964. Hann komst á PGA túrinn 1968. Alls sigraði J.C. Snead 8 sinnum á Lesa meira
Evróputúrinn: Khan og Kaymer ofarlega snemma dags í Portúgal
Simon Khan spilaði fyrri 9 á 33 og tók forystu á Opna portúgalska og er kominn í forystu á mótinu nú fyrir hádegi á -11 undir pari (skrifað kl. 10:30). Í 2. sæti, 2 höggum á eftir Kahn eru Martin Kaymer, Rhys Davies og Grégory Havret. Vonandi að Kaymer takist að rétta úr kútnum aðeins undir lok árs, eftir slakkt gengi í ár. Sigurvegari BMW PGA Championship 2010 (Simon Khan) fékk glæsilega 3 fugla á 4 fyrstu holunum. Á 7. fékk hann síðan skolla en aftur fugl á næstu, þ.e. par-3, 8. brautina. Því miður fékk hann skolla aftur á 10. en síðan 2 fugla á 12. og 13. braut. Lesa meira
PGA: Simpson og Miller í forystu á Sea Island
Í gær hófst McGladrey Classic mótið á Seaside golfvellinum á Sea Island í Georgia. Það eru þeir Webb Simpson og Zack Miller sem leiða eftir 1. dag. Báðir komu inn á glæsilegum -7 undir pari, þ.e. 63 höggum, en Seaside er par-70 golfvöllur. Webb Simpson var með 8 fugla, en fékk því miður skolla á par-4, 18. brautinni. Zack Miller hins vegar spilaði skollafrítt, var með 5 fugla og fékk glæsilegan örn á par-5 15. brautinni. Þrír deila 3. sætinu – Scott McCarron, sem er einna frægastur fyrir að hafa deilt á Phil Mickelson í fyrra fyrir að hafa notað Ping kylfur og þar með sneitt fram hjá nýju gróparreglunum Lesa meira
Kylfingar 19. aldar: Nr. 1 Old Tom Morris – fyrri hluti –
Thomas Mitchell Morris eldri f. 16. júní 1821 – d. 24. maí 1908 betur þekktur sem Old Tom Morris var frumkvöðull atvinnumennsku í golfi. Hann fæddist á St. Andrews, Fife, Skotlandi í „vöggu golfíþróttarinnar“ þar sem frægi St. Andrews linksarinn er og hann dó þar líka. Sonur hans var Tom Morris yngri, sem dó aðeins 24 ára að aldri 1875. Golfferill Old Tom Morris í æsku Morris var sonur vefara og byrjaði aðeins 10 ára gamall að slá vínkorka, sem nagli hafði verið rekinn í um stræti bæjarins með heimatilbúinni kylfu og tók þátt í keppnum gegn öðrum krökkum, en þessi leikur nefndist „sillybodkins“. Old Tom Morris byrjaði sem kaddý Lesa meira
LPGA: Fjórar í forystu eftir 1. dag Sime Darby í Malasíu
Hin sænska María Hjorth, bandaríska stúlkan Brittany Lang, hin hollenska Claire Schreefel og Na Yeon Choi frá Kóreu voru allar á -5 undir pari, þ.e. komu í hús á 66 höggum á Sime Darby mótinu, sem hófst í dag í Malasíu. Þessar fjórar forystukonur hafa 2 högga forystu fram yfir Paige MacKenzie frá Bandaríkjunum og Azahara Munoz frá Spáni, sem deila með sér 5. sætinu. Nr. 1 í heiminum Yani Tseng frá Taiwan var á 69 höggum og er 3 höggum á eftir þeim Hjorth, Lang, Schreefel og Choi, saman með þeirri sem á titil að verja Jimin Kang frá Kóreu. Meðal þess mest markverða á mótinu í dag var Lesa meira
Evróputúrinn: Kingston hefir tekið forystuna á Opna portúgalska
Í dag hófst á Oceânico Victoria golfvellinum, í Villamoura í Portúgal (sem margir Íslendingar kannast við) Opna portúgalska. Mótið stendur yfir dagana 13.-16. október. Það er Suður-Afríkubúinn James Kingston, sem er í forystu þegar þetta er ritað (kl. 13:00) og erfitt að sjá að nokkur muni ná honum í dag. Kingston kom í hús á glæsilegum 64 höggum þ.e. -8 undir pari. Aðeins höggi á eftir er Norður-Írinn Gareth Maybin. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Opna portúgalska smellið HÉR:
Sólskinstúrinn: KCM Zambía Open hófst í dag
KCM Zambía Open hófst í Nchanga Golf Club í Chingola Zambíu í dag, en mótið er hluti af Sólskinstúrnum suður-afríska. Keppt er um 1,2 milljónir Kruger Rand. Mótið stendur yfir dagana 13.-16. október. Það eru Svisslendingurinn Robert Wiederkehr og Suður-Afríkubúarnir Daníel Green og PH McIntyre, sem eru í forystu eftir fyrsta dag, allir komu inn á -5 undir pari. T-4 eru Jake Roos og Bradford Vaughan. Daníel Green sagði m.a. eftir 1. hringinn: „Hlutirnir rúlluðu bara einhvern veginn í dag, vitið þið, sum högg lentu nákvæmlega þar sem ég vildi að þau færi og púttin mín voru virkilega góð í dag þannig að ég bjargaði nokkrum pörum og náði fuglum Lesa meira










