Afmæliskylfingar dagsins: Guðmundur Júní, Kristín Inga og Hisako Chako Higuchi – 13. október 2011
Hisako „Chako“ Higuchi (樋口久子) fæddist 13. október 1945 í Kawagoe, Saitama í Japan og er því 66 ára í dag. Chako er þekktust fyirr að hafa sigrað á LPGA Championship risamótinu 12. júní 1977. Þar með varð hún fyrsti Asíu-búinn til þess að sigra risamót, hvort heldur er meðal karla eða kvenna. (Fyrsti karlinn frá Asíu sem vann risamót var Y.E Yang frá Kóreu þegar hann sigraði PGA Championship 2009). Chako er til dagsins eina konan frá Japan til þess að sigra á risamóti LPGA. Chako ásamt Ayako Okamota dómineraði golf í Japan á árunum 1970-1990. Chako lærði golf af Torakichi Nakamura, sem var hluti af sigurliði Japan 1957 á Lesa meira
Er golf hættulegt kúm? Já, skv. nýjasta dómi í Nýja-Sjálandi
Síðasta almenningsgolfvelli í Palmerston North (Nýja-Sjálandi) hefir verið fyrirskipað að loka vegna truflunar sem golfboltar og ráfandi kylfingar hafa valdið nærliggjandi býli. Eftir aðalmeðferð í Palmerston North District Court, gaf dómarinn Nevin Dawson, Brookfields Park Golf Club, á Te Matai götu, frest til 30. nóvember til þess að loka. Um þennan 9-holu golfvöll, var stofnaður klúbbur, sem telur 140 félaga. Það var nágranninn Organic Farm Company, sem sér Biofarm Product fyrir framleiðsluvörum og lífrænum mjólkurvörum, sem fór í málið. Bæði fyrirtækin eru í eigu James og Catherine Tait-Jamieson og hluthafa. Eigandi Brookfields golfvallarins, Don Finlaysson, fékk lögfræðinginn Phillip Drummond til þess að flytja málið fyrir sig – og þeir eru Lesa meira
Pylsukastarinn vildi gera eitthvað „hugrakkt og hetjulegt“
Kaliforníubúi, sem var handtekinn fyrir að kasta pylsu að Tiger Woods í Frys.com Open sagði að hann hefði viljað gera eitthvað „hugrakkt og hetjulegt.“ Brandon Kelly frá Petaluma sagði í samtali við Santa Rosa Press Democrat á þriðjudaginn að hann væri aðdáandi Tigers og hefði fengið hugmyndina eftir að hafa horft á (kvikmyndina) Drive — sem er nýbyrjað að sýna, með Ryan Gosling í aðalhlutverki, sem leikur áhættuleikara í aksturssenum, sem hefir að aukastarfi að keyra flóttabíl afbrotamanna–. „Ég henti pyslunni í átt að Tiger Woods vegna þess að ég var innblásinn af myndinni Drive,“ sagði Kelly. „Um leið og myndinni lauk hugsaði ég með sjálfum mér „ég verð að gera eitthvað Lesa meira
Ný greinaröð á Golf 1 – Kylfingar 19. aldar
Hér á Golf 1 fer nú af stað ný greinaröð: kylfingar 19. aldar. Kynntir eru til sögunnar helstu kylfingar sem fæddir voru 1800 og eitthvað. Þetta er öldin, sem við Íslendingar vorum enn undirokuð af Danakonungi og bjuggum í moldarkofum, meðan heldri menn um alla Evrópu spiluðu golf. Flestallir Evrópubúar strituðu reyndar myrkranna á milli – golf var íþrótt aðalsins, þeirra sem ekki höfðu neitt annað við tíma sinn að gera, en að drekka te, spila golf og fara á kvennafar á kvöldin, því flestallir sem spiluðu golf á 19. öld voru karlmenn. Af þeim 37 kylfingum, sem fæddir eru á 19. öld og ætlunin er að kyna til sögunnar Lesa meira
Tiger tekur þátt í Chevron mótinu
Tiger Woods hefir staðfest að hann muni taka þátt í sínu eiginn móti í desember og viðurkennir að hann sé að einbeita sér að því að vinna sig upp heimslistann að nýju. Þessi 14 faldi meistari risamóta er gestgjafi á World Chevron Challenge á hverju keppnistímabili, en þetta er mót 18 bestu, sem fram fer í Sherwood Country Club í Kaliforníu. Í mótinu taka einungis þátt þeir sem eru meðal topp 50 á heimslistanum og Woods var heppinn að hafa verið í 49. sætinu í lok september, þegar lokað var fyrir skráningu í mótið. Tiger kemur til með að spila á Opna ástralska og Forsetabikarnum áður en hann tekur þátt í Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Cristie Kerr – 12. október 2011
Cristie Kerr fæddist í Miami, Flórída, 12. október 1977 er því 34 ára í dag. Hún byrjaði að spila golf 8 ára og við 12 ára aldurinn var forgjöf hennar komin niður í 2. Cristie útskrifaðist frá Miami Sunset High School í West Kendall 1995. Árið 1996 gerðist hún atvinnumaður í golfi og lék bæði á Futures túrnum og Players West-túrnum. Fyrsta sigur sinn sem atvinnumaður vann hún á Ironwood Futures Classic-mótinu árið 1996. Síðla árs 1996 var hún jöfn öðrum í 6. sæti í LPGA Final Qualifying Tournament (Q-school) og fekk undanþágu til að spila í LPGA-mótaröðinni, árið 1997. Ferill hennar á LPGA-mótaröðinni byrjaði hægt. Það tók hana 3 Lesa meira
Lancome mótið – 7. maí 2011
Hver er kylfingurinn Bryce Molder?
Bryce Wade Molder fæddist 27. janúar 1979 í Harrison, Arkansas. Hann var í almenningsskólum í Conway, Arkansas og fór síðan í Georgia Tech háskóla þar sem hann útskrifaðist með gráðu í stjórnun. Í Georgia Tech var Bryce 4 sinnnum first-team All-American og var tilnefndur háskólakylfingur keppnistímabilsins 2000-2001. Frægur félagi Bryce í Georgia Tech var Matt Kuchar. Bryce spilaði á US Open risamótinu 2001 sem áhugamaður og var skor hans 68 högg á 3. hring en 74 högg á 4. hring urðu til þess að hann deildi 30. sætinu með öðrum. Bryce varð atvinnumaður seinna árið 2001 og varð í 3. sæti á fyrsta móti sem hann spilaði á, á PGA, Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Berglind, GR og Ingunn, GKG, luku leik á Lady Pirates
Berglind Björnsdóttir, GR og UNCG bætti sig með hverjum hring á Lady Pirates Intercollegiate mótinu í Norður-Karólínu, sem lauk í gær. Berglind spilaði hringina 3 á samtals +18 yfir pari (82 77 75) þ.e. samtals 234 höggum. Berglind deildi 62. sætinu með 3 öðrum. Ingunn Gunnarsdóttir, GKG og Furman var spilaði í sama móti en var langt frá sínu besta. Hún spilaði hringina 3 á +24 (76 81 83) samtals 240 höggum og deildi 82. sætinu með stúlku frá College of Charleston, Regina Rosas. UNCG háskóli Berglindar varð í 4. sæti en Furman háskóli Ingunnar deildi 8. sætinu með James Madison háskóla. Þátttakendur í mótinu voru 103 frá 20 háskólum. Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Kristján Þór, GKJ sigraði á Harold Funston Invitational
Kristján Þór Einarsson sigraði í gær, á Harold Funston Invitational, sem fram fór í Texas. Kristján var á -9 undir pari, samtals 133 höggum (65 68). Munaði 3 höggum á Kristjáni Þór og James Glenn, úr Sam Houston State University, sem varð í 2. sæti, en Houston háskólinn, sem lið varð í 1. sæti. Nicholls, háskóli Kristjáns Þórs lenti í 3. sæti í liðakeppninni. Þetta er 3. sigur Kristjáns Þórs í bandaríska háskólagolfinu en hann vann 2 mót í fyrra á síðasta keppnistímabili. Sjá má úrslit í Harold Funston Invitational hér: HAROLD FUNSTON INVITATIONAL








