Ragnheiður Jónsdóttir | október. 15. 2011 | 21:00

Kylfingar 19. aldar – Nr. 2 Tom Morris yngri – I. hluti af 3

Tom Morris yngri  f. 20. apríl 1851 – d. 25. desember 1875 líka þekktur sem hinn ungi Tom Morris var einn af frumkvöðlum atvinnumennsku í golfi og var fyrsta undarbarnið í sögu golfsins. Hann vann Opna breska 4 sinnum í röð, sem engum öðrum hefir tekist og hann var búinn að afreka þetta allt við 21 árs aldurinn. Tom Morris yngri var fæddur í „vöggu golfíþróttarinnar”, St. Andrews, Fife í Skotlandi og dó þar á jóladag 1875, aðeins 24 ára. Pabbi hans Old Tom Morris var golfvallarstarfsmaður og golfkennari á St. Andrews linksaranum. Fyrsta sigur sinn vann Tom Morris yngri, 1868, þá 17 ára og varð þar með yngsti meistari Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 15. 2011 | 20:00

Evróputúrinn: Cabrera-Bello í 1. sæti eftir 3. dag

Rafael Cabrera-Bello frá Maspalomas golfklúbbnum á Gran Canary leiðir fyrir lokadag Open Portugal Masters í Vilamoura. Hann spilaði glæsilegt golf í dag – var á 64 höggum – en skorkortið ansi skrautlegt – 2 flottir ernir á 5. og 12. braut litu dagsins ljós, en líka 5 fuglar og 1 skolli á 7. braut. Cabrera-Bello, sem vann Opna austurríska 2009 með lokahring upp á 60 högg sagði: „Mér leið virkilega vel með þetta, ég hef verið að spila ágætlega nokkra síðustu daga.“ „Markmið mitt í dag var að reyna að gera það sama (og í gær). Ernirnir báðir hvöttu mig og ég held að spilið mitt hafi verið nokkuð þétt.“ Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 15. 2011 | 19:30

Sólskinstúrinn: McGuigan leiðir fyrir lokadag Zambía Open

Doug McGuigan leiðir fyrir lokadag Zambía Open.  Hann kom inn á glæsilegum 66 höggum í dag, er því samtals búinn að spila á -13 undir pari þ.e. 203 höggum (69 68 66).  McGuigan flaug í gegnum 1. stig Q-school, sem haldið var í Portúgal og það virðist hafa veitt honum sjálfstraust í Zambíu. Haldi fram sem horfi gætum við séð McGuigan á Evróputúrnum á næsta ári. Öðru sætinu deila Svisslendingurinn Robert Wiederkehr og Bradford Vaughan, sem leiddi í gær og eru þeir aðeins 1 höggi á eftir McGuigan. Í 4. sæti er Jean Hugo og í því 5. Toto Thimba. Hér má sjá stöðuna á Zambía Open eftir 1. dag: Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 15. 2011 | 15:30

LPGA: Na Yeon Choi leiðir í Malasíu eftir 3. dag

Nr. 4 á Rolex-heimslistanum, Na Yeon Choi, hefir tekið forystuna á LPGA Sime Darby mótinu í Malasíu. Na Yeon kom inn á 67 höggum og er því samtals á -12 undir pari (66 68 67) eða samtals 201 höggi.  Na Yeon fékk 5 fugla og 1 skolla á par-3, 5. brautina. Forystan er naum því aðeins 1 höggi á eftir er bandaríski kylfingurinn Brittany Lang (66 67 69) en hún virðist spila verr með hverjum hring.  Í 3. sæti er hin spænska Azahara Munoz, aðeins 2 höggum á eftir Na Yeon. Fjórða sætinu deila 3 kylfingar, allar á samtals 205 höggum:  Nr. 1 í heimi Yani Tseng, fyrirmynd hennar Se Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 15. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingar dagsins: Eygló Myrra og Ólafía Þórunn – 15. október 2011

Tveir afrekskylfingar Íslands eiga afmæli sama daginn, þ.e. í dag 15. október: Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO, sem er við nám í San Francisco háskóla í Kaliforníu og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, þrefaldur Íslandsmeistari í ár og nemi við Wake Forest í Norður-Karólínu. Eygló Myrra á stórafmæli í dag er 20 ára. Hún fæddist 15. október 1991 í Óðinsvéum í Danmörku, Ólafía Þórunn er hins vegar 1 ári yngri og fæddist í Reykjavík, 15. október 1992. Golf 1 óskar afmæliskylfingunum innilega til hamingju með afmælið! Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru:  Earl Richard Stewart, Jr. (f. 15. október 1921 – d. 11. júlí 1990); Ove Bertil Sellberg, f. 15. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 15. 2011 | 09:00

Martin Kaymer meðal kylfinga sem ekki rís undir væntingum

Alastair Tait golfpenni Golfweek skrifar grein með ofangreindri fyrirsögn. Greinin sem fylgir eru svo eftirfarandi í lauslegri þýðingu: „Allt í allt hefir Martin Kaymer átt frábært ár. Hann er sem stendur í 5. sæti á peningalista Evróputúrsins með meir en €1,9 milljónir í tekjur. Hann hefir unnið einu sinni á árinu, á Abu Dhabi HSBC Golf Championship og er með aðra 5 topp-10 árangra. Hvað sem öðru líður, þá bjuggumst við við meiru af sigurvegara PGA Championship á síðasta ári. Allt fírumfárið í kringum unga Þjóðverjann var gífurlegt… og réttlætanlegt. Sigurinn í Abu Dhabi í byrjun árs gerði ekkert til að deyfa væntingarnar. Þvert í móti. Við bjuggumst að fullu Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 15. 2011 | 07:00

Hver er kylfingurinn Billy Horschel?

Nýliðinn Billy Horschel hefir nú tekið forystuna á McGladreys Classic mótinu á PGA mótaröðinni, þegar mótið er hálfnað. Þetta mót fær heilmikla athygli vegna þess að Webb Simpson spilar á því – en með góðu gengi þar kemst Webb upp fyrir Luke Donald á peningalista PGA…. en aðeins í skamman tíma því Luke hefir tilkynnt að hann ætli ekki að láta færið að koma sér í sögubækurnar ganga sér úr greipum baráttulaust. Luke keppir nefnilega að því að verða fyrstur kylfinga til að vera efstur á peninaglistum bæði PGA og Evrópumótaraðarinnar á sama keppnistímabilinu.  Hann hafði ekki ætlað sér að taka þátt í lokamóti PGA, í Disney í næstu viku Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 15. 2011 | 02:00

PGA: Billy Horschel leiðir þegar McGladreys er hálfnað

Það var nýliðinn Billy Horschel sem skaust í 1. sætið á lokametrum 2. hrings McGladreys á  Sea Island. Hann er búinn að spila báða hringina á samtals -12 undir pari, þ.e. samtals 128 höggum (64 64). Billy Horschel er nr. 139 á peningalistanum og er með góðri frammistöðu að reyna að halda kortinu sínu á PGA, en til þess þarf hann að vera meðal efstu 125. Eftir hringinn sagði Horschel: „Ég hef engar áhyggjur af því að vera nr. 139 – ég hef áhyggjur ef ég spila ekki vel hér.” Webb Simpson og Michael Thompson deila 2. sætinu. Báðir eru búnir að spila á – 10 undir pari á samtals Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 14. 2011 | 20:00

Kylfingar 19. aldar: Nr. 1 Old Tom Morris – seinni hluti –

Hápunktar keppnisferilsins Old Tom Morris vann sem golfvallarstarfsmaður, kylfu- og boltasmiður, golfkennari og golfvallarhönnuður auk þess að spila í holukeppnum og golfkeppnum almennt. Hann varð í 2. sæti á fyrsta Opna breska mótinu 1860 og vann árið á eftir. Hann vann þrjá frekari sigra á Opna breska 1862, 1864 og 1867.  Met hans sem elsti sigurvegari Opna breska stendur enn, 46 ár. Eins eru hann og sonur hans, Tom Morris yngri, einu feðgarnir sem náð hafa 1. og 2. sæti í mótinu. Old Tom Morris átti metið yfir sigur með mesta mun í risamóti (13 högg í Opna breska 1872) allt þar til Tiger Woods sló það árið 2000 í Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 14. 2011 | 17:30

PGA: Donald spilar í Disney

Nr. 1 í heiminum, Luke Donald, ætlar ekki að gefa eftir peningalistatitilinn án baráttu. Luke ákvað að skrá sig í lokamót PGA, sem fram fer í næstu viku í Disney, sem svar við spili Webb Simpson í McGladrey Classic mótinu á Sea Island. Luke náði fugli á síðustu holunni á Tour Championship og deildi 3. sætinu, með öðrum og var í sætinu fyrir ofan Simpson og munaði  $68,971.  (Það gæti breyst með góðu gengi Simpson á McGladrey´s sem allt lítur út fyrir núna en Simpson leiðir eftir 1. dag í mótinu ásamt Zack Miller). Donald er að keppa að því að verða fyrsti kylfingurinn til þess að toppa peningalistana bæði á PGA Lesa meira