
LPGA: Na Yeon Choi leiðir í Malasíu eftir 3. dag
Nr. 4 á Rolex-heimslistanum, Na Yeon Choi, hefir tekið forystuna á LPGA Sime Darby mótinu í Malasíu.
Na Yeon kom inn á 67 höggum og er því samtals á -12 undir pari (66 68 67) eða samtals 201 höggi. Na Yeon fékk 5 fugla og 1 skolla á par-3, 5. brautina.
Forystan er naum því aðeins 1 höggi á eftir er bandaríski kylfingurinn Brittany Lang (66 67 69) en hún virðist spila verr með hverjum hring. Í 3. sæti er hin spænska Azahara Munoz, aðeins 2 höggum á eftir Na Yeon.
Fjórða sætinu deila 3 kylfingar, allar á samtals 205 höggum: Nr. 1 í heimi Yani Tseng, fyrirmynd hennar Se Ri Pak og bandaríska stúlkan Stacy Lewis, sem var í forystu í gær.
Í 7. sætinu er Suzann Pettersen og því 8. deila stórkanónurnar Paula Creamer og Michelle Wie. IK Kim er síðan í 10. sæti og þýska W-7 módelið Sandra Gal er í 11. sætinu. Af öðrum keppendum mætti helst nefna að Caroline Hedwall deilir 15. sæti með 3 öðrum, sem spilað hafa hringina 3 á 211 höggum og eru því 10 höggum á eftir Na Yeon.
Með því að smella hér má sjá stöðuna eftir 3. dag: SIME DARBY LPGA MALASÍA
- janúar. 21. 2021 | 10:00 Orð Justin Thomas eftir að Ralph Lauren rifti styrktarsamningi við hann
- janúar. 20. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Silja Rún Gunnlaugsdóttir – 20. janúar 2021
- janúar. 20. 2021 | 10:00 Paulina Gretzky talar um samband sitt við DJ
- janúar. 20. 2021 | 09:30 Thorbjørn Olesen með Covid-19
- janúar. 20. 2021 | 07:30 Spurning hvort Olympíuleikarnir fari fram 2021?
- janúar. 20. 2021 | 07:00 Haraldur Júlíusson látinn
- janúar. 20. 2021 | 06:00 GM: 40 ár frá stofnun GKJ
- janúar. 19. 2021 | 19:00 GA: Veigar hlaut háttvísibikarinn 2020
- janúar. 19. 2021 | 18:00 Paige Spiranac segir Tiger ekkert skrímsli þrátt fyrir framhjáhald
- janúar. 19. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Tommy Fleetwood – 19. janúar 2021
- janúar. 19. 2021 | 10:00 PGA: Jon Rahm dregur sig úr móti vikunnar
- janúar. 18. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðný María Guðmundsdóttir – 18. janúar 2021
- janúar. 18. 2021 | 12:00 Hver er kylfingurinn: Kevin Na?
- janúar. 18. 2021 | 01:30 PGA: Na sigraði á Sony Open
- janúar. 18. 2021 | 00:01 Thomas missir Ralph Lauren sem styrktaraðila