Ragnheiður Jónsdóttir | október. 17. 2011 | 02:00

PGA: Ben Crane sigurvegari McGladreys

Það var Bandaríkjamaðurinn Ben Crane sem sigraði landa sinn, Webb Simpson í umspili á Sea Island fyrir 1. sætið á McGladreys mótinu. Báðir voru að loknum hefðbundnum leiktíma búnir að spila á -15 undir pari, 265 höggum; Ben Crane (65 70 67 63) og Webb Simpson (63 67 69 66). Ben Crane kom sér í sigurstöðu með glæsilegum lokahring upp á 63 högg, en á skorkorti hans voru 8 fuglar og 1 skolli.  M.a. fékk hann 4 fugla í röð á 14.-17. braut Ben Crane sigraði Webb Simpson síðan á 2. holu umspils, þar sem Webb missti stutt 1 meters pútt. Í 3. sæti varð Michael Thompson á -14 undir Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2011 | 21:00

Kylfingar 19. aldar – Nr. 2 Tom Morris yngri – II. hluti af 3

Ungur meistari Tom Morris yngri spilaði í fyrsta sinn á Opna breska 14 ára, árið 1865, stóð sig ágætlega en hætti og lauk því ekki keppni. Hann varð í 9. sæti árið 1866, 18 höggum á eftir sigurvegaranum og 1867 var Tom yngri í 4. sæti á Opna breska. Sama ár ferðaðist hann til Carnoustie til þess að taka þátt í opnu móti sem laðaði að sér 32 keppendur, en það var stærsta mót sem sést hafði á þeim tíma. Tom Morris yngri, þá 16 ára, deildi 1. sætinu með Willie Park eldri (sem átti eftir að sigra 4 sinnum á Opna breska) en vann Willie og Bob Andrew síðan Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2011 | 20:30

LPGA: Na Yeon Choi vann Sime Darby-mótið

Na Yeon Choi frá Suður-Kóreu vann Sime Darby-mótið í Malasíu, í dag. Na Yeon var á – 15 undir pari, og á samtals 269 höggum (66 68 67 68). Hún vann nr. 1 á Rolex-heimslistanum, Yani Tseng, með 1 höggi. Með sigri sínum á Kuala Lumpur Golf and Country Club vann Na Yeon sér inn $285,000. Í 3. sæti var Azahara Munoz frá Spáni á 3 höggum á eftir Na Yeon Choi. Í 4. sæti varð Se Ri Pak og því 5. deildu bandarísku kylfingarnir Stacy Lewis og Brittany Lang, sem búnar voru að leiða nokkrum sinnum á fyrri keppnisdögum. Til þess að sjá úrslit á Sime Darby mótinu smellið HÉR:  Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2011 | 19:00

Evróputúrinn: Tom Lewis sigraði

Það var hinn ungi Tom Lewis, sem vakti mikla athygli s.l. sumar eftir spil við Tom Watson á Opna breska sem stóð uppi sem sigurvegari á Opna portúgalska (ens.: Portugal Masters) í Vilamoura. Tom spilaði á -21 undir pari, samtals 267 höggum (70 64 68 65).  Í 2. sæti varð Rafael Cabrera-Bello, en hann átti arfaslakan hring í dag og varð 2 höggum á eftir Tom. Rafael spilaði á -19 undir pari, samtals 269 höggum (69 65 64 71). Tom Lewis hlaut € 416.660,- í verðlaunafé en Rafael € 277.770,- Til þess að sjá úrslit á mótinu smellið HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2011 | 18:00

Afmæliskylfingar dagsins: Agnes Ingadóttir, GKJ og Stefán Teitur Þórðarson, GL – 16. október 2011

Það eru þau Agnes Ingadóttir, GKJ og Stefán Teitur Þórðarson, GL, sem eiga sama afmælisdag, 16. október.  Agnes er fædd 16. október 1965 á Akureyri, en Stefán Þórður 16. október 1998 á Akranesi og er því 13 ára í dag. Þetta er 3. sumar Agnesar í golfinu en hún er með 26,9 í forgjöf en Stefán Teitur hefir verið í golfi frá 8-9 ára aldri og er með 14,3 í forgjöf. Afmæliskylfingarnir eiga a.m.k. eitt annað sameiginlegt en afmælisdaginn; þau fóru nefnilega bæði í fyrsta sinn á golfferlinum, holu í höggi í sumar; Stefán Teitur á móti Arionbankamótaraðar unglinga á 16. braut Hamarsvallar í Borgarnesi og Agnes á 1. braut Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2011 | 12:00

Viðtalið: Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir, GHR.

Um miðjan maí, þegar allt var að vakna til lífsins þetta herrans ár 2011 fór Golf 1 af stað með að taka viðtöl við íslenska kylfinga, þ.e. leggja fyrir þá á fjórða tug staðlaðra spurninga, með örlitlum frávikum í hvert sinn.  Hér fer eitt af fyrstu viðtölunum, en viðmælandi er kona sem er flestöllum kylfingum landsins er að góðu kunn, Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir, þ.e. þeirra sem spilað hafa á Strandarvelli á Hellu. Þetta er Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir, en hún fagnaði m.a. stórafmæli fyrir u.þ.b. mánuði síðan. Katrín er m.a. þrefaldur klúbbmeistari GHR. Hún er ættuð frá Hvolsvelli þar sem hún hefir búið alla tíð.  Hér eru spurningarnar og svör Katrínar: Fullt Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2011 | 10:00

Hver er kylfingurinn Michael Thompson?

Michael Thompson er nú með 1 höggs forystu á McGladreys mótinu sem fram fer á Sea Island í Georgíu, á 1 högg á nýliðann Billy Horschel og 2 högg á þá Webb Simpson og Trevor Immelman frá Suður-Afríku.  Það verður gaman að sjá hvort einhver þessara 4 sendur uppi sem sigurvegari í kvöld. Michael fæddist 16. apríl 1985 og er því 26 ára.  Hann var í University High School í Tucson, Arizona á árunum 1999-2003.  Meðan hann var þar vann hann Class 4A state team championship árið 2003, og var valinn  kylfingur ársins meðal menntskælinga árin 2002 og 2003.  Michael var síðan í Tulane háskóla í Louisiana tvö keppnistimabil, allt Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2011 | 07:00

Champions Tour: Fred Couples leiðir á AT&T – setti vallarmet með 62 högg!

Fred Couples, liðsstjóri liðs Bandaríkjanna í Forsetabikarnum átti einn besta hring ferils síns á AT&T mótinu á Champions Tour , sem fram fer nú um helgina – glæsileg 62 högg! Eftir 36 holur spilaðar er Couples með 7 högga forystu á næsta mann, Mark Calcavecchia. Couples er á samtals -17 undir pari, 127 höggum (65 62). Fred Couples fékk fugla á 6 af fyrstu 7 holunum og lauk leik á -10 undir pari. Allt í allt fékk Couples 12 fugla einnig 6 á seinni 9, þar sem skorið var 30.  Með þessu setti Couples nýtt vallarmet á TPC San Antonio Canyon golfvellinum. „Þetta voru bara margir fuglar, sem maður verður Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 15. 2011 | 21:30

PGA: Michael Thomspon leiðir á Sea Island fyrir lokahringinn

Það er Michael Thompson, sem er í 1. sæti á McGladreys á Sea Island í Georgíu. Thompson kom í hús á 67 höggum og er samtals búinn að spila á -13 undir pari þ.e. samtals 197 höggum (65 65 67). Í 2. sæti, aðeins 1 höggi á eftir er Billy Horschel, sá sem leiddi í gær.  Þriðja sætinu deila Webb Simpson og Trevor Immelman frá Suður-Afríku á samtals 199 höggum, þ.e. 2 höggum á eftir Thompson. Til þess að sjá stöðuna á McGladreys eftir 3. dag smellið HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 15. 2011 | 21:15

Heimsins stysta ævintýri fyrir konur?

Stundum er það svo að í leit að skemmtilegu golfefni fyrir lesendur Golf 1 á netinu þá er rekist á alveg hreint smellið efni.  Sumt er ekki við hæfi , annað enn minna og enn eitthvað algerlega út í hött að birta á golfsíðu. Þar sem er laugardagur og allir í skapi að lesa eitthvað, sem snertir golf ekki nema í röndina, þá er þetta birt hér þ.e. „heimsins stysta ævintýri fyrir konur“ Á ensku er ævintýrið svohljóðandi: „Á guy asked a girl: „Will you marry me?“  The girl answered: „NO.“ And the girl lived happily ever-after and went shopping, dancing, camping, drank martinis, always had a clean house, never Lesa meira