Ragnheiður Jónsdóttir | október. 15. 2011 | 19:30

Sólskinstúrinn: McGuigan leiðir fyrir lokadag Zambía Open

Doug McGuigan leiðir fyrir lokadag Zambía Open.  Hann kom inn á glæsilegum 66 höggum í dag, er því samtals búinn að spila á -13 undir pari þ.e. 203 höggum (69 68 66).  McGuigan flaug í gegnum 1. stig Q-school, sem haldið var í Portúgal og það virðist hafa veitt honum sjálfstraust í Zambíu. Haldi fram sem horfi gætum við séð McGuigan á Evróputúrnum á næsta ári.

Öðru sætinu deila Svisslendingurinn Robert Wiederkehr og Bradford Vaughan, sem leiddi í gær og eru þeir aðeins 1 höggi á eftir McGuigan. Í 4. sæti er Jean Hugo og í því 5. Toto Thimba.

Hér má sjá stöðuna á Zambía Open eftir 1. dag: ZAMBÍA OPEN