Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2011 | 17:00

Allir í sveit GR spiluðu undir 80 höggum – en Haraldur Franklín best á 74 höggum!

Allir í sveit GR bættu sig frá því í gær á Evrópumóti klúbba, sem fram fer í Tyrklandi. Arnar Snær spilaði á 79 höggum; Guðmundur Ágúst á 78 og Haraldur Franklín spilaði best á 74 höggum.  Sveit GR hækkaði sig þar með úr 22. sætinu sem sveitin var í, í gær, í 18 sætið. Þátttakendur eru alls 87 frá 29 klúbbum víðsvegar um Evrópu. Golf 1 óskar sveit GR góðs gengis á morgun. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag í Tyrklandi smellið HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2011 | 16:30

Evróputúrinn: Sergio Garcia heillar á heimavelli – er í 1. sæti í Castellón

Spánverjinn Sergio Garcia spilaði hreint 1. flokks golf  í dag og jafnaði glæsilegan hring Svíans Alexander Norens upp á 63 högg. Sergio er þar með kominn í 1. sæti á Castelló Masters nú þegar mótið er hálfnað, er samtals á -12 undir pari, á sléttum 130 höggum (67 63). Í 2. sæti er Alexander Noren eftir hringinn glæsilega í dag upp á 63 högg, er samtals á -10 undir pari og 132 höggum (69 63). Þriðja sætinu deila forystumaður gærdagsins, Englendingurinn Ross McGowan, Skotinn Gary Orr og Ástralinn Marcus Fraser. Hér má sjá stöðuna þegar Castelló Masters er hálfnað: CASTELLÓ MASTERS

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2011 | 16:00

Golfmót helgarinnar

Þrátt fyrir að komið sé fram í seinni part október eru þó nokkur golfmót, sem fram fara um helgina, þ.e. 22. og 23. október 2011, hér á landi, já rétt, hér á Íslandi. Á morgun, laugardaginn 22. október er hægt að skrá sig í eftirfarandi mót: 1. Þriðja mótið í Ecco haustmótaröð GS á Hólmsvelli í Leiru. 2. Á Vatnsleysunni er 8. mótið af 9 í haustmótaröð GVS á Kálfatjarnarvelli. 3. Hjá golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ fer fram 3. vetrarmót klúbbsins. 4. Í Grindavík er 1. mótið í nýrri Skálamótaröð golfklúbbs Grindavíkur, en ágóðinn af mótsgjöldum rennur til byggingar nýs skála við nýjan 18 holu golfvöll þeirra Grindvíkinga.  Mótsgjald er Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2011 | 15:30

Sólskinstúrinn: Darren Fichardt efstur fyrir lokadaginn á Suncoast Classic

Í gær hófst í Durban Country Club Kwazulu-Natal, Suncoast Classic mótið.  Darren Fichardt er efstur eftir 2. dag, er samtals á -9 undir pari, 135 höggum (70 65). Í 2. sæti, 4 höggum á eftir Darren voru Tjaart van der Walt og Keenan Davidse á -5 undir pari, samtals 139 höggum, Tjaart (69 70) og Keenan (68 71). Til þess að skoða stöðuna eftir 2. dag smellið HÉR:

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2011 | 14:20

LPGA: Anna og Azahara leiða eftir 2. dag í Taíwan

Í Sunrise Golf & Country Club í Yang Mei, Taoyuan í Taíwan fer nú um helgina fram Sunrise LPGA Taiwan Championship. Eftir 2. dag mótsins eru það hin sænska Anna Nordqvist og hin spænska Azahara Muñoz, sem leiða á samtals – 7 undir pari, þ.e. samtals 137 höggum; Anna (69 68) og Azahara (71 66). Hringur Azahara var sérlega glæsilegur í dag en hún spilaði skollafrítt og fékk 4 fugla og örn á par-5, 6. brautinni. Þriðja sætinu deila löndurnar Candie Kung og nr. 1 í heiminum og leikmaður ársins 2011 á LPGA,  Yani Tseng, báðar 2 höggum á eftir forystunni. Hér má sjá stöðuna eftir 2. dag: SUNRISE LPGA Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2011 | 14:00

GSG: Takið 10. des frá – þá fer fram árlegt Skötumót í Sandgerði!

Þann 10. desember n.k. er fyrirhugað að halda Skötumót í Sandgerði. Um hefðbundið golfmót verður að ræða, svo framarlega sem veður leyfir og verður það auglýst síðar. Þar á eftir er boðið upp á ýmsar kræsingar.  Á boðstólum verður verulega kæst, vestfirsk Skata og fyrir matgikki siginn fiskur og meðlæti.  Þeir sem ekki vilja spila golf geta engu að síður mætt og fengið sér skötu og með því. Takið daginn frá og mætið á Skötumót í Sandgerði!

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2011 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Phillip Price- 21. október 2011

Velski kylfingurinn John Phillip Price er afmæliskylfingur dagsins í dag. Phillip fæddist 21. október 1966 í Pontypridd og er því 45 ára í dag.  Hann gerðist atvinnumaður í golfi 1989 og hefir á ferli sínum sigrað 4 sinnum, þar af 3 sinnum á Evróputúrnum.   Hann komst á Evróputúrinn keppnistímabilið 1991 eftir að hafa komist í gegnum Q-school 1990. Besta ár hans á túrnum var 2000 þegar hann varð í 8. sæti yfir bestu kylfinga túrsins (Order of Merit). Annað skipti tókst honum að verða meðal 10 bestu 2003, þegar hann varð í 10. sæti. Hann reyndi fyrir sér á PGA 2005, en gekk ekki nógu vel og var kominn Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2011 | 12:00

Hvað var í pokanum hjá Ben Crane á McGladreys?

Eftirfarandi var í pokanum hjá Ben Crane í McGladrey Classic 2011: Dræver: Titleist 910D2 7.5* (B-2 setting) með Mitusbishi Bassara  skafti W 50-x fyrir Titleist, 46″, D5                           swignweight, New Decade Green/Black 60R (lógó-ið að neðan) 3-tré: TaylorMade Golf 15* 5-tré: Titleist 910F 17* með Mitusbishi Diamana Blueboard 93 skafti Blendingur: Titleist 910H 21* með UST Axiv Core 100 skafti Járn: Titleist AP2 710 5-P með TT Dynamic Gold S400 skafti Wedge-ar: Vokey Design 252.12 (beygt í 51°), SM56-15 (beygt í 55°), 60-E (beygt í 59°) með TT Dynamic Gold S400 sköftum Pútter: Odyssey Bolti: Titleist Pro V1 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2011 | 11:40

Evróputúrinn: Tom Lewis hætti þátttöku í Castelló Masters vegna vírusar

Nýstirnið Tom Lewis dró sig úr Castelló Masters mótinu á Spáni nú rétt í þessu vegna flensuvírusar, sem hefir verið að há honum. Þessi frábæri 20 ára kylfingur (Tom Lewis) frá  Welwyn Garden City, sem vann Portugal Masters og fyrsta Evrópumótssigur sinn í aðeins 3 störtum og vinningstékk upp  á £375,000, náði í gær, þrátt fyrir slappleika að leika á pari, 71 höggi. Í dag sá hann að hann gæti ekki haldið áfram og dró sig úr mótinu. Gestgjafi mótsins, Sergio Garcia og Matteo Manassero, sem á titil að verja verða því að sjá af spilafélaga í holli sínu í dag. Þegar þetta er ritað (kl. 11:40) er Garcia T-8 á  -5 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2011 | 11:00

PGA: Donald efstur í Disney

Eiginlega ætlaði Luke Donald ekki að taka þátt í síðasta mótinu á PGA mótaröðinni bandarísku, Children´s Miracle Network Hospital Classic, sem fram fer í Disney í Flórída (hér eftir nefnt Disney-mótið). En gott gengi Webb Simpson á McGladreys í Sea Island í Georgíu varð til þess að Webb skaust fram úr honum og trónir nú í 1. sæti PGA peningalistans, með $363,029 forskot á Luke. Luke Donald ætlar að reyna að verða í 1. sæti á peninglistunum beggja vegna Atlantsála og því keppnir hann í Disney-mótinu og er í holli með Webb fyrstu 2 daga mótsins. Og mótið byrjar vel hjá Luke Donald. Hann kom inn á 66 höggum í gær, er Lesa meira