
Afmæliskylfingur dagsins: Phillip Price- 21. október 2011
Velski kylfingurinn John Phillip Price er afmæliskylfingur dagsins í dag. Phillip fæddist 21. október 1966 í Pontypridd og er því 45 ára í dag. Hann gerðist atvinnumaður í golfi 1989 og hefir á ferli sínum sigrað 4 sinnum, þar af 3 sinnum á Evróputúrnum. Hann komst á Evróputúrinn keppnistímabilið 1991 eftir að hafa komist í gegnum Q-school 1990. Besta ár hans á túrnum var 2000 þegar hann varð í 8. sæti yfir bestu kylfinga túrsins (Order of Merit). Annað skipti tókst honum að verða meðal 10 bestu 2003, þegar hann varð í 10. sæti.
Hann reyndi fyrir sér á PGA 2005, en gekk ekki nógu vel og var kominn aftur til Evrópu 2006. Phillip hefir verið meðal topp 50 á heimslistanum. Phillip átti m.a. sæti í Ryder Cup liði Evrópu 2002 og vann Phil Mickelson á lokadeginum í tvímenningi og tryggði Evrópu ómetanlegt stig og sögulegan sigur 15 1/2 – 12 1/2 á Belfry.
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Willy Anderson, 21. október 1879; Jimmy Anderson, f. 21. október 1910 – d. janúar 1986); Jarrod Lyle, 21. ágúst 1981 (30 ára).
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 13. 2023 | 21:00 Íslandsmótið 2023: Logi hlaut Björgvinsskálina!
- ágúst. 13. 2023 | 19:30 Íslandsmótið 2023: Ragnhildur og Logi Íslandsmeistarar!!!
- ágúst. 12. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2023)
- ágúst. 7. 2023 | 23:00 Birgir Björn sigurvegari Einvígisins á Nesinu 2023
- ágúst. 1. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur Gíslason og Guðmundur Liljar Pálsson – 1. ágúst 2023
- ágúst. 1. 2023 | 08:18 Ryder Cup 2023: Stewart Cink 5. varafyrirliði liðs Bandaríkjanna
- júlí. 31. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kolbrún Rut Evudóttir – 31. júlí 2023
- júlí. 31. 2023 | 12:00 European Young Masters: Markús Marelsson varð í 2. sæti!!! – Glæsilegur!!!
- júlí. 30. 2023 | 23:59 PGA: Lee Hodges sigurvegari 3M Open
- júlí. 30. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bergsteinn Hjörleifsson – 30. júlí 2023
- júlí. 29. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (30/2023)
- júlí. 29. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Signý Marta Böðvarsdóttir – 29. júlí 2023
- júlí. 28. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hinrik Gunnar Hilmarsson og Þórdís Lilja Árnadóttir – 28. júlí 2023
- júlí. 27. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jordan Spieth – 27. júlí 2023
- júlí. 26. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Mick Jagger, Allen Doyle, Sigríður Rósa Bjarnadóttir og Daniel Hillier – 26. júlí 2023