Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2011 | 17:00

Allir í sveit GR spiluðu undir 80 höggum – en Haraldur Franklín best á 74 höggum!

Allir í sveit GR bættu sig frá því í gær á Evrópumóti klúbba, sem fram fer í Tyrklandi. Arnar Snær spilaði á 79 höggum; Guðmundur Ágúst á 78 og Haraldur Franklín spilaði best á 74 höggum.  Sveit GR hækkaði sig þar með úr 22. sætinu sem sveitin var í, í gær, í 18 sætið. Þátttakendur eru alls 87 frá 29 klúbbum víðsvegar um Evrópu.

Golf 1 óskar sveit GR góðs gengis á morgun.

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag í Tyrklandi smellið HÉR: