Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2011 | 20:30

Kylfingar 19. aldar: nr. 4 – Willie Park eldri

William „Willie“ Park, eldri (f. 30. júní 1833 – d. 25. júlí 1903) fæddist í Musselburgh í Skotlandi. Líkt og margir atvinnukylfingar í árdaga nútíma golfs þá byrjaði Wille eldri sem kaddý. Seinna rak hann sinn eiginn golfverkfæra bissness. Á vellinum vann hann sér inn peninga í svonefndum áskorendamótum (ens. Challenge matches), gegn mönnum á borð við Old Tom Morris, Willie Dunn og Allan Robertson, en þetta var eitt vinsælasta keppnisform í mótum á hans tíma. Willie Park eldri var hávaxinn, sterkbyggður maður, högglangur og framúrskarandi púttari, en stundum lenti hann í vandræðum vegna of aggressívs leiks. Hann fór fram úr hinum eldri Willie Dunn, 20 ára að aldri og ferðaðist Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2011 | 19:30

Haraldur Franklín spilaði best af liði GR á Evrópumóti klúbba

Sveit GR tekur þátt í Evrópumóti golfklúbba í National Golf Club, Antalya í Tyrklandi. Sveitina skipa þeir Arnar Snær Hákonarson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús. Eftir 1. keppnisdag er sveitin í 22. sæti af 29 klúbbum, sem þátt taka. Sveit GR spilaði á samtals 14 höggum yfir pari.  Haraldur Franklín spilaði best af sveit GR, kom inn á 78 höggum, þ.e. + 6 yfir pari.  Arnar Snær og Guðmundur Ágúst spiluðu á 80 höggum. Golf 1 óskar sveit GR góðs gengis á morgun! Sjá má stöðuna á Evrópumóti klúbba með því að smella HÉR:

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2011 | 18:52

Óvenjulegir fylgihlutir golfsins

Það eru alltaf að koma á markað nýjar græjur og fylgihlutir, sem teljast nauðsynlegir í golfútbúnaðnum.  Einn golfskóa framleiðandi auglýsti t.d. „Þið munuð e.t.v. aldrei ná sveiflu Ben Hogan, en þið getið verið í golfskóm, sem hann myndi hafa verið stoltur af!“ Hafið þið nokkurn tímann heyrt um golfderhúfur fyrir sköllótta? Golf Digest tók saman lista yfir 10 óvenjulega fylgihluti í golfútbúnaðnum; sumt er kannski ekki svo óvenjulegt heldur fremur nytsamlegt eins og t.d. fjarlægðarmælirinn, sem bæði notar laser og GPS frá Bushnell, svokallaður blendingur. Sjá má lista Golf Digest með því að smella HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2011 | 17:40

Evróputúrinn: Ross McGowan leiðir í Castellón

Í dag byrjaði Castelló Masters í Castellón, í Valencia á Spáni.  Það er Englendingurinn Ross McGowan sem leiðir eftir fyrsta dag, kom inn á -7 undir pari, glæsilegum 64 höggum. Í 2. sæti eru Fabrizio Zanotti frá Parguay og Englendingurinn Richard McEvoy, báðir á -5 undir pari hvor. Fjórða sætinu deila 7 kylfingar, þ.á.m. sá sem var í forystu lengst af í dag George Coetzee frá Suður-Afríku og heimamaðurinn Sergio Garcia; allir á -4 undir pari. Í 11. sætinu eru 6 kylfingar, m.a. Suður-Afríkumaðurinn Thomas Aiken, allir á -3 undir pari og 17. sætinu deila 10 kylfingar, sem allir eru á -2 undir pari, en þar á meðal er sá Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2011 | 17:30

LPGA: Ai og Yani leiða í Taiwan

Í dag hófst í Sunrise Golf & Country Club í Yang Mei, Taoyuan í Taíwan, Sunrise LPGA Taiwan Championship. Eftir 1. dag mótsins leiða japanski kylfingurinn Ai Miyazato og heimakonan, leikmaður ársins á LPGA og nr. 1 í heiminum, Yani Tseng.  Báðar, Ai og Yani fengu 5 fugla og 1 skolla hvor. Þriðja sætinu deila bandarísku stúlkurnar Morgan Pressel og Jennifer Song og hin sænska Anna Nordqvist, allar á -3 undir pari. Hér má sjá stöðuna eftir 1. dag: SUNRISE LPGA TAIWAN CHAMPIONSHIP

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2011 | 14:00

Afmæliskylfingur dagsins: Veronica Zorzi – 20. október 2011

Það er ítalski kylfingurinn Veronica Zorzi, sem er afmæliskylfingur dagsins í dag. Veronica fæddist í Veróna á Ítalíu (heimabæ Matteo Manassero) 20. október 1980 og er því 31 ára í dag. Veronica gerðist atvinnumaður í golfi 10. október 2000. Hún hefir spilað á Evrópumótaröð kvenna (LET = Ladies European Tour) frá árinu 2001. Veronica hefir sigrað tvívegis á Evrópumótaröð kvenna, þ.e. á Vediorbis Open de France Dames árin 2005 og 2006.  Besti árangur Veronicu í ár á Evrópumótaröðinni eru 5. sætin í  Ladies Scottish Open og Open de España Femenino. Árið 2006 gerði Veronica styrktarsamning við Mizuno, en hún notar kylfur frá Mizuno. Meðal áhugamála Veronicu eru fótbolti, lestur góðra Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2011 | 12:00

Myndskeið af nektarmyndartöku Belen Mozo

Spænski kylfingurinn Belen Mozo sem spilar bæði á LET og LPGA sat, s.s. Golf1 greindi frá fyrir skemmstu , fyrir í nektamyndum fyrir ESPN – The Magazine´s Body Issue. Margir frægir kylfingar hafa setið fyrir hjá ESPN og er skemmst að minnast skemmtilegrar myndar af hinum kólombíska Camilo Villegas í köngulóarstellingunni, sem Belen hreifst mjög af líkt og aðrir kvenkylfingar. Eins hafa W-7 módelið og Solheim Cup liðsmaðurinn Sandra Gal setið fyrir hjá ESPN, sem og LPGA kylfingarnir Cristina Kim og Anna Grezebien. Nú hefir ESPN sent frá sér myndskeið frá nektarmyndatökunni með Belen, þar sem Belen segir m.a. að þetta sé í fyrsta sinn sem hún sitji nakin fyrir Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2011 | 11:15

Evróputúrinn: Manassero hóf titilvörnina með stæl

Í dag hófst á Evróputúrnum Castelló Masters mótið en það fer fram í Club de Campo del Mediterráneo í Castelleón á í Valencia á Spáni dagana 20.-23. október. Matteo Manassero hóf titilvörnina með látum fékk 4 fugla í röð á fyrstu 4 holunum (fór út á 10.) en er þegar þetta er ritað (kl. 11) í 8. sæti. Forystunni deila sem stendur Suður-Afríkumaðurinn George Coetzee  og Fabrizio Zanotti frá Paraguay, eru báðir á -5 undir pari. Þetta getur þó enn breyst eftir því sem líður á daginn. Til þess að fylgjast með gangi mála á Castelló Masters smellið HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2011 | 10:30

Sonur Seve Ballesteros, Javier, spilar á Evróputúrnum á næsta ári

Javier Ballesteros, 21 árs, ætlar að hvíla sig á laganámi sínu og taka þátt í Majorca Open í maí á næsta ári, er haft eftir spænska dagblaðinu Marca í dag. „Ég er með boð um að spila í maí á næsta ári á Majorca Open og ég mun örugglega taka þátt,“ sagði Javier, sem er með 1 stafs tölu í forgjöf. „Svo þegar ég hef lokið laganámi mínu myndi mig langa til að reyna við atvinnumennskuna.“ „Meðan á námi mínu stendur get ég ekki æft mikið. Ég slæ 200 bolta á hverjum degi en get aðeins spilað 1 sinni í viku og maður lærir mest á því að spila.“ Eftir Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2011 | 09:00

Ogilvy gagnrýnir val Tiger í Forsetabikarsliðið

Ástralinn Geoff Ogilvy segir að sér finnist undarlegt að sigurvegari PGA Championship, Keegan Bradley hafi ekki verið valinn í lið Bandaríkjanna í Forsetabikarnum meðan Tiger Woods hljóti sérmeðferð. Ogilvy er lykilleikmaður í alþjóðlega liðinu sem leikur gegn liði Bandaríkjanna í Forsetabikarnum, sem fram fer á 2 ára fresti og spilað verður um á Royal Melbourne golfvellinum í næsta mánuði. Ogilvy sagði þetta á símafundi í dag og sagðist undrandi á að bandaríski fyrirliðinn Fred Couples hefði opinberlega tryggt Tiger sæti vikum áður en tilkynna átti um valið. „Maður getur aldrei sagt að það að velja Tiger Woods sé slæmt val, en aðferðin sem hann notaði við valið…“ sagði Ogilvy . Lesa meira