Skata
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2011 | 14:00

GSG: Takið 10. des frá – þá fer fram árlegt Skötumót í Sandgerði!

Þann 10. desember n.k. er fyrirhugað að halda Skötumót í Sandgerði. Um hefðbundið golfmót verður að ræða, svo framarlega sem veður leyfir og verður það auglýst síðar. Þar á eftir er boðið upp á ýmsar kræsingar.  Á boðstólum verður verulega kæst, vestfirsk Skata og fyrir matgikki siginn fiskur og meðlæti.  Þeir sem ekki vilja spila golf geta engu að síður mætt og fengið sér skötu og með því. Takið daginn frá og mætið á Skötumót í Sandgerði!