Kylfingar 19. aldar: nr. 8 – Thomas Dunn – fyrri grein –
Thomas Dunn fæddist í Blackheath, London, 1850 og dó í Blagdon, Somerset 1902, aðeins 52 ára. Tom lærði kylfusmíði hjá föður sínum Willie Dunn eldri í Musselburg og þjálfaði yngi bróður sinn Will Dunn yngri, sem átti eftir að hafa mikil áhrif á þróun golfíþróttarinnar. Tom hóf atvinnumannsferil sinn í North Berwick 1869. Næsta ár flutti hann sig um set til London Scottish Club í Wimbledon og 1871 starfaði hann með föður sínum, Willie Dunn eldri á Leith Links, þar sem þeir bjuggu og störfuðu á Vanburgh Place nr. 7. Tom Dunn kvæntist Isabellu Gourlay og þau fluttust til Tooting Bec golfklúbbsins í Southwark, London, þar sem börnin þeirra voru Lesa meira
25 stærstu skilnaðarmálin í golfinu
Það er alltaf erfitt þegar skilnaður verður – sérstaklega að vera sett í þau spor að þurfa að hlíta vilja annarrar manneskju, þegar það er ekki manns eiginn vilji. Annar aðilinn elskar og vill halda sambandinu áfram – hinn er að kafna og vill út. Eigingirni og of stórt egó verða oft til þess að allt verður að lúta vilja þess egósentríska; því gamla er skipt út fyrir það nýja og hagarnir eru ávallt grænni hinum meginn. Söknuður, tár, reiði, hatur og hefndarhugur eru örfáar tilfinningar sem til stofnast við skilnað. En tíminn læknar öll sár og þegar upp er staðið er niðurstaðan oftast sú að einmitt svona átti allt Lesa meira
Birgir Leifur spilar á úrtökumóti fyrir PGA í dag
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, var nákvæmlega á birtingartíma þessarar fréttar að tía upp á 10. teig Magnolia golfvallarins í Pinewald Country Club of Pinehurst, í Norður-Karólínu. Birgir Leifur á rástíma kl. 9:55 að staðartíma (hér á Íslandi, kl.13:55). Það eru 76 kylfingar sem keppa í mótinu um að vera meðal efstu 20%. Það eru því 15-16 efstu kylfingar í mótinu, sem komast á næsta stig úrtökumótsins og þeir efstu þar spila á lokaúrtökumóti PGA í Flórída, 30.nóvember -5. desember n.k. Meðal þekktra andstæðinga Birgis Leifs í mótinu er Spánverjinn Alfredo Garcia Heredia, en hann komst í gegnum Q-school Evróputúrsins á síðasta ári, varð þar í 19.-22. sæti og hefir því Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: – Denny Shute – 25. október 2011
Herman Densmore „Denny“ Shute f. 25. október 1904 – 13. maí 1974 var bandarískur kylfingur sem vann 3 risamót á 4. áratug síðustu aldar. Denny fæddist í Cleveland, Ohio. Pabbi hans fæddist í Englandi. Hann var í Western Reserve University (sem nú heitir Case Western Reserve University) og var félagi í Phi Gamma Delta. Hann kvæntist 20. mars 1930 Hettie Marie Potts og áttu þau 1 barn saman. Denny Shute sigraði á Opna breska áirð 1933 og á PGA Championship, árin 1936 og 1937. Hann var síðasti kylfingurinn, sem tókst að sigra Opna breska 2 ár í röð áður en Tiger Woods tókst það 1999 og 2000. Denny Shute var Lesa meira
LET: Frances Bondad sigurvegari Sanya Ladies Open
Núna um helgina vann ástralski kylfingurinn Frances Bondad fyrsta sigur sinn á Evrópumótaröð kvenna, LET, á Sanya Ladies Open, í Hainan, í Kína. Úrslitin í mótinu réðust ekki fyrr en á 18. holu, þar sem Frances sýndi stáltaugar og setti niður pútt fyrir fugli meðan samkeppni hennar Vicky Laing frá Skotlandi fékk skolla. Þetta er 4. keppnistímabil Frances á LET, en hún er 23 ára frá Greystanes í New South Wales. Frances hefir verið nálægt því að sigra áður t.d. varð hún í 2. sæti í fyrra, 2010 á Open de España Femenino. Árið 2008 rétt náði hún að verða meðal topp-100 á peningalistanum en 2009 varð hún í 39. sæti Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Kristján Þór, GKJ í 2. sæti á HBU
Kristján Þór Einarsson, GKJ er í 2. sæti á HBU Intercollegiate mótinu sem fram fer í Houston, Texas. Hann spilaði báða hringina í gær á 136 höggum (67 69), sem er frábær árangur. Nicholls State ,háskóli Kristján Þórs er í 6. sæti á mótinu. Lokahringur mótsins verður spilaður í dag. Staðan meðal einstaklinga á HBU mótinu eftir 2. hring: 1. Greg Yates (Texas A&M) 66-68-134, 2. Kristján Þór Einarsson (Nicholls State) 67-69-136, 3. Jesse Droemer* (Houston) 67-70-137, T4. Mick Huffman (McNeese State) 68-71-139, T4. Jade Scott (Texas A&M) 70-69-139 Staðan hjá háskólaliðunum á HBU mótinu eftir 2. hring 1. Texas A&M 278-282-560, 2. Stephen F. Austin 288-292-580, 3. McNeese Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Lið Greensboro háskóla, sem Berglind Björnsdóttir, GR, spilar með varð í 1. sæti á Palmetto mótinu
Kvennagolflið University of Carolina at Greensboro, sem Berglind Björnsdóttir, GR, er hluti af, varð í 1. sæti í gær í Palmetto Intercollegiate golfmótinu í Suður-Karólínu. Þátttakendur í mótinu voru 96 frá 18 háskólum og því frábær árangur hjá Greensboro að landa sigursætinu. Þetta var tveggja daga mót, sem stóð 23.-24. október – 2 hringir spilaðir fyrri dag og 1 seinni. Berglind lauk leik fyrir miðju þáttakendahópsins, deildi 53. sætinu með 4 öðrum keppendum. Berglind lék hringina 3 á samtals + 18 yfir pari, 234 höggum (76 77 81). Af liðsfélögum Berlindar stóð Fanny Cnops sig best varð í 1. sæti, spilaði á samtals -7 undir pari, 209 höggum (70 72 Lesa meira
Hvað er í pokanum hjá Sergio Garcia?
Sergio García er með auglýsingasamning við TaylorMade-adidas Golf og allur golfútbúnaður hans er frá TaylorMade. Sergio klæðist hins vegar adidas golffötum og skóm. Í pokanum hjá Sergio Garcia er eftirfarandi: Dræver: TaylorMade r11 9.5°, Mitsubishi Diamana X-flex skaft Brautartré: TaylorMade Burner Superfast 2.0 TP 13.5° (3-tré) og TaylorMade R7 TP 17.5° (5-tré), báðar kylfur með Mitsubishi Diamana 103 X-flex sköftum Járn: TaylorMade Tour Preferred Muscle Back járn (4-PW), Royal Precision Rifle Project X 6.5 sköft Wedge-ar: TaylorMade rac z TP 52°, 58°, 62° Pútter: TaylorMade Rossa Ghost Bolti: TaylorMade Penta TP Fjarlægðarmælir: Bushnell Slope Edition.
Kylfingar 19. aldar: nr. 7 – Willie Dunn eldri
Willie Dunn eldri fæddist í Musselburgh 1821. Hann, ásamt tvíburabróður sínum, Jamie, spilaði í mörgum áskorendamótum (challenge matches) á árunum 1840-1860. Willie var nemi hjá Gourlay fjölskylduni og var vallarstjóri í Blackheath til ársins 1864, en þá sneri hann aftur til Thistle golfklúbbsins á Leith Links. Willie vann sem kylfu- og boltasmiður í heimahúsum þ.e. í Primrose Cottage, Lochend, Leith. Árið 1867 tók Thistle golfklúbburinn Vanburgh Place nr. 8 á leigu sem klúbbhús og þar bjó Willie Dunn og var með verkstæði á Vanburgh Place Lane. Dunn átti tvo syni Thomas (alltaf kallaður Tom), sem nam kylfusmíði hjá föður sínum í Musselburgh og Willie Dunn yngri, sem var nemi hjá Lesa meira
Hver er kylfingurinn: Yani Tseng?
Yani Tseng (á kínversku: 曾雅妮) fæddist 23. janúar 1989 í Guishan, Taoyuan í Taíwan Það var einmitt á heimaslóðum Yani í Taoyuan, sem tilkynnt var í síðustu viku að hún yrði leikmaður ársins 2011 á LPGA og eins vann hún 7. sigur sinn á LPGA, þetta 1. skipti sem Sunrise mótið er haldið í Taíwan. Alls er hún búin að sigra á 10 golfmótum í ár og er nr. 1 á Rolex heimslistanum. Hún er besti kvenkylfingur heims. En hvað annað… hvað vitum við meira um kylfinginn Yani Tseng? Yani er 22 ára, pabbi hennar heitir Mao Hsin Tseng og mamma hennar Yu-Yun Yang. Yani býr í húsi í Lake Lesa meira







