Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2011 | 22:30

Bandaríska háskólagolfið: Axel Bóasson í 15. sæti á Bridgestone Golf Collegiate

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik 2011, Axel Bóasson, GK og Mississippi State,  tók þátt í 2 daga móti í bandaríska háskólagolfinu, sem hófst í gær. Þátttakendur voru 85 frá 15 háskólum. Spilað var á golfvelli Forest Oaks Country Club, sem Davis Love III átti þátt í að hanna, en sjá má myndir frá golfvellinum með því að smella HÉR:  Axel er búinn að spila á samtals +3 yfir pari, samtals 147 höggum (75 72), og deilir 15. sætinu með 6 öðrum. Hann er með 2. besta skorið af liði Mississippi State.  Lið Mississippi State deilir 3. sætinu með Virginia Tech. Sjá má úrslitin í mótinu með því að smella HÉR:  

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2011 | 20:00

Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn var í 16. sæti á Landfall Tradition

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Wake Forest, lauk keppni á Landfall Tradition háskólamótinu á 75 höggum. Samtals spilaði Ólafía Þórunn á +14 yfir pari, samtals 230 höggum (78 77 75). Ólafía Þórunn deildi 18. sætinu með 6 öðrum stúlkum, þ.á.m. liðsfélaga sínum, frænku Tiger Woods, Cheynne, (78 75 77), en þær tvær léku best allra í liði Wake Forest.  Lið Wake Forest lenti í 10. sæti ásamt Florida State og Notre Dame. Góð frammistaða hjá Ólafíu Þórunni, sem bætti sig með hverjum hring! Til þess að sjá úrslit á Landfall Tradition smellið HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2011 | 19:50

Bandaríska háskólagolfið: Ingunn Gunnarsdóttir og Furman í 7. sæti

Ingunn Gunnarsdóttir, GKG og Furman, lauk keppni á Lady Paladin Invitational í dag á 83 höggum. Ingunn fékk 8 skolla á hringnum 2 skramba og 1 fugl. Hún deildi 41. sætinu ásamt 2 öðrum, var því um miðbik mótsins en 81 keppandi var í mótinu frá 15 háskólum.  Samtals spilaði Ingunn á 246 höggum ( 79 84 83) eða + 30 yfir pari samtals. Lið Ingunnar, Furman háskóli varð  í 7. sæti, en háskólinn hélt mótið og fór það því fram í Greenville, Suður-Karólínu. Sjá má úrslitin á Lady Paladin mótinu með því að smella HÉR:   

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2011 | 15:55

Evróputúrinn: Sergio Garcia sigurvegari á Andalucia Masters á Valderrama

Það var Sergio Garcia sem stóð uppi sem sigurvegari á Andalucia Masters á Valderrama nú rétt í þessu, lauk hringjunum 4 á samtals -6 undir pari (70 70 67 71) þ.e. samtals 278 höggum samtals.  Það lítur út fyrir að Sergio sé á leið til Kína á HSBC-mótið! Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir varð landi Sergio, Miguel Angel Jimenez.  Hann spilaði á samtals -5 undir pari, samtals 279 höggum (71 70 68 70). Í 3. sæti var síðan sá sem leiddi mótið fyrstu 2 dagana, Skotinn Richie Ramsay, 2 höggum á eftir Sergio Garcia. Þetta er 2. sigur Sergio Garcia í röð á Spáni, en hann sigraði Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2011 | 15:30

PGA: Bo Van Pelt sigraði á CIMB Asia Pacific Classic

Bandaríkjamaðurinn Bo Van Pelt sigraði með nokkrum yfirburðum á CIMB Asia Pacific Classic.  Hann spilaði á samtals -23 undir pari, samtals 261 höggi (66 64 67 64). Í dag á lokahringnum spilaði hann á -7 undir pari; lék skollafrítt og fékk 7 fugla. Glæsilegra verður það varla! Í 2. sæti, 6 höggum á eftir Van Pelt varð Jeff Overton, sem búinn er að vera í forystu af og til allt mótið.  Hann spilaði á samtals – 17 undir pari, samtals 267 höggum (67 62 69 69).  Aðeins 1 höggi á eftir Overton varð Fredrik Jacobson frá Svíþjóð, sem lauk mótinu í 3. sæti. Til þess að sjá önnur úrslit á Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2011 | 14:30

Sólskinstúrinn: James Kamte sigraði í BMG Classic

James Kamte vann 4. sigur sinn á Sólskinstúrnum þegar hann setti niður 3 1/2 metra pútt og tók heim 95.100 Krugerrand tékkinn sinn eftir umspil við Dawie van der Walt. Eftir 3 hringja keppni voru báðir á samtals 207 höggum hvor, voru báðir búnir að spila 1 höggi betur en Shaun Norris, sem varð í 3. sæti. Kamte vann umspilið strax á 1. holu með ógnarlöngu 320 metra drævi, sem gerði 90 metra aðhöggið sem eftir var að barnaleik. „Þetta er það sem verður að gera í umspili,” sagði Kamte eftir sigurinn. „ „Reykja” boltann  (ens.: smoke it!) og horfa ekki eftir honum – bara að beygja sig niður, taka Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2011 | 14:00

Glendower golfvöllurinn í Suður-Afríku

Hér á Golf 1 fylgjumst við með Sólskinstúrnum suður-afríska, en margir af heimsins þekktustu kylfingum koma frá þessu einu syðsta ríki Afríku… kylfingar, sem eru í uppáhaldi hjá mörgum hér á norðlægari slóðum.  Nægir þar að nefna menn á borð við Gary Player, Ernie Els, Louis Oosthuizen, Thomas Aiken, James Kingston og Lee Anne Pace. Nú um helgina lauk BMG Classic mótinu, en 2 ár í röð hefir mótið verið haldið á Glendower golfvellinum nálægt Jóhannesarborg. Tilurð vallarins var sú að árið 1935 (um það leyti sem menn hér heima voru að stofna GR, elsta golfklúbb á Íslandi) tóku 10 bissnessmenn sig saman og keyptu býlið „Glendower” í þeim tilgangi Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2011 | 13:30

Afmæliskylfingur dagsins: Mayumi Hirase – 30. október 2011

Japanski kylfingurinn Mayumi Hirasi (jap: 平瀬真由美) fæddist í dag fyrir 42 árum, þ.e. 30. október 1969, í Kumamoto, í Japan.  Mayumi er atvinnumaður í golfi, sem m.a. hefir sigrað 18 sinnum á japanska LPGA. Sigra sína í Japan vann hún á árunum 1989-2000. Mayumi hefir jafnframt sigrað 1 sinni á bandaríska LPGA; það var 1996 á Toray Japan Queens Cup. Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is  

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2011 | 12:30

Hmm… heilsuráðgjöf frá Hákarlinum?

Steve Stricker dró sig sem kunnugt er úr BMW meistaramótinu um miðjan s.l. mánuð s.s. allir muna og spilaði ekki um risapottinn á Tour Championship, lokamóti FedEx umspilsins.  Ástæðan voru þrálát meiðsl í hálsi og styrkmissir í vinstri handlegg.  Nú þegar Presidents Cup keppnin nálgast virðist hann hafa tekið einhverjum framförum en er ekki orðinn góður. Í viðtali við golffréttamanninn Gary D´Amato sagði Stricker að dregið hefði úr eymslunum í vinstri handlegg og hendi vegna hvíldar og teygjuæfinga sem hann er í.  Hann segist enn vera aumur í vinstri hendi og m.a. hafi hann enga tilfinningu í tveimur fingrum. „Ég get sagt að ég hef ekki styrk núna,” sagði Stricker Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2011 | 12:15

Rory McIlroy 200 milljónum króna ríkari!

Rory McIlroy var rétt í þessu að sigra á Shanghai Masters eftir bráðabana við Anthony Kim. Hann glutraði niður 3 högga forystu sinni eftir 11 holu spil og setti niður fugl seint og síðar meir á 15. braut til þess að jafna skor Anthony, sem var samtals á -18 undir pari.  Rory hefði getað náð sigri, en púttin vildu bara ekki detta á 17. og 18. braut. Það þurfti því að koma til umspils milli hans og Anthony Kim, sem Rory vann strax á 1. holu.  Báðir slógu drævin sín í sandglompu og Anthony missti síðar stutt pútt, en Rory setti niður meters pútt og er rúmum 200 milljónum íslenskra Lesa meira