Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2011 | 13:20

Bandaríska háskólagolfið: Ólafur Loftsson í 1. sæti eftir 1. dag á SCVB Pacific Invitational

Í gær hófst í Brookside Country Club í Stockton, Kaliforníu, SCVB Pacific Invitational. Með í mótinu er Ólafur Björn Loftsson, NK og lið hans Charlotte. Þetta er 3 daga mót sem stendur frá 31. október – 2. nóvember 2011.  Þátttakendur eru 60 frá 12 háskólum. Eftir 1 hring í gær er Ólafur Björn í 1. sæti – kom í hús á glæsilegum 65 höggum. Á hringnum fékk Ólafur Björn 6 fugla, 2 skolla og glæsilegan örn á par-5 18. brautinni. Lið Charlotte háskóla er í 6. sæti, eftir 1. dag. Ólafur Björn á rástíma í dag kl. 15:20 að íslenskum tíma. Golf 1 óskar Ólafi Birni góðs gengis á 2. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2011 | 11:30

Veit nokkur hver Bill Powell og hvað Clearview eru í golfinu?

Við lifum á tímum þar sem okkur finnst eðlilegt að sjá þeldökka kylfinga spila meðal þeirra bestu. Einn allra besti kylfingur sögunnar, Tiger Woods, er blökkumaður og við vitum öll að eitt aðaláhugamál Barack Obama, fyrsta Bandaríkjaforsetans sem er blökkumaður, er golf. Þó er haft vakandi auga með honum að hann spili nú ekki of mikið golf, heldur sinni mikilvægari verkefnum í þágu þjóðar sinnar! … en það er ekki nokkuð sem var bundið við litarhátt hans… Kennedy fór t.d. í felur með golfleik sinn vegna þess að 1. hann vildi ekki að litið yrði svo á að hann sinnti ekki mikilvægum verkefnum þjóðar sinnnar 2. vegna þess að golfið Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 1. 2011 | 07:00

„Golfvöllur rímsins“

Það er kominn 1. nóvember 2011 – já, það er kominn þessi tími árs þar sem flestir golfvellir landsins eru lokaðir eða lagstir undir snjó (á Norðurlandi og Vestfjörðum).  Vetur konungur genginn í garð í öllu sínu veldi. Hvað gera kylfingar þá? Leggja kylfum sínum, leggjast í þunglyndi? Það er engin ástæða til þess. Þetta er sá tími ársins sem jólabækurnar fara að birtast hver á fætur annarri. Ein þeirra er „Golfvöllur rímsins” (ens.: The Golf Course of Rhymes) eftir Dr. Leon S. White. (Því miður ekki til í íslenskri þýðingu).  Þessi bók er nokkuð sérstök því hún er sett upp eins og golfvöllur þ.e. eftir inngang eftir Robert Trent Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2011 | 21:00

Kylfingar 19. aldar: nr. 10 – John Duncan Dunn

Hér að undanförnu höfum við birt greinar hér á Golf 1 um Willie Dunn eldri, son hans Tom Dunn, og son Tom, Seymour Gourlay Dunn.  Hér verður fjallað um annan son Tom, John Duncan Dunn. John Duncan lærði að spila golf í North Berwick og var auk þess að vera frábær í golfi, góður sundmaður og var ágætur að sigla skútu. Hann var alhliða íþróttamaður, sterkur hlaupari og spilaði með skosku liði gegn Englendingum í fótbolta. Hann var valin til þess að vera í hjólaskautaliði Celtic, þegar þeir unnu meistaramótið og hann vann Hr. Steele, sem var fyrrum meistari Bretlands í 1 mílu hjólaskautahlaupi. John spilaði í rugby liði Bournemouth Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2011 | 18:00

Hver er kylfingurinn: Sergio Garcia? 1/3 grein

Nú hlægja margir. HaHaHa! Vita ekki allir kylfingar hver Sergio Garcia er? Sigurvegari undanfarinna 2 helga á Evróputúrnum; vann Andalucia Masters á Valderrama nú um helgina með 1 höggs mun á landa sinn Miguel Angel Jiménez og Castelló Masters, helgina þar áður með 11 högga mun á landa sinn Gonzalo Fernández-Castaño. Sergio Garcia Fernández fæddist 9. janúar 1980 og er því 31 árs. Hann hefir mestallan feril sinn verið meðal 10 efstu á heimslistanum þ.e. á árunum 2000-2009, en hápunktur ferils hans er m.a. sigur á HSBC Championship í nóvember 2008. Síðan þá hefir aumingja Sergio verið í lægð þar til nú, síðastliðnar 2 vikur.  Hann tilkynnti reyndar í dag Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2011 | 16:00

Heimslistinn: Sergio Garcia hækkar um 13 sæti – úr 31. sæti í 18. sæti

Það er gaman að skoða heimslista karlkylfinga OWGR (Official World Golf Ranking) eftir viðburðarríka helgi með mörgum stórmótum. Sergio Garcia sem sigraði Andalucia Masters hækkaði sig um heil 13 sæti fer úr 31. sætinu, sem hann var kominn í eftir sigur á Castelló Masters síðustu helgi í það 18. eftir sigurinn sæta á Valderrama. Miguel Angel Jiménez, sem var í 2. sæti á Andalucia Masters hækkar líka um 13 sæti fer úr 49. sætinu í það 36. Bandaríkjamaðurinn Bo Van Pelt sem vann svo glæsilega PGA mótið, CIMB Asia Pacific Classic í Malasíu hækkar um heil 14 sæti, fer úr 39. sætinu í það 25. Litlar hreyfingar eru á topp-10. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2011 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hlynur Geir Hjartarson 31. október 2011

Það er Hlynur Geir Hjartarson, GOS, golfkennari og framkvæmdastjóri Golfklúbbs Selfoss sem er afmæliskylfingur dagsins. Hlynur Geir fæddist 31. október 1976 og á því 35 ára stórafmæli í dag. Hlynur Geir er með -1 í forgjöf. Meðal margra afreka hans á golfsviðinu er að verða Íslandsmeistari í holukeppni 2008. Þegar afmæliskylfingurinn okkar var spurður hvað honum þætti best við golfið í löngu viðtali, sem birtist hér síðar á Golf 1 sagði hann: „Það besta við golfið er pottþétt það að maður er í endalaust að skora á sjálfan sig. Maður er 4 1/2 – 5 tíma að spila golf og alltaf að lenda í óvissu, það er eitthvað sem mér Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2011 | 11:00

Hvað er í pokanum hjá Paulu Creamer?

Hvað er bleikklætt og finnst á golfvelli? Miklar líkur eru á því að þar sé á ferð Paula Creamer…líka kölluð Bleiki Pardusinn.  Hún er sem stendur nr. 7 á Rolex-heimslistanum, enda búið að vera gott ár hjá henni. Hún spilaði í Solheim Cup og stóð sig frábærlega þar – hún er að vísu sigurlaus í ár en af 19 mótum sem hún hefir tekið þátt hefir hún verið 8 sinnum verið meðal topp 10, besti árangurinn er 2. sætið. Hún var fyrir skemmstu í fréttum vegna dagatals síns, sem gefið er út árlega í Japan. Paula hefir 11 sinnum sigrað sem atvinnumaður, 9 sinnum á LPGA og 2 sinnum á Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2011 | 10:00

Eitt mesta heppnishögg í golfinu!

Það er Darren Clarke sem á eitt mesta heppnishögg í sögu golfíþróttarinnar. Það var slegið á 18. braut á Smurfit European Open á Írlandi árið 2005.  Hér er svo sannarlega á ferðinni írsk heppni! Hér fyrir neðan er myndskeið af heppnishöggi Clarke og þó það hafi verið í umferð um nokkurn tíma og margir hafi eflaust séð það, þá er góð vísa sjaldan of oft kveðinn! Sjá má myndskeiðið af höggi Clarke með því að smella HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | október. 31. 2011 | 08:00

Hjartaþeginn Erik Compton hlaut kortið á PGA

Tvöfaldur hjartaþegi Erik Compton vann sér inn kortið sitt á PGA Tour  fyrir næsta keppnistímabil, þegar hann lauk keppni í gær í 13. sæti á peningalista Nationwide Tour.  Það eru 25 efstu á peningalista Nationwide Tour, sem hljóta keppnisrétt á PGA 2012. Compton er alls búinn að sanka að sér $239,737 í verðlaunafé á árinu, en stærstur hluti þess kom í hans hlut í júní s.l. sumar þegar hann vann fyrsta mótið sitt, Mexico Open á Nationwide. Hinn 31 ára Compton hefir spilað á 30 PGA mótum en aldrei tekist að tryggja kortið sitt áður.  Reyndar var hann á tímabili alls ekki viss um að hann myndi geta verið atvinnumaður Lesa meira