LET: Yani Tseng sigraði á Suzhou Taihu Open
Yani Tseng er óstöðvandi. Hún sigraði á Suzhou Taihou Open mótinu, í Suzhou í Kína,var sú eina sem spilaði alla hringi sína undir 70 (68 66 66) og var því á samtals 200 höggum, – 16 undir pari. Hún spilaði skollafrítt, fékk 6 fugla, á 3. og síðasta hring mótsins í dag. Þetta er 11. sigur hennar 2011. Tseng er sannkölluð töfradís! Yani átti 7 högg á þá sem næst kom, fyrrum skólafélaga Eygló Myrru, Pernillu Lindberg, sem var samtals á -9 undir pari, á samtals 207 höggum (72 65 70) og varð í 2. sæti. Þriðja sætinu deildu sigurvegarinn frá því í fyrra Lee-Anne Pace frá Suður-Afríku og Melissa Lesa meira
Dagatal 2012 með Paulu Creamer komið út í Japan
Í Japan er komið út dagatal 2012, en það er prýtt myndum af bandaríska kylfingnum Paulu Creamer. Paula hefir gefið út slíkt dagatal undanfarin 4 ár, eða allt frá 2007 í samvinnu við Golf Digest Japan. Því miður er ekki hægt að kaupa eintök utan Japan, þannig að ef einhver kylfingur er á leið til Japan er ekki úr vegi að skella sér á eintak. Einnig sjást eintök japanskra dagatala með myndum af Paulu til sölu á eBay, af og til. Paula Creamer er mjög vinsæl í Japan og hefir oft rætt um það hversu vel henni líki við Japan, bæði land og þjóð.
Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn í 23. sæti á Landfall Invitational eftir 2. dag
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir deilir 23. sætinu með 2 öðrum eftir 2. hring á Landfall Tradition mótinu. Hún kom í hús á 77 höggum og er því samtals búin að spila á +11 yfir pari, 155 höggum (78 77). Ólafía fór upp um 9 sæti því hún var í 32. sæti eftir 1. daginn. Ólafía Þórunn fékk 8 skolla og 3 fugla á hringnum. Liðsfélagi Ólafíu, frænka Tiger Woods, Cheynne, bætti sig líka svo um munaði en hún var fyrir hringinn í gær jöfn Ólafíu Þórunni í 32. sætinu. Í gær spilaði hún síðan á 75 höggum og er því búin að spila á samtals +9 yfir pari, samtals 153 höggum (78 Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Ingunn og lið Furman í 9. sæti eftir 2. dag á Lady Paladin
Ingunn Gunnarsdóttir, GKG og Furman, lauk 2. hring á Lady Paladin Invitational í gær á 84 höggum. Ingunn fékk 8 skolla á hringnum og skramba á 17. og 18. braut. Hún deilir 35. sætinu ásamt 4 öðrum, er því um miðbik mótsins en 81 keppandi er í mótinu frá 15 háskólum. Lið Ingunnar Furman háskóli er í 9. sæti, en háskólinn heldur mótið og fer það því fram í Greenville, Suður-Karólínu. Lokahringurinn verður spilaður í dag. Fylgjast má með stöðunni á Lady Paladin mótinu með því að smella HÉR:
Evróputúrinn: Sergio Garcia efstur fyrir lokahringinn á Valderrama
Það er spænski kylfingurinn Sergio Garcia sem er í forystu fyrir lokahring Andalucia Masters. Hann er samtals búinn að spila á -6 undir pari, samtals 207 höggum (70 70 67). Í 2. sæti eru landi hans Miguel Angel Jiménez og Svíinn Christian Nilson, báðir 2 höggum á eftir Garcia. Í 4. sæti er síðan forystumaður föstudagsins, Skotinn Richie Ramsay á samtals -3 undir pari, samtals 210 höggum, en spilamennska hans hefir farið hríðversnandi (65 72 73). Garcia gæti hafa verið í enn meiri forystu, en hann fékk næstum holu í höggi á 6. braut og var með 6 fugla á 3. hring, ef hann hefði ekki fengið örlagaríkan fugl á Lesa meira
Rory McIlroy leiðir í Shanghai eftir 3. dag
Sigurvegarinn á Opna bandaríska, Rory McIlroy spilaði á -7 undir pari í gær (laugardaginn) og jók forystu sínu á peningamótinu mikla, Shanghai Masters í 3 högg. Þessi 22 ára golfstjarna frá Norður-Írlandi (Rory) fékk 7 fugla á 3. hring Jack Nicklaus hannaða golfvallarins við Malaren vatn í Kína og er nú samtals á -18 undir pari, þ.e. samtals á 198 höggum (64 69 65) og leiðir fyrir lokahringinn, sem spilaður verður í dag. „Ég vissi að ég yrði að spila vel í dag (þ.e. gær – á laugardaginn) ef ég ætti að sigra í mótinu. Enginn skolli og 7 fuglar, það er það sem maður verður að gera þegar maður Lesa meira
Sólskinstúrinn: Bradford Vaughan er í 1. sæti eftir 2. dag á BMG Classic
Það er Bradford Vaughan sem er í 1. sæti eftir 2. dag BMG (Bearing Man Group) Classic, en mótið, sem er 3 hringja fer fram í Glendover Golf Club í Jóhannesarborg dagana 28.-30. október og lýkur í dag. Bradford er á samtals -6 undir pari, samtals 138 höggum (68 70). Öðru sætinu deila Ockie Strydom og Johann Bekker, eru báðir höggi á eftir Bradford. Í fjórða sæti er síðan Shaun Norris 2 höggum á eftir Bradford. 7 kylfingar deila síðan 5. sætinu, þ.á.m. Darren Fichardt, og Allan Versveld. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag BMC Classic á Sólskinstúrnum smellið HÉR:
Viðtalið: Ágúst Húbertsson, framkvæmdastjóri GK.
Ágúst Húbertsson lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Keilis nú um mánaðarmótin. Hann hefir gegnt stöðunni að sögn frá árunum ´86-´88, eða í 23-25 ár. Við stjórnartaumunum tekur sonurinn, Ólafur Þór, en Ágúst hefir verið honum innan handar og gegnt 1/2 stöðu hjá Keili s.l. ár, til þess að kenna honum á alla þræði stjórnarmennskunnar. Golf 1 leit við hjá Ágústi og lagði fyrir hann nokkrar spurningar. Golf 1: Hvers kemurðu til með að sakna mest þegar þú hættir? Ágúst: Vinnunnar almennt og þátttökunnar í að móta starfið, en maður heldur félagsskapnum og er ekki alveg farinn. Golf 1: Hvað hefir verið skemmtilegast í starfi þínu sem framkvæmdastjóri þegar þú horfir Lesa meira
Nirwana golfvöllurinn á Balí
Í viðtali við Ólaf Þór Ágústsson, framkvæmdastjóra golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði, (sem birtist síðar hér á Golf 1) kom m.a. fram að honum þætti Nirwana golfvöllurinn á Balí vera sérstakasti golfvöllur, sem hann hefði spilað m.a. vegna fallegs landslags og sérstaks, en völlurinn er byggður í miðjum hrísgrjónaakri. Nirwana golfvöllurinn er hannaður af Greg Norman. Meðal sérstakra þátta á vellinum er að allir kaddýar klúbbsins eru konur frá nálægum bæjum. Þær eru allar frábærir kylfingar og hljóta þar að auki 3 mánaða grunnþjálfun áður en þær mega hefja störf. Golfvöllurinn er á suð-vesturströnd Balí og aðeins 45 mínútna akstur frá alþjóðaflugvelli Balí og rétt hjá fræga musterinu Tanah Lot Ubud Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: James Alexander Barclay – 29. nóvember 2011
James Alexander Barclay fæddist 29. október 1923 í Glasgow og er því 88 ára í dag. Hann var rannsóknarmaður og forstjóri í kanadíska olíubransanum, en einnig kylfingur og höfundur 626 bls. golfbókar, sem nefnist: Golf in Canada – A history, sem er yfirgripsmesta verk, um golf sem gefið hefir verið út í Kanada. Barclay hóf feril sinn með því að spila með járnum með valhnotu (hickory) sköftum í Skotlandi. Hann útskrifaðist í efnafræði frá Glasgow háskóla og vann stærstan part ævinnar í olíubransanum og náði hæst að verða varaforstjóri olíufyrirtækis. Hann fluttist til Kanada 1968, en settist í helgan stein 1983 og vann á efri árum við framkvæmdastjórastörf hjá Royal Canadian Lesa meira







