Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 3. 2011 | 20:00

Christie Kerr – A Fathers Story

Í fyrra kom út bók í Bandaríkjunum eftir föður Cristie Kerr, Michael Kerr. Michael Kerr var hermaður í Vietnamstríðinu, en sneri heim 1966 og kynntist þá móður Cristie, Lindu og stuttu síðar fæddist Cristie. Cristie Kerr byrjaði að læra golf 7 ára gömul. Í 12 ár var pabbi hennar, stoð hennar og stytta, bílstjóri, kennari, kaddý, sálfræðingur, styrktaraðili og fyrst og fremst góður pabbi, sem kenndi henni fyrstu handtökin í golfíþróttinni. Hann fylgdist með henni frá því hún var lítil stelpa í það að verða stórstjarna í golfinu. Öll þessi 12 ár hélt Michael Kerr dagbók um framfarir dóttur sinnar, sorgir hennar og sigra. Bókin er skemmtileg aflestrar ekki aðeins Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 3. 2011 | 17:00

GO: Glóboltamótið – úrslit

Þann 24. september 2011 fór fram hjá Golfklúbbnum Oddi nokkuð sérstakt golfmót: Glóboltamótið.  Mótið var sérstakt að því leyti að spilað var á laugardagskvöldi í niðamyrkri, 10 lið – 4 saman í liði, með glóandi hálsmen (til þess að sjást betur í myrkrinu) og glóandi golfbolta að vopni á „glóandi“ Urriðavelinum, en hann var lýstur upp með ljósstikum. Golf 1 var að sjálfsögðu á staðnum og má með sanni segja að Urriðavöllurinn hafi meira líkst upplýstri flugbraut að nóttu til en nokkru öðru. Þetta var tilkomumikil sjón og mótið í alla staði glæsilegt og vel heppnað. Umsjón með móthaldi höfðu þeir Nikulás Kr. Jónsson og Svavar Geir Svavarsson í Golfklúbbnum Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 3. 2011 | 15:01

Dýr á golfvöllum

Kylfingar rekast á ýmiskonar dýr á golfvöllum. Hér á landi er allt eins víst að rekast á gæsir í Grafarholtinu, kríuna í Nesklúbbnum og á Garðavelli undir Jökli (sérstaklega 8. brautinni) og kanínurnar á Kirkjubólsvelli í Sandgerði, svo fátt eitt sé nefnt. Reyndar er algengast hér á landi að rekast á einhvers konar fugla á golfvöllum. Sé farið á suðlægari slóðir þarf að hafa varann á sér á golfvöllum, því sum dýr eru hættuleg s.s. nashyrningar á golfvöllum Suður-Afríku, krókódílar í Flórída og eins eru sumar eðlutegundir varasamar. Slöngur eiga það til að snákast yfir golfvelli og er ekki gott að verða á vegi þeirra. Sum dýr eru ekki hættuleg Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 3. 2011 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Mike Springer – 3. nóvember 2011

Michael Paul Springer fæddist 3. nóvember 1965 í San Francisco, Kaliforníu og er því 46 ára í dag.  Springer gerðist atvinnumaður í golfi 1988 og spilaði bæði á PGA Tour og Nationwide Tour. Á PGA komst hann árið 1991 og á að baki 2 sigra þar, sá fyrri vannst 1994: KMart Greater Greensboro Open og sá seinni á sama móti saman ár. Árið 1994 var hápunktur ferils Mike hann vann sér inn $770,71 og varð í 13. sæti á peningalistanum. Hann á að baki 22 topp-10 árangra á PGA Tour. Besti árangur hans í risamóti er T-24 á Opna breska. Í dag býr Mike Springer í Fresno Kaliforníu. Aðrir frægir kylfingar Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 3. 2011 | 11:30

Keegan Bradley leiðir eftir 1. dag HSBC – kom inn á 65 höggum

Það er sigurvegari PGA Championship risamótsins og sá sem að öllum líkindum fær ekki að spila með í Forsetabikarskeppninni í liði Bandaríkjanna, Keegan Bradley, sem leiðir eftir 1. dag HSBC heimsmótsins í Sheshan í Kína. Keegan kom inn á 65 höggum; spilaði skollafrítt; fékk 5 fugla og glæsilegan örn á 18. braut. Öðru sætinu deila Bandaríkjamaðurinn Bo Van Pelt og Svíarnir Fredrik Jacobson og Alexander Noren. Þeir voru allir á 67 höggum. Að öðrum þekktum þátttakendum mótsins mætti geta að Adam Scott, Lee Westwood og Martin Kaymer deila 9. sætinu  ásamt  6 öðrum kylfingum; voru allir á 69 höggum. Og Rory McIlroy, stjarnan frá Shanghai og Charl Schwartzel deila 18. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 3. 2011 | 10:00

Tiger: „Ég var heppinn að Fred valdi mig í Forsetabikarsliðið“

Fyrrum nr. 1 á heimslistanum  Tiger Woods sagði fyrr í dag (Tiger er í Singapore en þeir eru 8 tímum á undan okkur) að hann væri heppinn að fyrirliði liðs Bandaríkjanna í Forsetabikarnum, Fred Couples, hefði valið sig í liðið. Tiger, sem er sigurvegari á 14 risamótum og er talinn meðal bestu kylfinga allra tíma, hefir hrunið ofan í 56. sæti heimslistans og ekki sigrað einn einasta titil frá sprengjufréttinni um framhjáhald hans í lok árs 2009. Þetta dramatíska hrun hans (golflega séð) hefir látið margan draga í efa val Couples á honum í stað t.d. sigurvegara PGA Championship, Keegan Bradley í viðureignum Bandaríkjanna við alþjóðlega liðið í Royal Melbourne club Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 3. 2011 | 07:00

Rory McIlroy: „Auðvitað hef ég breyst“

Súperstjörnukylfingurinn Rory McIlroy hefir viðurkennt að hann hafi breyst og „vaxið“ s.l. ár, en hann hefir skotist upp í himinhvolfin í golfheiminum eftir sigur á Opna bandaríska. Hann tók líka við  £1.25 milljónum (230 milljónum íslenskra króna (þar af fara 10-15% í hlut kaddý Rorý þannig að eftir standa u.þ.b. 200 milljónir íslenskra króna) í verðlaunafé á Shanghai Masters. Þetta hefir ekki allt verið beinn og breiður vegur. Þarna voru vel auglýst slit hans við kærustu hans til langs tíma, Holly Sweeney og síðan samband hans við nr. 1 í tennisheiminum, Caroline Wozniacki og nokkur ummæli sem Rory lét falla, sem vöktu deilur. Hann hefir harðneitað að Wozniacki hafi haft áhrif á ákvörðun Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2011 | 21:26

Bandaríska háskólagolfið: Ólafur lauk leik í 12. sæti

Til þess að sjá úrslit í mótinu smellið HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2011 | 18:01

Kylfingar 19. aldar: nr. 12 – Willie Dunn yngri

William Dunn yngri fæddist 4. febrúar 1864 (Wikipedia) eða 1865 (North Berwick Factfile) í Borough of Blackheath, í úthverfum London, þar sem pabbi hans William Dunn eldri var vallarstjóri og kylfusmiður. Við höfum seinustu daga lesið um bróður Willie Dunn yngri, Tom og syni hans Seymour Gourlay Dunn og John Duncan Dunn og jafnvel einn þekktasta nemanda John, Amy Pascoe, í gær. Árið sem Willie Dunn yngri fæddist sneri fjölskylda hans aftur að Leith Thistle golfklúbbnum og bjuggu á 7 Vanburgh Place, Leith Links, Edinborg. Árið 1881 fluttist Willie Dunn yngri til North Berwick, þar sem eldri bróðir hans Tom Dunn vallarstjóri. Það var hér sem Willie yngri hóf nám Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2011 | 18:00

Hver er kylfingurinn: Sergio Garcia? 3/3 grein

Hér birtist 3. og síðasti hluti greinarinnar um Sergio Garcia: Sergio  aftur í formi García sneri aftur til keppni seint 2010 með nýtt púttgrip svokallað „málningarstroku“ eða „sagar“ grip og þetta skilaði honum betri árangri á flötunum. Eftir 36 holur var hann nærri því að leiða bæði á Transition Championship 2011 og Byron Nelson Championship 2011, en í bæði skiptin lauk helginni með því að hann var ekki að spila um vinningssæti. Sergio García varð að draga sig úr Opna breska 2011 vegna sýkingar í fingri. Hann hafði upprunalega skipulagt að reyna að öðlast þátttökurétt á Opna bandaríska 2011, þar sem hann var fyrir utan topp 50 á heimslistanum og Lesa meira