Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2011 | 06:30

LPGA: Catriona Matthew í forystu í Mexíkó

Það er hin skoska Catriona Matthew sem leiðir fyrir lokahring Lorena Ochoa Invitational, Presented by Banamex, Jalisco – It happens within you mótsins, sem fram fer í heimabæ fyrrum nr. 1 í heiminum (Lorenu Ochoa), Guadalajara í Mexíkó. Catriona kom inn á 68 höggum, fékk 5 fugla og 1 skolla á par-3, 17. brautinni. Samtals er Catriona búin að spila á -11 undir pari, þ.e. samtals 205 höggum (69 68 68). Hún er með 3 högga forystu fyrir lokahringinn, sem spilaður verður í dag. Í 2. sæti er Suzann Pettersen á -8 undir pari (67 70 71) og í 3.  sæti eru IK Kim og Anna Nordqvist á -7 undir Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2011 | 21:00

Kylfingar 19. aldar: nr. 21 – John Ball

John Ball yngri (f. 24. desember 1861 – d. 2 desember 1940) var frægur enskur áhugamaður í golfi  á ofanverðri 19. öld og í byrjun 20. aldar. John Ball yngri fæddist í Hoylake, Merseyside. Pabbi hans var velhafandi eigandi Royal Hotel, sem er nærri Royal Liverpool Golf Club í Hoylake. John Ball ólst upp við að spila golf sem unglingur á Royal Liverpool golfvellinum, sem var byggður þegar hann var strákur. Eftir sigur á The Amateur Championship 1888, varð Ball fyrsti Bretinn til þess að sigra Opna breska árið 1890. Sama ár vann hann 2. Amateur mót og var sá fyrsti til að vinna bæði mótin sama árið. John Ball Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2011 | 16:00

Myndasería og úrslit: Ögmundur sigraði á Nóvembermóti Golfklúbbs Selfoss (GOS)

Það var frábært golfveður á Svarfhólsvelli þeirra Selfyssinga í dag, 12. nóvember 2011. Það er með ólíkindum að enn skuli vera hægt að spila golf.  Svarfhólsvöllur var nokkuð blautur en merkilega góður miður við árstíð. Því voru golfsettin drifin fram og 23 keppendur borguðu 500 í peningapott, sem sigurvegarinn hlaut síðan allan til eignar. Alls voru 20 karlar sem tóku þátt og 3 konur. Sigurvegari Nóvembermóts GOS var Ögmundur Kristjánsson, GOS og hlýtur hann í verðlaun kr. 11.500,- Helstu úrslit í mótinu urðu annars þessi: 1. sæti Ögmundur Kristjánsson, GOS, 45 pkt. 2. sæti Axel Óli Ægisson, GOS, 39 pkt. 3. sæti Hjalti Sigurðsson, GOS, 37 pkt. 4. sæti Jón Gíslason, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2011 | 15:45

Nóvembermót GOS – 12. nóvember 2011

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2011 | 14:00

Hver er kylfingurinn: Paige MacKenzie?

Paige MacKenzie fæddist 8. febrúar 1983 í Yakima, Washington og er því 28 ára.  Hún byrjaði að spila golf 3 ára gömul og segir foreldra sína og bróður Brock (sem spilar á Nationwide túrnum og var eitt sinn í Walker Cup) hafa haft mest áhrif á að hún byrjaði í golfi.  Meðal áhugamála Paige er að horfa á íþróttir og lesa. Hún komst á LPGA í fyrstu tilraun og er með góðan styrktarsamning við Nike. Paige útskrifaðist 2001 úr Eisenhower High School þar sem hún var  first-team All-Big-9 selection öll 4 ár sín í menntaskóla. Hún var útnefnd stúlkna kylfingur ársins árið 2000 (ens.: Girl Golfer of the Yea) bæði Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jason Day – 12. nóvember 2011

Afmæliskylfingur dagsins er sá sem vermir 2. sætið á Opna ástralska, Jason Day. Jason fæddist 12. nóvember 1987 og er því 24 ára í dag. Jason fæddist í Beaudesert í Ástralíu, en pabbi hans er ástralskur en mamma frá Filippseyjum. Hann gerðist atvinnumaður 2006 og hefir sigrað tvívegis  á ferli sínum sem atvinnumaður á HP Byron Nelson mótinu 23. maí 2010 og á Nationwide Tour: Legend Financial Group Classic 8. júlí 2007.  Eftirtektarverðast er þó góð frammistaða hans á risamótum golfsins þar hefir hann landað 2. sætinu tvívegis þ.e. á Masters 2011 (T-2) og á Opna bandaríska 2011. Sem stendur er Jason Day nr. 7 á lista yfir bestu kylfinga Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2011 | 11:00

GSG: Á morgun Súpumót – 10. des Skötumót

Á morgun fer fram 12 holu Súpumót á Kirkjubólsvelli í Sandgerði. Veðurspáin er fín, þannig að það er um að gera að drífa fram golfsettin og skella sér í frábært mót í Sandgerði. Eins og heiti mótsins ber með sér er súpa innifalin í þátttökugjaldi, sem er kr. 2000,-  Það má skrá sig á mótið með því að smella HÉR: Þann 10. desember n.k. er hins vegar fyrirhugað að halda Skötumót í Sandgerði. Um hefðbundið golfmót verður að ræða, svo framarlega sem veður leyfir og verður það auglýst síðar. Þar á eftir er boðið upp á ýmsar kræsingar.  Á boðstólum verður verulega kæst, vestfirsk Skata og fyrir matgikki siginn fiskur Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2011 | 10:00

Evróputúrinn: Gonzalo Fernandez Castaño í 1. sæti fyrir lokahringinn á Barclays

Gonzalo Fernandez-Castaño er með 3 högga forystu fyrir lokadag Barclays Singapore Open þegar slæmt veður knúði skipuleggjendur mótsins til þess að stytta það í 54 holu mót. Spánverjinn (Gonzalo) – sem þjáðst hefir af bakverkjum mestallt árið og er fallinn niður í 194. sæti á heimslistanum – lauk 2. hring á 61 höggi, áður en þrumur og eldingar neyddu kylfinga til þess að hætta leik. Á -15 undir pari er hinn fjórfaldi sigurvegari á Evróputúrnum í 1. sæti á undan þeim Edoardo Molinari og James Morrison – en sá síðastnefndi sló ekki einn einasta bolta í dag (enda bara verið að klára 2. hring í dag, þegar 3. hringurinn hefði átt Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2011 | 08:30

Opna ástralska: Senden í 1. sæti – Tiger í 8. sæti með hring upp á 75 eftir 3. dag

John Senden átti sannkallaðan draumahring í gær á The Lakes, 63 högg og skaust við það upp í 1. sætið. Á hringnum sem var skollalaus fékk Senden 7 fugla og glæsilegan örn á par-4, 6. brautinni. Samtals er Senden búinn að spila á 204 höggum (70 71 63), samtals Jason Day er í 2. sæti 1 höggi á eftir landa sínum og landi hans Greg Chalmers er í 3. sæti, 2 höggum á eftir John Senden. Nick-arnir tveir, Bandaríkjamaðurinn Watney og Ástralinn O´Hearn deila síðan 4. sætinu 3 höggum á eftir John Senden á -9 undir pari.  Í 6. sæti eru Ástralarnir Jarrod Lyle og Ryan Haller, báðir á samtals  Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2011 | 08:00

Jake Higginbottom – einn efnilegasti kylfingur Ástralíu – spilar á Opna ástralska

Eftir 1. dag Opna ástralska var hið 17 ára ástralska golfundrabarn, með skrítna nafnið Jake Higginbottom í 8. sæti ásamt sjálfum Tiger Woods. Nú þegar Opna ástralska er hálfnað er hann kominn í gegnum niðurskurð. Higginbottom er nr. 28 á lista yfir bestu áhugamenn í heiminum. Jake var strax 10 ára gamall farinn að spila á golfmótum víðsvegar um Ástralíu og oftar en ekki vann hann. Honum hefir verið líkt við Jim Ferrier, sem var fyrsti Ástralinn til þess að vinna risamótstitil (PGA Championship 1947).  Hvort Higginbottom rís undir samanburðinum mun framtíðin ein leiða í ljós. Í ár vann hann m.a. Keperra Bowl Championship í Ástralíu og má sjá myndskeið Lesa meira