LPGA: Catriona Matthew sigraði á Lorena Ochoa Invitational í Mexíkó
Hin 42 ára, skoska Catriona Matthew sigraði nú fyrir skömmu Lorena Ochoa Invitational, með lokahring upp á -1 undir pari, þ.e. 71 högg. Samtals lauk Matthew keppni á -12 undir pari, samtals 276 höggum (69 69 68 71). Þetta er 4. sigur Catrionu Matthew á LPGA. 2. sætinu deildu Anna Nordqvist frá Svíþjóð og hin suður-kóreanska In Kyung Kim, sem átti titil að verja, samtals 4 höggum eftir Catrionu. Fjórða sætinu deildu 3: Juli Inkster, sem búin að var leiða mestallt mótið, Ai Miyazato og Hee Kyung, allar á samtals -5 undir pari hver, þ.e. 7 höggum á eftir Catrionu. Nr. 1 í heiminum Yani Tseng deildi 19. sætinu með Lesa meira
Kylfingar 19. aldar: nr. 22 – Willie Fernie
William „Willie“ Fernie (1857–1924) var skoskur kylfingur frá vöggu golfsins, St. Andrews. Hann sigraði Opna breska, 1883 á Musselburgh Links. Mótið var 4 hringja á 9 holu vellinum, haldið á föstudegi í nóvember. Fernie deildi sætinu að loknum hefðbundnum hringjafjölda með þeim sem átti titil að verja, Bob Ferguson, en báðir voru á 158 höggum. Næsta dag vann Fernie bráðabanann milli þeirra Ferguson, með einu höggi. Fernie var í 2. sæti á Opna breska árin 1882, 1884, 1890 og 1891. Þegar George Strath fór frá Royal Troon árið 1887 varð Willie Ferni golfkennari þar og var þar næstu 37 ár. Willie Fernie vann sem golfvallarhönnuður og gerði á ferli sínum m.a. breytingar Lesa meira
Myndasería og úrslit: 12 holu Súpumót hjá GSG í Sandgerði
Það var með ólíkindum að kominn væri 13. nóvember. Sólin skein í Sandgerði, þennan sunnudag og 46 kylfingar undu hag sínum hið besta á Kirkjubólsvelli í 12 holu Súpumóti GSG.Af 46 þátttakendum í mótinu voru 3 konur. Veitt voru verðlaun fyrir efstu 3 sætin í punktakeppni með forgjöf og efsta sætið í höggleik án forgjafar. Úrslit urðu eftirfarandi: Höggleikur á forgjafar: 1. sæti Þór Ríkharðsson, GSG, 49 högg. Punktakeppni með forgjöf: 1. sæti Sigurjón Ingvason, GSG, 25 pkt. 2. sæti Arnór Guðmundsson, GSG, 24 pkt. 3. sæti Þór Ríkharðsson, GSG, 24 pkt. 4. sæti Brynjar Steinn Jónsson, GSG, 24 pkt. Hér má sjá myndaseríu frá mótinu: MYNDASERÍA FRÁ 12 Lesa meira
12 holu Súpumót í Sandgerði hjá GSG – 13. nóvember 2011
Viðtalið: Margrét Óskarsdóttir, GKJ: „Golfið læknaði heimþrá eftir Noregi.”
Í vor tók Golf 1 viðtal við skemmtilegan kylfing, Margréti Óskarsdóttur, GKJ, sem starfar við sölu golfferða hjá VITA Golf og er því mörgum kylfingnum, sem pantar sér golfferð að góðu kunn. Skrifstofan hennar er draumskrifstofa sérhvers kylfings, en veggina prýða m.a. fallegar myndir af brautum Fancourt golfvallarins í Suður-Afríku. Fyrir hrun var að sögn Margrétar algengara en nú að fólk ferðaðist í golf þangað. Lagðar voru nokkrar spurningar fyrir Margréti sem hún veitti góðfúslega svör við: Fullt nafn: Margrét Óskarsdóttir. Klúbbur: GKJ, þ.e. Golfklúbburinn Kjölur í Mosfellsbæ. Hvenær og hvar fæddistu? Í Reykjavík 16.10.1951. Hvar ertu alin upp? Í Reykjavík. Fjölskylduaðstæður? Spilar einhver í fjölskyldunni golf? Ég er gift Steinari Þór Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Rosie Jones – 13. nóvember 2011
Afmæliskylfingur dagsins er Rosie Jones, fyrirliði liðs Bandaríkjanna í Solheim Cup 2011. Rosie fæddist 13. nóvember 1959 í Santa Ana í Kaliforníu og er þvi 48 ára í dag. Hún á að baki 13 sigra á LPGA og vann sér á ferli sínum inn næstum $8.4 millijóna í verðlaunafé. Á unglingsárum sínum (1974-1976) varð hún þrívegis unglingameistari í New Mexico og vann New Mexico State Championship árið 1979. Leið Rosie lá næst í Ohio State University þar sem hún spilaði með golfliði háskólans. Árið 1981 var hún AIAW All American. Rosie komst strax í gegnum Q-school (varð í 7. sæti) árið 1982 og spilaði því alveg frá upphafi á LPGA mótaröðinni. Besti Lesa meira
Axel Þór Rúdolfsson, GR, sigraði á Opna Vetrarmóti Korpu
Opna vetrarmót Korpu var haldið í gær, laugardaginn 12.nóvember, í ótrúlegri blíðu og fallegu veðri. Kylfingar mættu spenntir til leiks, enda ekki oft sem þeir geta spilað golf hér á Íslandi í nóvember. Alls voru 100 kylfingar sem tóku þátt, þar af 5 konur. Veitt voru verðlaun fyrir 1.-3. sæti í punktakeppni, besta skor og nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins. Axel Þór Rúdolfsson, GR, kom, sá og sigraði á Opna Vetrarmótinu í Korpunni í gær. Hann vann höggleikinn, kom í hús á glæsilegum 74 höggum. Jafnframt sigraði hann í punktakeppninni – hlaut 38 punkta, en tók ekki verðlaun fyrir punktana, enda ekki hægt að taka verðlaun bæði fyrir Lesa meira
Evróputúrinn: Gonzalo Fernandez-Castaño þarf í umspil við Juvic Pagunsan þegar Barclays er frestað vegna þrumuveðurs
Eftir 54 spilaðar holur var allt hnífjafnt milli Spánverjans Gonzalo Fernandez-Castaño og Juvic Pagunsan frá Filipseyjum á Barclays Singapore Open. Mótið var stytt í 54 holu mót vegna óveðurs. Báðir voru þeir Gonzalo og Juvic á samtals -14 undir pari, þ.e. samtals 199 höggum, Gonzalo (66 61 72) og Juvic (66 66 67). Úrslit mótsins verða því að ráðast í bráðabana, en honum var enn frestað vegna veðurs. Báðir höfðu þó slegið upphafshögg sín og lenti bolti Gonzalo í sandglompu en Juvic klauf brautina svo að segja. Segja má að meiri sveiflur hafi verið í leik Fernandez-Castaño í mótinu en Filipseyingurinn (Pagunsan) hefir verið að spila jafnara golf. Til þess að Lesa meira
Greg Chalmers sigurvegari Opna ástralska – Tiger í 3. sæti –
Það var Ástralinn Greg Chalmers, sem bar sigur úr býtum á Opna ástralska. Samtals spilaði Chalmers hringina 4 á -13 undir pari, samtals 275 höggum (67 72 67 69). Í 2. sæti varð landi hans John Senden aðeins höggi á eftir Chalmers. Tiger Woods náði besta árangri sínum á árinu í golfinu og gaman að sjá hann hægt og sígandi vera að komast í sitt gamla form. Svona framhald lofar spennandi keppni um Forsetabikarinn. Segja má að arfaslakur 3. hringur í gær upp á 75 högg hafi kostað Tiger sigursætið, en aðeins munar 2 höggum á honum og Greg Chalmers sigurvegara mótsins. Tiger spilaði á samtals -11 undir pari, 277 Lesa meira
Óskar Pálsson endurkjörinn formaður GHR
Á heimasíðu GHR gefur að finna fundargerð frá aðalfundi GHR, sem haldinn var í s.l. viku, nánar tiltekið fimmtudaginn 10. nóvember 2011. Í henni segir: „Aðalfundur GHR var haldinn 10.nóv. 18 manns mættu á fundinn Fundarstjóri var Þorsteinn Ragnarsson Óskar Pálsson var endurkjörinn formaður GHR og stjórn er óbreytt. Nefndir eru allar óbreyttar nema í kappleikjanefnd þar sem Svavar Hauksson gaf ekki kost á sér og Jón Þorsteinn Hjartarson gaf ekki kost á sér í barna-og unglinganefnd. Ekki komu aðrir inn í þeirra stað. Óskar las skýrslu stjórnar og fór yfir það helsta sem fram fór á árinu, Þakkaði stjórn, nefndarmönnum, starfsfólki og öllum þeim sem komu að starfi fyrir Lesa meira








