Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2011 | 23:59

Sophie Ann Donald leit dagsins ljós í dag! Luke og Diane Donald eignast aðra dóttur

AP frétt: Kylfingur nr. 1 í  heiminum er nú faðir tveggja (barna). Eginkona Luke Donald fæddi stúlku að morgni föstudagsins 11. nóvember 2011 í úthverfi Chicago og báðum heilsast vel.  Litla stúlkan hefir þegar fengið nafn Sophie Ann Donald, en hún fæddist kl. 2:11 (8:11 að íslenskum tíma). Luke Donald á aðra dóttur Elle, sem fæddist á síðasta ári. Hann gat ekki annað en minnst á að árið sem hann varð nr. 1 fæddist önnur dóttir hans 11-11-11. Luke Donald skrifaði á twitter: “The No 1 has been gd 2 me, no more than 2day,” (ísl.: talan 1 hefir verið mér góð og aldrei meir en í dag). Luke Donald, sem Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2011 | 23:30

Juli Inkster og Anna Nordqvist í forystu á Lorenu Ochoa Invitational eftir 2. dag

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2011 | 18:00

Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Artist Open – Golfmót Listamanna – GOB – 2. júní 2011

Uppstigningadag 2. júní 2011 fór fram öðru sinni golfmót listamanna, nú á Bakkakotsvelli hjá GOB í Mosfellsdalnum. Fyrsta golfmót listamanna var haldið á Nesvelli hjá NK fyrir um ári síðan, 2010. 42 listamenn skráðu sig til leiks og luku 37 keppni. Ólíkt öðrum keppnum, voru nokkrir listamenn, þ.á.m. Þórhildur Þorleifsdóttir, sem tóku þátt sér til skemmtunar, þ.e. léku golf, golfleiksins vegna sbr. art gratia ars (list, listarinnar vegna), en voru ekki að keppa til verðlauna. Keppnisfyrirkomulag var punktakeppni með forgjöf og voru verðlaunin veglegir, listilega unnir verðlaunagripir. Í nándarverðlaun voru “snekkjur”. Gula mótorhjólið hans Gunnars Hanssonar var á staðnum, sem og lýsi til styrkingar keppendum, en hefð virðist komin á Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2011 | 17:30

Artist Open/Golfmót Listamanna, GOB – 2. júní 2011

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2011 | 16:00

USGA minnist þess að 100 ár eru liðin frá því að forgjafarkerfið var tekið upp – 2. grein af 4.

Eftir að orðið „forgjöf” (ens.: handicapping”) festist í sessi í kringum 1870 þá fór hratt fjölgandi tilvitnununum í það ásamt jafnhliða vexti í fjölda golfvalla og kylfinga á Bretlandi og Írlandi seint á 19. öld. Vinsældir leiksins gerðu það erfitt fyrir klúbbfélaga að hafa eftirlit með forgjöf klúbbfélaga, þannig að margir klúbbar byrjuðu að taka upp stærðfræðilegar formúlur til þess að ákvarða forgjöf. Vinsælasta aðferðin var að taka meðaltal af bestu 3 skorum yfir árið. Klúbburinn dró lægsta skorið frá meðaltalinu til þess að ákvarða forgjöfina. Jafvel þó  3 -skora-meðaltalið myndaði grundvöll forgjafar um allt Skotland og England, þá hlaut aðferðin ekki almenna viðurkenningu eða stuðning. Mestu mótmælin komu frá Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2011 | 13:30

Þorvaldur Hjaltason tekur ekki við stöðu framkvæmdastjóra GHG í kjölfar strangs dóms

Þorvaldur Hjaltason, GÚ, var dæmdur í 12 mánaða keppnisbann af aganefnd GSÍ, fyrir að skila inn röngu skorkorti í Opna Carlsberg mótinu á Bakkakotsvelli, 28. ágúst s.l. Að mati margra er hér um gífurlega strangan dóm að ræða. Þorvaldur var með tvö skorkort, annað sem var skorkort hans í mótinu og hitt sem hann hafði hreinskrifað og hugðist eiga. Á það skorkort skrifaði hann fugl á sig, á holu sem hann fékk skolla á, í mótinu. Síðan skilaði hann skorkortinu, sem aldrei var meiningin að skila. Aganefndin tók orð hans þar um ekki trúanleg og dæmdi hann í 12 mánaða keppnisbann, grundvallað á því að um ásetningsbrot Þorvalds hafi verið Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2011 | 13:00

Phil Mickelson fær inngöngu í frægðarhöll kylfinga 2012

Phil Mickelson mun hljóta inngöngu í fræðgarhöll kylfinga á næsta ári. Einn af  valdamestu mönnum í stjórn golfíþróttarinnar lýsti Phil sem hinni fullkomnu fyrirmynd. Tilkynnt var um að hinn 41 árs Phil myndi fá inngöngu í frægðarhöllina í Flórída á hóteli í Singpore.  Það var framkvæmdastjóri PGA, sem tilkynnti ákvörðunina og mærði einn vinsælasta kylfing golfíþróttarinnar (Phil Mickelson). Meðan fjölmiðlar eru enn uppfullir af kynþáttaníð Steve Williams í garð Tiger  bar Finchem ekkert nema lof á Mickelson. „Ímynd kylfinga og ímynd  golfíþróttarinnar er það sterkasta sem við höfum. Það er mesti kostur okkar sem stofnunar,“ sagði Finchem við blaðamenn. „Phil hefir gefið til íþróttarinnar á jákvæðan hátt s.l. tvo áratugi Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2011 | 12:00

Evróputúrinn: Morrison í forystu á 2. degi Barclays í Singapore

Bretinn James Morrison er sem stendur í 1. sæti á Barclays í Singapore þegar mótið er hálfnað.  Hann er búinn að spila frábært golf og fylgdi eftir frábæru skori frá því í gær upp á 62 högg með öðru skori undir 70 í dag, þ.e. 68 höggum. Á hringnum fékk Morrison 6 fugla og 1 skolla á 13. braut. Samtals hefir Morrison því spilað á 130 höggum (62 68) þ.e. samtals -12 undir pari. Spilað er á 2 völlum í Singapore: Tanjong og Serapong og spilaði Morrison á Serapong í dag, sem þykir erfiðari völlur. Hann hafði eftirfarandi að segja eftir hringinn: „Þessi golfvöllur er svo sannarlega erfiðari og það Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2011 | 11:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ólöf Baldursdóttir – 11.11.11

Afmæliskylfingur á þessum flotta degi, 111111,  er Ólöf Baldursdóttir, GK. Ólöf er í kvennanefnd Golfklúbbsins Keilis og hefir gengið virkilega vel á mótum sumarsins. T.a.m. varð hún í 1. sæti á Soroptimistamótinu í Oddinum, þann 4. júní, fékk glæsilega 44 punkta og fékk jafnframt nándarverðlaun á erfiðu par-3, 6. brautini á Galvin Green mótinu í Grafarholtinu 19. júní í sumar. Ólöf er gift Arnari H. Ævarssyni. Golf 1 óskar afmæliskylfingum dagsins innilega til hamingju með afmælið! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.:  Fuzzy Zoeller, 11. nóvember 1951 (60 ára); Gunnar Ringsted, 11. nóvember 1952 (59 ára) Arnar Unnarsson, GR, 11. nóvember 1967 (44 ára); Róbert Garrigus, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2011 | 10:30

Tiger í forystu þegar Opna ástralska er hálfnað

Tiger Woods blómstraði í góðu veðurskilyrðunum í Ástralíu og náði 1 höggs forystu nú þegar Opna ástralska er hálfnað. Þetta er í fyrsta skipti í ár sem Tiger leiðir í móti. Hinn 35 ára gamli fyrrum nr. 1 í heiminum var himinlifandi með hring upp á 67 þegar hann kom í hús á samtals -9 undir pari, samtals höggi á undan heimamanninum Peter O´Malley, en O´Malley var með lægsta skor dagsins, 66 högg. Ástralinn Jason Day, sem fagnar 24 ára afmæli sínu á morgun og er jafnframt nr. 7 á heimslistanum spilaði með æskuhetju sinni Tiger fyrir framan troðfullan völl af áhorfendum á the Lakes er í 3. sæti, á Lesa meira