7 fyndnustu golfauglýsingarnar
Á Golf.com gefur að finna 7 fyndnar golfauglýsingar. Með því að smella á neðangreinda tengla er hægt að sjá golfauglýsingarnar fyndnu: GOLFAUGLÝSING NR. 1 – DARTH VADER SPILAR GOLF GOLFAUGLÝSING NR. 2 – FUNDUR FÓLKS SEM LÍTUR ÚT EINS OG PHIL MICKELSON GOLFAUGLÝSING NR. 3 – ARNOLD PALMER – THIS IS SPORTS CENTER GOLFAUGLÝSING NR. 4 – Á FUNDI HJÁ FedEx GOLFAUGLÝSING NR. 5 – MILLER LITE „THE FIRST LITE BEER OPEN“ GOLFAUGLÝSING NR. 6 – GOLF BABY GOLFAUGLÝSING NR. 7 – MATARPLÖN TIGER
Mexíkanski golffréttamaðurinn Eduardo Guillén látinn
Fyrir rúmri viku , 7. nóvember 2011, lést í Mexíkó, eftir harða baráttu við krabbsmein mexíkanski golffréttamaðurinn Eduardo Guillén eða Góði Guillo (spæ: El Buen Guillo) eins og margir vina hans kölluðu hann. Fráfall hans er mikill sjónarsviptir í Mexíkó, því það eru ekki margir sem sinna golffréttamennsku þar. Eduardo, sem sjálfur var forfallinn kylfingur, með nánast óslökkvandi forvitni varðandi allt, sem sneri að golfi, varð aðeins 56 ára (fæddur 6. júlí 1955). Eduardo skrifaði fréttapistla sína á golffréttamiðilinn par-7 on line. Heimild: Tour de las Americas
Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Minningarmót Guðmundar Gunnarssonar, hjá GSG, 2. júní 2011
Uppstigningadag 2. júní 2011 fór fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði minningarmót um Guðmund Gunnarsson. Mótið var haldið til að heiðra minningu Guðmundar, sem lést í svefni aðfararnótt 9. ágúst 2010. Guðmundur var félagi í GKB & GR og lék oft á Kirkjubólsvelli og lék sinn síðasta hring á Kirkjubólsvelli daginn fyrir andlátið. Þátttakendur voru 107 og luku 102 keppni, þar af 33 konur og lauk 31 kona keppni, sem er nokkuð hátt hlutfall kvenna í mótum. Fyrir utan hversu vænn Sandgerðisvöllur er undir fótinn og konum, sem öðrum þykir gott að spila hann þá var keppt í bæði karla- og kvennaflokki. Hér má sjá myndaseríu úr mótinu: MYNDASERÍA ÚR MINNINGAMÓTI Lesa meira
Minningarmót Guðmundar Gunnarssonar hjá GSG – 2. júní 2011
Steve Stricker nógu hress til að taka þátt í Forsetabikarnum
Steve Stricker hefir látið frá sér fara að hann sé nógu hress til að spila fyrir Bandaríkin í Forsetabikarnum, sem hefst í þessari viku á Royal Melbourne í Ástralíu. Hinn 44 ára (Steve Stricker) hefir ekki spilað síðan á Tour Championship í Atlanta seint í september vegna meiðsla í hálsvöðva, en hann mætti á æfingu í gær. „Mér líður vel, ég er þreyttur en það er meira vegna ferðalagsins en nokkurs annars.“ sagði hann, en hann er kominn til Ástralíu. „Líkamlega líður mér vel og hálsinn er ekkert mál.“ „Ég tók mér frí og hvíldi mig. Ég hef verið í meðferð heima í gert teygjuæfingar í sérstöku tæki of fékk Lesa meira
Heimslistinn: Tiger aftur meðal 50 bestu í heiminum
Eitt með því ánægjulegra um helgina var að sjá Tiger standa sig vel á Opna ástralska. Hann náði 3. sætinu, var aðeins 2 höggum á eftir Ástralanum Greg Chalmers og 1 höggi á eftir John Senden. Tiger sem var kominn niður í 58. sætið á heimslistanum í síðustu viku hækkar sig um 8 sæti er kominn upp í 50. sætið aðeins 0,03 pkt. á undan Retief Goosen frá Suður-Afríku, sem átti slakt mót á Singapore Open, var í 46. sæti. Spánverjinn Gonzalo Fernandez-Castaño fer úr 126. sætinu í það 58. (sem er hækkun um 68 sæti) vegna sigur síns í bráðabananum í morgun á Barclays Singapore. Greg Chalmers sem sigraði Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Charles Blair Macdonald – 14. nóvember 2011
Charles Blair Macdonald, f. 14. nóvember 1855 – d. 21. apríl 1939 er afmæliskylfingur dagsins. Um hann verður nánar fjallað í kylfingum 19. aldar síðar. Hér skal látið staðar numið við að nefna að Charles hafði meiriháttar áhrif á þróun golfíþróttarinnar í Bandaríkjunum. Hann byggði fyrsta 18 holu golfvöllinn í Bandaríkjunum og var drifkrafturinn og frumkvöðull að stofnun bandaríska golfsambandsins (USGA = United States Golf Association). Charles sigraði fyrsta US Amateur golfmótið og byggði síðar suma af helstu golfvöllum í Bandaríkjunum. Hann er oft nefndur faðir bandarísks golfarkítektúrs. Charles Blair Macdonald er í frægðarhöll kylfinga. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Petrea Jónsdóttir, f. 14. nóvember Lesa meira
GVS: Skúli Bjarnason, GVS, sigraði í Opnu móti á Vatnsleysunni
Í gær, sunnudaginn 13. nóvember fór fram 9 holu opið mót á Kálfatjarnarvelli hjá GVS. Það voru 66 manns skráðir í mótið og flestallir 64 luku keppni, þar af 12 konur, sem er góð þátttaka kvenna í golfmóti. Veitt voru verðlaun fyrir efstu 3 sæti í punktakeppni með forgjöf. Helstu úrslit urðu eftirfarandi: 1. sæti Skúli Bjarnason, GVS, 31 pkt. 2. sæti Árni Þorsteinsson, NK, 28 pkt. 3. sæti Þorgeir Sæberg Sigurðsson, GKF, 28 pkt. Sjá má úrslitin í Opnu móti GVS, með því að smella HÉR:
GS: Elísabet, GKG og Guðmundur Rúnar,GS, sigruðu á Vetrarmóti GS
Það var sannkölluð sumarblíða í gær í Leirunni þegar 95 manns, þar af 5 konur voru ræst út með shotgun fyrirkomulagi á slaginu 10:30. Hólmsvöllur er í sérlega góðu ásigkomulagi miðað við árstíð og flatirnar fínar. Mótið var opið punktamót og verðlaun veitt fyrir besta skor og fyrstu 3 sætin í punktakeppni með forgjöf. Athyglivert er að af einungis 5 kvenkylfingum sem tóku þátt voru 2 sem voru meðal 3 efstu í punktakeppninni; Elísabet Björnsdóttir, GKG, sigraði mótið og Guðrún Kristín Bachman, GR, varð í 3. sæti. Glæsilegur árangur hjá konunum! Helstu úrslit í mótinu eru þessi: Besta skor: 1. sæti Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, (Klúbbmeistari) GS (2011), 73 högg. 2. Lesa meira
Evróputúrinn: Gonzalo Fdez-Castaño sigraði umspilið við Juvic Pagunsan á Barclays
Spánverjinn Gonzalo Fernandez-Castaño vann Juvic Pagunsan frá Filipseyjum, með fugli á 2. holu umspils, sem Filipseyingurinn knúði fram eftir að Fdez-Castaño glutraði niður 4 högga forystu í Barclays Singapore Open. Margsinnis þurfti að fresta leik á mótinu, sem m.a. var stytt í 54-holu mót vegna slæms veður, þ.e. mikilla rigninga og tilkynninga um þrumur og eldingar. Fyrir umspilið á voru báðir (þ.e. Gonzalo og Juvic) á -14 undir pari, þ.e. voru báðir búnir að spila hringina 3 á samtals 199 höggum, þegar leik var frestað vegna rigninga og spár um eldingar. Storminn stytti stuttlega og gátu báðir slegið teighögg sín en síðan neyddi enn meiri rigning fram frestun á umspilinu Lesa meira








