Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2011 | 07:00

Óskar Pálsson endurkjörinn formaður GHR

Á heimasíðu GHR gefur að finna fundargerð frá aðalfundi GHR, sem haldinn var í s.l. viku, nánar tiltekið fimmtudaginn 10. nóvember 2011.  Í henni segir:

„Aðalfundur GHR var haldinn 10.nóv. 18 manns mættu á fundinn

Fundarstjóri var Þorsteinn Ragnarsson

Óskar Pálsson var endurkjörinn formaður GHR og stjórn er óbreytt.

Nefndir eru allar óbreyttar nema í kappleikjanefnd þar sem Svavar Hauksson

gaf ekki kost á sér og Jón Þorsteinn Hjartarson gaf ekki kost á sér í

barna-og unglinganefnd. Ekki komu aðrir inn í þeirra stað.

Óskar las skýrslu stjórnar og fór yfir það helsta sem fram fór á árinu,

Þakkaði stjórn, nefndarmönnum, starfsfólki og öllum þeim sem komu að starfi

fyrir klúbbinn fyrir vel unnin störf.

Óskar kom inn á það að á næsta ári er 60 ára afmæli GHR og Íslandsmót í höggleik

á Strandarvelli, hann óskaði eftir því að félagar GHR gæfu kost á sér í vinnu fyrir

klúbbinn við þau tímamót.

Framfaraverðlaun voru veitt eins og áður, að þessu sinni komu þau í hlut

Guðrúnar Drafnar Eyjólfsdóttur. Óskum við henni innilega til hamingju.

 

Stjórnina skipa:

Formaður:         Óskar Pálsson

Varaformaður:  Ólafur Stolzenwald

Gjaldkeri:           Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir

Ritari:                 Bjarni Jóhannsson

Meðstjórnandi:   Árni Þorgilsson

 

1. Varamaður: Guðný Rósa Tómasdóttir

2. Varamaður: Loftur Þór Pétursson.“

 

Heimild: golf.is/GHR