Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 18. 2011 | 14:00

Barack Obama spilar golf í Hawaii

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, spilaði golf s.l. mánudag (14. nóvember 2011) á Mamala Bay golfvellinum, rétt hjá sameinuðu herstöðvunum Pearl Harbor-Hickham, á Hawaii. Með honum í holli voru starfsmenn Hvíta hússins, Marvin Nicholson og Pete Selfridge og æskuvinur Obama, Robert „Bobby” Titcomb, frá Oahu. Obama var í Hawaii á fjáröflunarsamkomu, en hélt þaðan til Ástralíu og Indónesíu. Hann er á 9 daga ferðalagi, sem lýkur sunnudaginn 20. nóvember, þegar hann snýr aftur til Washington. Forsetafrú Bandaríkjanna, Michelle Obama, er einnig með honum í ferðinni.  Forsetinn ætlar að reyna, auk skyldustarfa sinna þessa 9 daga, að hvíla sig aðeins eftir fremur annasama 3 daga á Asia-Pacific Economic Cooperation ráðstefnunni og því er Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 18. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Marga Stubblefield – 18. nóvember 2011

Marga Stubblefield er afmæliskylfingur dagsins en hún fæddist 18. nóvember 1951 og á því 60 ára stórafmæli í dag. Marga spilaði sem áhugamaður í bandaríska háskólagolfinu með University of Hawaii. Hún komst á LPGA 1976 og spilaði á túrnum á árunum 1976-1984 og átti síðan stutta endurkomu á LPGA á árunum 1990-1991.  Marga er ekki með þekktari kylfingum – hún vermdi sjaldan efstu sætin. Besti árangur hennar á LPGA er að deila 7. sætinu í móti 1981, en helsta afrekið er að hafa haft atvinnu af golfinu, sem hún hefir reyndar enn, því hún er vinsæll golfkennari í Hawaii. Á dögum sínum í atvinnugolfinu var hún auk þess með nokkra Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 18. 2011 | 07:00

Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Opna Heimsferðamótið hjá GHG og GOS – 5. júní 2011

Boðið var upp á þá skemmtilegu nýbreyttni sunnudaginn 5. júní 2011 í Opna Heimsferðarmótinu að spila fyrst 9 holur á Gufudalsvelli í Hveragerði og síðan 9 holur á Svarfhólsvelli á Selfossi. Það má alveg verða framhald á þessu þ.e. að nýta 2 nálæga 9 holu velli þannig að með því að spila þá báða sé spilaður einn 18 holu hringur. Almenn ánægja var með framkvæmd mótsins. Talað var um að halda samskonar mót að ári liðnu og byrja þá að spila á Selfossi og taka seinni 9 í Hveragerði og skiptast síðan á, ár hvert. Veður var heldur rysjótt, sólskin í bland við skúri en 93 keppendur mótsins virtust ekki Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 18. 2011 | 06:59

Opna Heimsferðamótið hjá GHG og GOS – 5. júní 2011

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 18. 2011 | 05:30

Bandaríkin 7 – Alþjóðaliðið 5 eftir 2. dag Forsetabikarsins

Úrslitin í fjórboltaleikjum dagsins á Forsetabikarnum eru þau að enn hefir bandaríska liðið 2 vinnings forskot á Alþjóðaliðið.  Staðan eftir 2. dag er 7-5 Bandaríkjunum í vil. Tiger, sem í dag spilaði með Dustin Johnson tapaði leik sínum við Aron Baddeley og Jason Day, en þeir síðarnefndu áttu eina holu á Tiger/Johnson fyrir rest. Þrátt fyrir tapið sýndi Tiger góða takta, setti m.a. niður fuglapútt á erfiðu 4. brautinni, sem var frábært.  Fuglapúttið frábæra hjá Tiger má sjá með því að smella HÉR:  Phil Mickelson kallaði aðstæður til spils „geggjaðar“ (ens. crazy) en mjög vindasamt var í Melbourne og hafði Greg Norman vonast til að þær aðstæður væru liði sínu Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2011 | 23:30

Birgi Leif gekk vel í dag í Plantation – spilaði á 67 höggum á 2. degi úrtökumótsins

Birgi Leif Hafsteinssyni gekk flest í haginn á 2. degi 2. stigs úrtökumóts á PGA mótaröðina í Plantation í Flórída. Birgir Leifur spilaði á 67 höggum, í dag. Þegar mótið er hálfnað deilir Birgir Leifur 34. sætinu ásamt 2 öðrum, samtals á -5 undir pari, samtals á 137 höggum (70 67). Birgir fékk 6 fugla á hringnum en aftur á móti slæman skramba á par-4, 8. brautinni. HEFÐI Birgir Leifur ekki fengið skrambann heldur spilað á pari HEFÐI hann deilt 23. sætinu með nokkrum öðrum og verið nær markmiði sínu að vera í hópi þeirra 20, sem komast í gegnum 2. stigið og spila á lokaúrtökumótinu í Flórída í desember. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2011 | 23:00

LPGA: Na Yeon Choi lék best á CME Group Titleholders á 1. mótsdegi

Í dag hófst lokamót LPGA, CME Group Titleholders. Það var suður-kóreanska Na Yeon Choi sem lék best allra á 66 höggum, þ.e -6 undir pari á Grand Cypress Resort, í Flórída. NY fékk 7 fugla og 1 skolla á 18. braut. Öðru sætinu deila Karrie Webb frá Ástraliu og hin bandaríska Morgan Pressel, báðar höggi á eftir NY, hvor. Í 4. sæti eru Cristie Kerr og María Hjorth á 68 höggum og 6. sætinu deila 7 stúlkur m.a. Paula Creamer, Anna Nordqvist og Sandra Gal. Til þess að sjá stöðuna á CME Group Titleholders eftir 1. dag smellið HÉR:

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2011 | 18:48

Evróputúrinn: Joost Luiten í 1. sæti á Iskandar Johor Open eftir 1. dag

Mót vikunnar á Evróputúrnum er Iskandar Johor Open, sem fram fer dagana 17.-20. nóvember í Johor í Malasíu. Eftir 1. dag er Hollendinurinn Joost Luiten í efsta sæti kom inn á glæsilegum 63 höggum í dag; – 8 undir pari. Luiten spilaði skollafrítt fékk 8 fugla, þar af 4 á síðustu 4 holunum, þ.e. 15.-18. holu. 3 voru höggi á eftir Luiten; Pádraig Harrington, Marcus Fraser og Grégory Bourdy, allir á 64 höggum.  Fjölmargir eiga eftir að ljúka leik, en mótinu var frestað og verður framhaldið á morgun.

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2011 | 17:30

Hollis Stacy, 57 ára, fær inngöngu í frægðarhöll kylfinga 2012

Tilkynnt var í dag að hin 57 ára gamla Hollis Stacy hlyti inngöngu í frægðarhöll kylfinga á næsta ári.  Golf 1 fjallaði um frægðarhallarkylfinginn verðandi Hollis Stacy í grein í 6. október s.l. sem lesa má með því að smella HÉR: Hollis líkir upptöku sinni í frægðarhöllina við leikinn Monopoly. Hún sér fyrir sér að hver risamótasigur hennar (en hún á að baki 4; m.a. 3 á US Women´s Open) sem hótel í þessu vinsæla spili. Hún fékk ekki inngöngu á grundvelli punkta heldur sem gamalreyndur kylfingur (ens. veteran). Hún hélt sjálf að þetta myndi aldrei gerast eða yrði nokkuð sem 83 ára gömul móðir hennar, Matthilda, ætti eftir að Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 17. 2011 | 16:00

Natalie Gulbis í Morning Drive að tala um lokamót keppnistímabilsins hjá LPGA – CME Group Titleholders sem hefst í dag

Í Bandaríkjunum er stórskemmtilegur morgunþáttur í sjónvarpi sem nefnist Morning Drive og er hann í uppáhaldi hjá mörgum kylfingnum.  Í tilefni af því að lokamót LPGA á keppnistímabilinu, CME Group Titleholders hefst í dag var Natalie Gulbis fengin í þáttinn, til þess m.a. að ræða um mótið. Sjá má myndskeiðið með því að smella HÉR: NATALIE GULBIS Í MORNING DRIVE AÐ TALA UM CME GROUP TITLEHOLDERS