Tiger Woods spilar í Abu Dhabi í janúar 2012
Tiger Woods hyggst hefja keppnisgolfið á næsta ári með því að spila í fyrsta sinn á Abu Dhabi Championship, sem fram fer 26.-29. janúar skv. heimildum skipuleggjenda mótsins. Venjulega hefir Tiger hafið keppnistímabilið með leik á Farmers Insurance Open, í Torrey Pines. En á næsta ári verður allt öðruvísi (vonandi líka leikur hans!) En aðalástæða þess að hann spilar í Abu Dhabi er að hann fær 7 stafa upphæð bara fyrir að mæta á mótið! Ástæðan fyrir að Abu Dhabi greiðir svo háar fjárhæðir fyrir kylfinga er til þess að vera betri en samkeppnin „Dubai Desert Classic.“ Framkvæmdastjóri mótsins Faisal al-Sheikh montaði af því að „„risarnir í golfinuf” væru að koma til Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Joyce Wethered – 17. nóvember 2011
Joyce Wethered, Lady Heathcoat-Amory fæddist 17. nóvember 1901 í Surrey á Englandi og dó í London 1 degi eftir 96 afmælisdag sinn, 1997 í London. Hún er álitin einn besti kvenkylfingur sem Englendingar hafa átt. Í dag hefði Joyce átt 110 ára afmæli. Joyce og bróðir hennar Roger, en Roger var T-1 á Opna breska 1921 (hann tapaði síðan í bráðabana), lærðu að spila golf sem smábörn. Joyce vann Britsh Ladies Amateur Golf Championship 4 sinnum (1922, 1924, 1925, and 1929) og var enskur meisari kvenna 5 ár í röð (1920–24). Joyce giftist Sir John Heathcoat-Amory árið 1924 og varð þar eftir titluð Lady Heathcoat-Amorey. Leikur hennar og golfsveifla voru dáð af Lesa meira
Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið: Soroptimistamótið hjá GO – 4. júní 2011
Hið geysivinsæla golfmót Soroptimista fór að þessu sinni fram 4. júní 2011, á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi. Hugtakið „soroptimisti“ kemur úr latínu og þýðir það sem er best fyrir konur. Enda rennur allur ágóði golfmótanna til verðugs verkefnis í þágu kvenna eða verkefna sem þeim eru hugleikin. Í ár voru 168 konur skráðar í mótið og 159 luku keppni. Helstu úrslit urðu eftirfarandi: Úrslit: Punktakeppni með forgjöf: Flokkur 0-20 1. Herdís Sveinssdóttir 36 pkt. 2. Sólrún Steindórsdóttir 36 pkt. 3. Jóhanna Bárðardóttir 36 pkt. 4. Helga Ragnarsdóttir 35 pkt. 5. Íris Katla Guðmundsdóttir 35 pkt. 6. Sigrún Edda Jónsdóttir 34 pkt. 7. Þórdís Geirsdóttir 33 pkt. Flokkur 20,1-36 1. Lesa meira
Úrslit úr fyrstu fjórmenningsleikjum Forsetabikarsins
Í Ástralíu fór fram í nótt fyrstu fjórmenningsleikir Forsetabikarsins. Til þess að sjá úrslit úr fyrstu leikjum smellið HÉR:
Soroptimistamót hjá GO – 4. júní 2011
Birgir Leifur spilaði á -1 undir pari á 1. degi úrtökumóts PGA í Flórída
Birgir Leifur lauk við að spila fyrsta hring á úrtökumótinu fyrir PGA mótaröðina, sem fram fer í Plantation í Flórída. Birgir Leifur spilaði á -1 undir pari, 70 höggum og er sem stendur T-44, þ.e. deilir 44. sætinu með 16 öðrum þ.á.m. Gangajeet Bhullar frá Indlandi og Michael Sims frá Bermúda. Birgir Leifur fékk 4 fugla og 3 skolla á hringnum. Skorin voru gríðarlega lág í dag, fimm eru í efsta sæti, spiluðu allir á 64 höggum í dag. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag úrtökumótsins smellið HÉR:
Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Sjóarinn síkáti – GG – 4. júní ´11
Sjóarinn Síkáti Open – Þorbjörninn hf. eitt stærsta golfmót Grindvíkinga, sem lengi hefur verið mjög vinsælt meðal kylfinga og er hluti af veisluhöldum í tilefni sjómannadagsins í Grindavík: hátíðinni „Sjóaranum síkáta“, fór fram laugardaginn 4. júní 2011 í góðu veðri en nokkrum strekkingi. Hátíðabragur var á Grindavík og hús skreytt flöggum og fíneríi og var golfskálinn engin undantekning. Góð þátttaka var á Sjóaranum Síkáta Open og voru 77 manns skráðir til keppni, en þar af luku keppni 74, 72 karlar og 2 konur. Hámarksforgjöf karla var 24 og kvenna 28. Leikfyrirkomulag var punktakeppni með og án forgjafar og voru verðlaunin veglegar fiskafurðir frá Þorbirni hf. eins og ávallt hefur verið Lesa meira
Sjóarinn síkáti í Grindavík – hjá GG – 4. júní 2011
Birgir Leifur hefur leik á 2. stigi úrtökumóts fyrir PGA í Flórída í dag
Nákvæmlega á birtingatíma þessarar fréttar (13:35 að íslenskum tíma) er Birgir Leifur Hafþórsson að hefja leik á 10. teig Plantation Preserve golfvallarins í Plantation, Flórída á 2. stigi úrtökumóts fyrir PGA mótaröðina. Það er spáð ágætisveðri í dag, um 22-28° hita, öfugt við á morgun en þá er búist við þrumum og eldingum s.s. þetta svæði í Flórída er frægt fyrir. Það er Stefán Már Stefánsson, GR og stigameistari Eimskipsmótaraðar GSÍ 2011, sem er á pokanum hjá Birgi Leif. Meðal 80 mótherja Birgis Leifs eru ýmis þekkt nöfn, m.a. Notah Begay, sem er einkavinur Tiger Wood; Gangajeet Bhullar, sem er einn besti kylfingur Indlands; Michael Sims frá Bermúda og Bandaríkjamaðurinn Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Barbara Romack – 16. nóvember 2011
Barbara Gaile Romack fæddist 16. nóvember 1932 í Sacramento, Kaliforníu og er því 79 ára í dag. Hún sigraði North and South Women´s Amateur mótið í Pinehurst 1952, Canadian Women´s Amateur 1953 og árið 1954 vann hún sjálfa Mickey Wright í US Women´s Amateur. Í kjölfarið var henni m.a. boðið í Hvíta húsið og hún og Bandaríkjaforsetinn Dwight Eisenhower urðu góðir vinir. Árið 1955 varð Romack í 2. sæti á eftir Jessie Valentine í British Ladies Amateur, en mótið fór fram í Royal Portrush golfklúbbnum á Norður-Íralndi. Vegna afreka hennar þar var hún á forsíðu Sports Illustrated 16. apríl 1956. Í maí 1957 giftist hún Edward Wayne „Bud“ Porter, aðstoðargolfkennara á Lesa meira







