LET: Mari Suursalu – fyrsti eistneski kvenatvinnukylfingurinn
Mari Suursalu er brautryðjandi þar eð hún er fyrsti kvenatvinnukylfingurinn frá Eistlandi. Þessi 25 ára stúlka er frá Tallinn, höfuðborg Eistlands og aðeins 1 af 3 atvinnukylfingum í Eistlandi. Mari Suursalu Bróðir hennar, Mark, 20 ára og vinur þeirra Egert Põldma, 22 ára, gerðust báðir atvinnukylfingar og spila í Estonian Golf and Country Club, einum af 3 keppnisgolfvöllum í Eistlandi. Klúbburinn er á norðurströndinni – og er golfvöllur klúbbsins viðurkenndur sem keppnisvöllur. T.a.m. fór þar fram úrtökumót fyrir Omega Mission Hills World Cup í ágúst. Á næsta ári fer þar einnig fram 2012 Estonian Open. Mari er fædd og uppalin í Tallinn og lærði að spila golf af fjölskyldu sinni. Lesa meira
Afmæliskylfingar dagsins: Ingvi Rúnar og Azahara Muñoz – 19. nóvember 2011
Það eru spænski kylfingurinn Azahara Muñoz Guijarro og Ingvi Rúnar Einarsson, GK sem eru afmæliskylfingar dagsins, en þau eru bæði fædd fæddist 19. nóvember, Azahara 1987 í Málaga, á Spáni og er því 24 ára í dag, en Ingvi Rúnar fæddist 50 árum áður, 1937 og er því 74 ára. Ingvi Rúnar er félagi í Golfklúbbnum Keili og hefir mikinn áhuga á golfi; heldur m.a. úti hópsíðunni Kylfingar á Facebbook. Azahara spilar bæði á Evróputúrnum og LPGA (Ladies Professional Golf Association) og háði frumraun sína á Solheim Cup nú í ár í Killeen Castle, þegar lið Evrópu vann lið Bandaríkjanna. Góðir kylfingar hér á ferð! Golf 1 óskar afmæliskylfingunum Lesa meira
Þing Golfsambands Íslands hefst í dag
Þing Golfsambands Íslands verður haldið í dag, 19. nóvember 2011, í Fjölbrautarskólanum í Garðbæ og hefst stundvíslega kl. 10:00 með skýrslu forseta GSÍ. Eiginlega var tekið forskot á sæluna í gær, 18. nóvember þegar GSÍ var með ráðstefnu milli 16:00 – 19:00 þar sem tekin var til umfjöllunnar rekstur golfklúbba. Golfþing er haldið annað hvert ár og er þá kosið í stjórn GSÍ og önnur helstu embætti GSÍ. Jafnframt fara á þinginu fram umræður um mótun framtíðarstefnu íslensks golfs. Fyrir tveimur árum tóku 130 manns þátt á þingi GSÍ, sem þá var haldið í Laugardalshöll og er búist við fleiri þátttakendum í ár, enda fer vegur golfíþróttarinnar vaxandi.
Bandaríkin 13 – Alþjóðaliðið 9 – Els/Ishikawa þeir einu sem unnu leik sinn í fjórmenningnum fyrir Alþjóðaliðið
Á 3. degi Forsetabikarsins var keppt bæði í fjórmenningi og fjórbolta. Alþjóðaliðið var burstað í fjórmenningnum í Forsetabikarnum. Bandaríska liðið vann alla leiki sína… nema einn: Bill Haas og Matt Kuchar töpuðu fyrir Ernie Els og Ryo Ishikawa 1-0. „Ég veit að það leit ekkert vel út að tapa fyrstu tveimur leikjunum, en ég fann að Ishikawa var að koma til,“ sagði Els, sem aðeins einu sinni hefir tapað öllum leikjum sínum í Forsetabikarnum, en það var árið 2000, þegar árangur hans var 0-5! Els, 42 ára hefði auðveldlega getað beðið um að nýjan spilafélaga t.d. landa sinn og skjólstæðing Charl Schwartzel, en þeir eru líka miklir vinir, en Els Lesa meira
Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Grand Open hjá GSE – 13. júní 2011
Glæsilegt Grand Open golfmót fór fram á Setbergsvelli í Hafnarfirði, 2. í Hvítasunnu, mánudaginn 13. júní í sumar. Alls voru 104 kylfingar skráðir í mótið og 98 luku keppni; 86 karlar og 12 konur. Keppnisfyrirkomulag var punktakeppni með forgjöf og verðlaun veitt fyrir 5 efstu sætin og jafnframt 69. sætið. Eins voru veitt verðlaun fyrir besta skor án forgjafar, en ekki hægt að taka verðlaun bæði fyrir besta skorið og verðlaun í punktakeppni. Veitt voru nándarverðlaun á öllum par-3 brautum og dregið úr fjölda skorkorta. Skorkortavinningar voru fjölmargir: 2 x steikarhlaðborð fyrir tvo á Brasserie Aski. 5 x gjafabréf frá Dominos. 5 x gjafabréf frá Hamborgarafabrikkunni. 2 x æfingaboltar merktir Lesa meira
Grand Open á Setbergsvelli hjá GSE – 13. júní 2011
LPGA: Na Yeon Choi heldur forystunni þegar CME Group Titleholders er hálfnað
Na Yeon Choi frá Suður-Kóreu leiðir þegar síðasta mót á LPGA mótaröðinni, keppnistímabilið 2011, CME Group Titleholders mótið er hálfnað. NY er búin að spila á samtals – 7 undir pari, 137 höggum (66 71). Í 2. sæti er þýska W-7 módelið Sandra Gal, aðeins höggi á eftir NY. Þriðja sætinu deila Hee Young Park og Paula Creamer. Til þess að sjá stöðuna að öðru leyti, á CME Group Titleholders, þegar mótið er hálfnað smellið HÉR:
Birgir Leifur spilaði 3. hring á úrtökumótinu í Plantations á 76 höggum
Birgir Leifur Hafsteinsson lauk 3. degi á úrtökumótinu í Plantation á 76 höggum. Hann er á samtals sléttu pari eftir 3 keppnisdaga, búinn að spila á samtals 213 höggum (70 67 76). Sem stendur er Birgir Leifur T-58, þ.e. hann deilir 58. sætinu með öðrum. Golf 1 óskar Birgi Leif góðs gengis á morgun! Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag úrtökumótsins, smellið HÉR:
Kylfingar 19. aldar: nr. 24 Alexa Stirling Fraser
Alexa Stirling Fraser fæddist í Atlanta, Georgiu 5. september 1897 og rétt sleppur inn sem „kylfingur 19. aldar“ en þeir sem þar falla undir skv. skilgreiningu Golf 1 eru þeir sem fæddir eru á 19. öld. Í raun réttri var allur golfferill hennar á framanverðri 20. öld. Alexa fékk golfþjálfun sína frá unga aldri í Atlanta Athletic Club þ.e. East Lake Golf Club, hjá Stewart Maiden, sem var golfkennari klúbbsins og hafði lært í Carnoustie í Skotlandi. Stirling var frábær í golfi þegar sem krakki og vann m.a. 3 US Women´s Amateur mót í röð. Fyrsta sigur sinn vann hún 1916. Þegar engin golfmót voru haldin 1917 og 1918 meðan Lesa meira
Gary Player hannar Los Micos golfvöllinn í Honduras
Ein af golfgoðsögnunum þremur, Gary Player, heimsótti fyrir mánuði síðan (19. október 2011) Los Micos Beach & Golf Resort. Los Micos er nálægt Tela víkinni á norðurströnd Honduras. Gary Player sér um alla hönnum á golfvellinum í Los Micos, en þar er verið að byggja 5-stjörnu golfhótel, aðstöðu fyrir margslags vatnsíþróttir m.a siglingar og 18 holu keppnisgolfvöll. Náttúran í Telavíkinni er mjög viðkvæm, en þar er ríkt dýralíf, mikið af suðrænum trjám og blómum og t.a.m. yfir 350 fuglategundir. Stjórn Honduras hefir að markmiði umhverfisvæna hönnun á Los Micos m.a þannig að tekið sé tillit til náttúrulegra einkenna landsins við alla hönnun. Gary Player sagði um þetta 1. verkefni sitt Lesa meira









