Veðrið og áhrif þess á golfið
Nú er sá tími sem nánast ekkert er hægt að spila golf hér á Íslandi – snjór og haglél skiptast á að lama umferð og það, myrkrið, slæmt skyggni og kuldi gera það að verkum að fæst okkar fara út í golf. Þessi tími er þó e.t.v. sá mikilvægasti í golfinu á árinu. Um að gera að láta veðrið ekki hafa áhrif á sig! Nú er að draga fram pútterinn og wedge-ana og æfa stutta spilið innandyra – sem oft situr á hakanum yfir sumartímann. Eins má fara í upphitaðan æfingabás og slá nokkur högg – best að koma sér upp rútínu og halda henni – ekki komast úr æfingu! Lesa meira
Nýi Footjoy FJ Sport 2012 golfskórinn
Footjoy FJ Sport 2012 golfskórinn, sem var hannaður til að sýna óviðjafnanlegan árangur, er fáanlegur í fyrsta skipti með hinni nýju BOA L4 reimingartækni. Boa L4 reimingartæknin sér til þess að skórinn situr einstaklega vel og hægt er að stilla hann auðveldlega á hverjum golfhring.Nýja og bætta FJ Sport (golfskónum) er ætlað að byggja á árangri upphaflega FJ Sport (skósins) sem sló þegar í gegn hjá nokkrum stærstu nöfnunum í golfheiminum. Footjoy FJ Sport 2012 golfskórinn sameinar sláandi mynstur og áhersluliti með árangri, sem er sannreyndur og fyrsta flokks hráefni.Leðurefrihluti skósins sér til þess að hann geti andað, veiti stuðning og þægindi meðan Proofguard himnutæknin tryggir að FJ Sport er Lesa meira
USGA minnist þess að 100 ár eru liðin frá því að forgjafarkerfið var tekið upp – 4. grein af 4
Um miðbik 8. áratugar síðustu aldar hafði forgjafarkerfi USGA vaxið og þróast þannig að það var eftirlitsaðili fjölda golfvalla og kylfinga. Þrátt fyrir breytingar áratugina þar áður átti eftir að leysa úr tveimur atriðum: ófullkomleika vallarmatsins og færanleika (ens.: portability) forgjafarinnar. Til þess að fræðast meira um forgjöfina, golfreglurnar eða aðra starfsemi bandaríska golfsambandsins, USGA, smellið HÉR: Aðalatriðið var að vallarmatið, sem byggist að meginstefnu á lengd og á að endurspegla hæfileika scratch kylfings, sagði ekkert um hvernig völlurinn myndi vera spilaður af meðalkylfingi. Tökum sem dæmi tvo golfvelli sem báðir eru 6.500 yarda að lengd. Fyrri völlurinn er flatur og opinn þannig búast má við að sérfræði- eða scratch Lesa meira
GKB: Aðalfundur fer fram 7. desember n.k.
Aðalfundur Golfklúbbs Kiðjabergs verður haldinn miðvikudaginn 7. desember að Skipholti 70 í Reykjavík. Fundurinn hefst stundvíslega kl. 20.00. Stjórn GKB hvetur félagsmenn til að fjölmenna á fundinn. Dagskrá aðalfundar: 1. Fundarstjóri og fundarritari kosnir. 2. Fundargerð síðasta Aðalfundar lesin upp. 3. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári. 4. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram. 5 Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga klúbbsins. 6. Lagabreytingar kynntar og teknar til afgreiðslu. 7. Tillaga stjórnar um félagsgjöld 2012 lögð fram til samþykktar. 8.Kosning stjórnarmann og endurskoðanda samkvæmt samþykkum lögum klúbbsins 9. Önnur mál. Heimild: Heimasíða GKB
Myndasería: Golfvellir á Spáni: Las Colinas í Alicante
Hér er komið að 4. og síðasta golfvellinum, sem kynntur verður, þar sem 2. stig úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina fer fram 2.-5. desember n.k. Úrtökumótin fara fram á 4 völlum á Spáni samtímis og hafa þeir þá allir verið kynntir til sögunnar hér á Golf 1. Birgir Leifur Hafsteinsson, sem þátt tekur í 2. stigi úrtökumótsins valdi að spila á Costa Ballena. Af völlunum 4 er Las Colinas í Alicante sá nýjasti; var tekinn í notkun á síðasta ári, 2010 og … hann er sannkallað himnaríki á jörðu. Um það geta allir vitnað sem spilað hafa hann – þetta er völlur sem mann langar til að koma á aftur og aftur. Lesa meira
Myndasería: Las Colinas í Alicante á Spáni – 28. nóvember 2010
Afmæliskylfingur dagsins: Art Wall – 25. nóvember 2011
Arthur Jonathan Wall, Jr., alltaf kallaður Art Wall fæddist 25. nóvember 1923 í Honesdale, Pennsylvaníu. Hann stundaði nám við Duke University og útskrifaðist 1949 sem viðskiptafræðingur. Á atvinnumannsferli sínum vann hann 24 sinnum, þar af 14 sinnum á PGA. Af 14 titlum sínum á PGA vann hann 4 árið 1959, en það ár var hann valinn leikmaður ársins á PGA og hlaut Vardon Trophy fyrir lægsta meðaltalsskor. Eins var hann efstur á peningalistanum það ár með verðlaunafé upp á $53,167.50 sem er eitthvað í kringum $360.000,- uppreiknað á gengi dagsins í dag. Hápunktur ferils Arts á PGA var þegar hann sigraði 1959 á Masters. Á lokahringnum fékk hann 5 fugla á Lesa meira
Daly hunsaði ekki South African Open
Skipuleggjendur South African Open segja að kylfingurinn umdeildi John Daly hafi ekki hunsað mótið; hann hafi einfaldlega ekki getað ferðast til Jóhannesarborgar á tilskyldum tíma. Skipuleggjandinn Mbali Ngqula vísaði á bug sögusögnum um að Daly hefði neitað að spila í sameiginlegu móti Sólskinstúrsins og Evrópumótaraðarinnar eftir að hafa gengið úr miðju móti á Opna ástralska nú nýverið þegar hann sló 6 högg í vatnshindrun og bar fyrir sig að hann hefði verið boltalaus eftir það. Ngqula sagði í gær: „Það er rangt að ýja að því að John hafi hunsað boð okkar, hann gerði ekkert í þá áttina.“ Ngqula sagði að Daly hefði sýnt því „mjög mikinn áhuga“ til að Lesa meira
John Senden og Greg Chalmers fóru holu í höggi á Australian PGA Championship – Marcus Fraser leiðir þegar mótið er hálfnað
Nú um helgina fer fram Australian PGA Championship á Coolum golfvellinum í Queensland. Saman í holli fyrstu tvo dagana voru Greg Chalmers, John Senden og bandaríski kylfingurinn Bubba Watson, sem er sá eini í hollinu sem ekki hefir farið holu í höggi á mótinu. Hinn örvhenti Chalmers fór nefnilega holu í höggi á 1. hring í gær, hann horfði á eftir boltanum skoppa 3-4 sinnum að miðju pinnans á 173. yarda (158 metra) 2. holu Coolum golfvallarins á Hyatt Regency golfstaðnum. Í dag, fór landi hans og hollfélagi, John Senden holu í höggi á sömu holu. Spurning hvort Bubba nái ás um helgina? Þegar mótið er hálfnað leiðir Marcus Fraser Lesa meira
GA: Ævarr Freyr er kylfingur ársins – Stefanía Elsa fyrirmyndarkylfingur GA og Tumi Kúld holumeistari klúbbsins
Í gær fór fram aðalfundur Golfklúbbs Akureyrar. Ótrúlega flottir krakkar hirtu öll verðlaunin á fundinum. Ævarr Freyr Birgisson hlaut heiðurstitilinn: kylfingur ársins. Stefanía Elsa Jónsdóttir var útnefnd fyrirmyndarkylfingur GA og Tumi Kúld holumeistari klúbbsins. Jafnframt var kjörin ný stjórn, sem greint verður frá hér á Golf 1 síðar.








