Aðalfundur NK fór fram í gær – 26.11.2011
Aðalfundur Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins 2011 var haldinn í gær, laugardaginn 26. nóvember. 68 félagar í klúbbnum sátu fundinn. Lögð var fram skýrsla stjórnar og reikningar sem voru samþykktir samhljóða. Helstu tölur úr rekstri klúbbsins voru að rekstrartekjur voru um 54 milljónir og rekstargjöld um 49 milljón. Eftir framkvæmdir og fjárfestingar voru gjöld umfram tekjur rúmlega fjórar milljónir. Heildarskuldir klúbbsins eru bókfærðar um 2.800 þúsund. Samþykkt var að meðaltali 5% hækkun á félagsgjöldum. Allir stjórnarmeðlimir gáfu kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og mun stjórn klúbbsins næsta starfsár því vera þannig skipuð: Eggert Eggertsson formaður, Áslaug Einarsdóttir, Geirarður Geirarðsson, Þorvaldur Jóhannesson og Arnar Friðriksson. Varamenn í stjórn eru þau Jónas Hjartarson Lesa meira
Landslið atvinnumanna tekur þátt í Evrópukeppni PGA
Landslið Íslands skipað atvinnumönnum í golfi hefur leik í dag í Evrópukeppni landsliða sem haldin er í Portúgal. Keppnin fer fram á Vale do Lobo golfvellinum, hún er haldin af PGA‘s of Europe og eru aðalstyrktaraðilarnir Ryder Cup og Glenmuir. Spilaðir eru fjórir hringir og eru 23 landslið sem taka þátt. Úlfar, Sigupáll og Ólafur Íslenska landsliðið er skipað þeim Úlfari Jónssyni sem er liðsstjóri ásamt þeim Sigurpáli Geir Sveinssyni og Ólafi H. Jóhannessyni. Landsliðið spilaði æfingahring í dag og að sögn Úlfars, þá er völlurinn mjög krefjandi, miklar rigningar undanfarna daga gera hann þungan þar sem boltinn stöðvast nánast þar sem hann lendir. Þar sem völlurinn er töluvert langur Lesa meira
Sólskinstúrinn: Hennie Otto leiðir á SA Open fyrir lokahringinn
Það eru 4 Suður-Afríkubúar, sem hafa raðað sér í efstu sætin á South African Open og þeirra fremstur í 1. sæti er Hennie Otto. Fyrir lokahringinn, sem spilaður verður á morgun er Hennie á samtals -14 undir pari, er búinn að spila á samtals 202 höggum (70 67 65) þ.e. verður sífellt betri. Í dag byrjaði Hennie hægt fékk 3 fugla á fyrri 9, en því miður líka 2 skolla. Svo byrjaði flugeldasýningin á seinni níu: fyrst fékk Hennie fugl á 9. síðan örn á 10. Hann spilaði skollafrítt það sem eftir var og fékk þar að auki 3 fugla til viðbótar. Frábær hringur hjá þessum sigurvegara Platinum Classic í Lesa meira
Myndasería: Listagolf GS-kvenna, 26. júní 2011
Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið – Listagolf GS-kvenna, 26. júní 2011
Sunnudaginn 26. júní í sumar fór fram í þriðja sinn listagolf GS-kvenna í alveg ágætis “Leiru-logni” á Hólmsvelli í Keflavík. Það var frekar skýjað, sólin gægðist fram af og til og það var ekkert allt of hvasst, en þátttakendum í mótinu fannst að e.t.v. hefði mátt vera aðeins hlýrra. Hólmsvöllur var þurr, svo þurr að sums staðar var erfitt að reka tíin niður og völlurinn því í þörf fyrir vökvun. Flatirnar voru ekki orðnar eins hraðar og maður er vanur í Leirunni, en því var bara fremur köldu árferði um að kenna. Leiran var í eins góðu standi og mögulegt var miðað við hvernig veðráttan var búin að vera. Nokkuð Lesa meira
Viðtalið: Gauti Grétarsson, NK.
Í vor tók Golf 1 viðtal við landsþekktan sjúkraþjálfara, sem er flestum íslenskum kylfingum, sérstaklega afrekskylfingunum okkar, að góðu kunnur. Hér er auðvitað átt við Gauta Grétarsson, NK, sem sjálfur spilar golf – tók m.a. þátt í 1. móti sumarsins 2011 á Eimskipsmótaröðinni upp á Skaga, 28. maí s.l. Gauti er með marga af okkar bestu kylfingum í þjálfun hjá sér og er með tæki, sem m.a. bæta púttstrokuna og æfingar fyrir axlir, hendur og mjaðmir, sem bæta sveifluna. Fyrir þá sem eru farnir að huga að jólagjöfunum og ætla t.d. að gefa kylfingi, sem á allt, gjöf, þá er margt vitlausara en að gefa viðkomandi tíma hjá Gauta! Það Lesa meira
Elsti félagi í bandaríska PGA – Bud Lewis látinn – 103 ára
Joseph „Bud“ Lewis, elsti atvinnumaður og elsti félagi í bandaríska PGA er látinn. Hann var 103 ára. The Shelly Funeral Home sem sér um útför Bud sagði hann hafa látist af eðlilegum orsökum. Með láti Bud verður Samuel Henry „Errie“ Ball frá Stuart, í Flórída elsti meðlimur PGA. Errie er 101 árs. Bud Lewis varð meðlimur í PGA í maí 1931 og varð sá fyrsti til að hafa verið í PGA í 80 ár. Bud var yfirgolfkennari í Manufacturers Golf & Country Club árið 1943 og gegndi stöðunni í 37 ár. Hann var síðar heiðursgolfkennari klúbbsins (lat./ens.: the club’s pro emeritus). Bud sigraði á Philadelphia Open árin 1942 og 1950 og tók Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Christopher James Wood – 26. nóvember 2011
Christopher James (alltaf nefndur Chris) Wood fæddist 6. nóvember 1987 í Bristol á Englandi og er því 24 ára í dag. Chris var í Golden Valley Primary School í Nailsea frá 4-11 ára aldurs, áður en hann byrjaði í Backwell skólanum. Hann byrjaði í golfi mjög ungur, en hafði á þeim tíma alveg jafnmikinn áhuga á fótbolta og stefndi alltaf á að spila með Bristol City Football Club. Hann var félagi í the Long Ashton Golf Club nálægt Bristol 9 ára gamall og við 12 ára aldurinn var forgjöf hans orðin eins-stafs. Chris Wood sigraði English Amateur Order of Merit árin 2007 og 2008. Hann gerðist atvinnumaður í golfi um tvítugt, árið 2008. Hann Lesa meira
Kim leiðir á Australian PGA Championship eftir 3. dag
K.T. Kim spilaði stöðugt golf seinni 9 meðan samkeppnin molnaði allt í kringum hann. Kim spilaði skollafrítt -5 undir pari, var á 67 höggum og hefir nú 1 höggs forystu á Bubba Watson fyrir lokahring Australian PGA, sem spilaður verður á morgun. Kim, sem átti sæti í tapliði Alþjóðalisins í Forsetabikarnum á Royal Melbourne í síðustu viku er búinn að spila 54 holurnar á samtals -13 undir pari, samtals 203 höggum á Hyatt Regency golfstaðnum. Bubba Watson komst í forystu á 3. hring, en fékk síðan skramba á par-5, 15. holuna, sem er óvenjuleg frammistaða af sleggjunni á par-5um. Bubba kom í hús á 69 höggum. Aaron Baddeley var Lesa meira
McIlroy og McDowell efstir í Mission Hills eftir 3. dag
Norður-Írarnir Graeme McDowell og Rory McIlroy verma toppsætið á Omega Mission Hills heimsbikarsmótinu eftir 3. dag mótsins. Þeir komu í hús á -8 undir pari, 64 höggum og eru samtals búnir að spila á 195 höggum (63 68 64). Þeir hafa nú 2 högga forystu á mótinu, hafa spilað á samtals -21 undir pari. Það voru lið Þýskalands (Cejka & Kaymer) og Suður-Afríku (Goosen & Schwartzel) sem áttu bestu hringi dagsins, 61 högg hvor og deila 2. sæti ásamt liði Bandaríkjanna (Kuchar&Woodland), sem komu inn á 63 höggum í dag. Ástralir sem leiddu fyrstu 2 daga mótsins spiluðu á 67 höggum í nótt, -5 undir pari, sem er ekki sérstakt skor Lesa meira









