Heimsbikarinn: Ástralir – Brendan Jones og Richard Green enn í forystu eftir 2. dag … ásamt Rory McIlroy og Graeme McDowell
Ástralirnir Brendan Jones og Richard Green eru enn í forystu á Omega Mission Hills Heimsbikarsmótinu – skiluðu sér inn á 70 höggum í fjórmenningi 2. dags -en voru á glæsilegu 61 höggi í fjórboltanum í gær. Sjá má skemmtilegt myndskeið af erni sem þeir Jones og Green náðu í nótt á par-5, 6. brautinni, þegar Jones náði inn á flöt í 2. höggi og Green setti niður u.þ.b. 4 metra pútt fyrir erni. Sjá má myndskeiðið því að smella hér: ÖRN Á 6. BRAUT Jafnir Áströlunum í 1. sæti eru Mac-arnir norður-írsku – spiluðu á 68 höggum í dag en voru á 63 í gær. Skotarnir Stephen Gallacher og Martin Lesa meira
GS: Aðalfundur haldinn 6. desember n.k.
Aðalfundur Golfklúbbs Suðurnesja verður haldinn þriðjudaginn 6. desember 2011 kl. 20:00 í Golfskálanum í Leiru. Dagskrá: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara. 2. Skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár. 3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram. 4. Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga og síðan atkvæðagreiðsla um reikninga. 5. Lögð fram fjárhagsáætlun og tillaga um ársgjöld fyrir komandi starfsár. 6. Stjórnarkosning (Formaður – Meðstjórnendur – skoðunarmenn). 8. Önnur mál. Stjórn GS hvetur félagsmenn til að fjölmenna á fundinn.
Golf verður keppnisíþrótt á Smáþjóðaleikunum á Íslandi 2015
Í dag fór fram í Sochi í Rússlandi fundur framkvæmdastjórnar Smáþjóðaleikanna, en Smáþjóðaleikarnir fara fram á Íslandi 1.-6. júní 2015. Samþykkt var á fundinum að keppt verði í golfi og áhaldaleikfimi; auk hefðbundinna greina, en heimild var til að bæta við 2 íþróttagreinum að fengnu samþykki framkvæmdastjórnar, sem fékkst í dag. Þátttökurétt í Smáþjóðaleikunum eiga þjóðir með íbúatölu undir einni milljón. Þessar þjóðir eru : Andorra, Ísland, Kýpur, Liechtenstein, Lúxemborg, Malta, Mónakó, Svartfjallaland og San Marínó. Heimild: golf.is
Sólskinstúrinn: Jbe Kruger og Steven O´Hara leiða á South African Open eftir 1. dag
Jbe Kruger er í forystu eftir 1. dag South African Open ásamt Steven O’Hara, eftir að hafa fengið 7 fugla á skollafríum hring upp á 65 högg. Steven hins vegar fékk örn á 8. brautinni og skolla á 4. braut Serengeti Golf and Wildlife Estate, sem er í útjarðri Jóhannesarborgar. Völlur golfstaðarins gengur undir nafninu Massai Mara og er hannaður af Jack Nicklaus; völlurinn er par-72 og opnaði 2009, en einkennishola vallarins er par-5 8. holan sem er með flöt úti á eyju. „Þetta er SA Open, sem var stærsta mótið þegar ég var að vaxa úr grasi. Þetta snýst bara um að taka eitt högg í einu, það er Lesa meira
Myndasería og úrslit: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið-Skjár Golf Open hjá GO-25/6 ´11
Laugardaginn 25. júní í sumar fór fram á Urriðavelli glæsilegt golfmót á vegum SKJÁRGOLF. Til leiks voru mættar ýmsar stórstjörnur ásamt svo mörgum afburðakylfingum og þegar dagurinn var á enda voru úrslit mótsins eftirfarandi. 1. sæti – Finnur Kolbeinsson og Jóhannes Ásbjörn Kolbeinsson á 60 höggum (31 högg á seinni 9) 2. sæti – Gylfi Þór Sigurðsson og Bjarki Ásgeirsson á 60 höggum (32 högg á seinni 9) 3. sæti – Hallur Dan Johansen og Kristinn Karl Jónsson á 61 höggi (30 högg á seinni 9) 4. sæti – Nökkvi Gunnarsson og Steinn Baugur Gunnarsson (31 högg á seinni 9) Öll verðlaun gengu út skv. auglýstum keppnisskilmálum. MYNDASERÍA – SKJÁR Lesa meira
Skjár Golf Open hjá GO – 25. júní 2011
Heimsbikarinn: Ástralir – Jones og Green – leiða eftir 1. dag í Mission Hills, Kína.
Ástralska liðið Brendan Jones og Richard Green luku leik í nótt á -11 undir pari, 61 höggi og er í forystu á Heimsbikarskeppninni 2 höggum á undan þeim sem sigurstranglegastir þykja, þ.e. þeim Rory McIlroy og Graeme McDowell. Liðið sem enginn bjóst við neinu af fékk 7 fugla og örn á agressívum hring á par-72 Blackstone golfvellinum á Mission Hills golfstaðnum á Hainan, eyju í Suður-Kína. „Við lékum mjög vel saman í dag. Brendan byrjaði mjög vel og okkur óx ásmeginn eftir það,“ sagði Green. „Þetta hjálpaði mér með leik minn á seinni 9. Ég var fær um að leggja mitt af mörkum þegar við fengum örninn á par-4, 16. Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Auðunn Einarsson – 24. nóvember 2011
Það er Auðunn Einarsson, GÍ, sem er afmæliskylfingur dagsins. Auðunn fæddist 24. nóvember 1975 og er því 36 ára í dag. Auðunn er klúbbmeistari Golfklúbbs Ísafjarðar 2011. Hann varð Íslandsmeistari í sveitakeppni GSí, með liði GK, árið 2008… og þá er aðeins fátt eitt talið af afrekum Auðunns í golfíþróttinni. Auðunn er mörgum að góðu kunnur sem frábær golfkennari, var lengi starfandi hjá Golfklúbbnum Keili en eftir ársdvöl í Ástralíu sneri hann aftur til heimabæjarins, Ísafjarðar, í fyrra, þar sem hann kennir nú golf. Auðunn hefir keppt í fjölmörgum opnum mótum og alþjóðlegum mótum. Hann reyndi m.a. fyrir sér á sænsku mótaröðinni 2007. Foreldrar Auðuns eru: Einar Valur Kristjánsson, fv. yfirkennari Lesa meira
GSG: Takið 10. des frá – Þá fer fram árlegt Skötumót í Sandgerði!
Þann 10. desember n.k. er fyrirhugað að halda Skötumót í Sandgerði. Um hefðbundið golfmót verður að ræða, svo framarlega sem veður leyfir og verður það auglýst síðar. Þar á eftir er boðið upp á ýmsar kræsingar. Á boðstólum verður verulega kæst, vestfirsk Skata og fyrir matgikki m.a. plokkfiskur og meðlæti. Þeir sem ekki vilja spila golf geta engu að síður mætt og fengið sér skötu og með því. Takið daginn frá og mætið á Skötumót í Sandgerði!
Golfvellir á Spáni: El Valle í Murcia
Hér er komið að kynningu á El Valle, sem er einn golfvallanna 4, þar sem 2. stig úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina fer fram dagana 2.-5. desember n.k. Birgir Leifur Hafsteinsson, GKG, mun keppa á Costa Ballena golfvellinum, sem var kynntur fyrr í vikunni. Á morgun verður svo kynning og myndasería frá 4. og síðasta vellinum sem keppt er á; Las Colinas í Alicante. El Valle er miðlungs lengdar golfvöllur, par-71 hannaður af Jack Nicklaus og staðsettur í eyðimörk í Murcia á Spáni. Nánar tiltekið er völlurinn milli Banos og Mendigo, nærri Murcia-San Javier hraðbrautinni. Hægt er að komast í miðbæ Murcia á aðeins 10 mínútum og á yndislegar strendur Mar Menor Lesa meira







