
Myndasería: Golfvellir á Spáni: Las Colinas í Alicante
Hér er komið að 4. og síðasta golfvellinum, sem kynntur verður, þar sem 2. stig úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina fer fram 2.-5. desember n.k. Úrtökumótin fara fram á 4 völlum á Spáni samtímis og hafa þeir þá allir verið kynntir til sögunnar hér á Golf 1. Birgir Leifur Hafsteinsson, sem þátt tekur í 2. stigi úrtökumótsins valdi að spila á Costa Ballena.
Af völlunum 4 er Las Colinas í Alicante sá nýjasti; var tekinn í notkun á síðasta ári, 2010 og … hann er sannkallað himnaríki á jörðu. Um það geta allir vitnað sem spilað hafa hann – þetta er völlur sem mann langar til að koma á aftur og aftur. Allt frá klúbbhúsinu með glæsilegum veitingastað og bar, búningsklefum, golfbúðar, æfingasvæðis, hæðanna (en colinas þýðir s.s. margir vita hólar eða hæðir á spænsku), appelsínutrjánna sem enn bera ávöxt í nóvember… staðurinn er fullkomnun. Hæðirnar eru s.s. nafnið bendir til mikið einkenni vallarins, sem og drifhvítar sandglompurnar og mikið landslag er í vellinum.
Par-3 brautirnar eru sérlega eftirminnilegar t.d. er 7. brautin uppáhaldsbraut margra – hún er 95 metrar af rauðum en 103 af gulum. Öllu erfiðari er par-3, 14. brautin. Hún er nokkuð sérstök því slá verður af upphækkaðri hæð inn á flöt, sem varin er af á, sem rennur framan við flötina og vatni sem er á vinstri hönd og risasandglompu á hægri hönd – hindranir eru allt í kringum flötina. Brautin er 155 m af gulum og 124 m af rauðum – Þetta er hola sem gríðarlega erfitt er að ná fugli á og í raun aðeins fyrir snillinga í íþróttinni.
Las Colinas golfvöllurinn er par-71 hannaður af Cabell B. Robinson, sem hannað hefir frábæra golfvelli á borð við La Reserva í Sotogrande og Finca Cortesin á Costa del Sol á Spáni, Praia d´El Rey í Portugal og Royal Golf d´Evian í Frakklandi.
Þó Las Colinas sé aðeins 1 ára gamall golfvöllur og í raun bara smábleyjubarn sem skríður um í golfvallarflórunni, þá er hefir hann þegar hlotið viðurkenningu fyrir að vera einn af 100 bestu golfvöllum Evrópu. Ef maður ætti að deyja á morgun og ætti bara val um að spila 1 golfvöll hvar sem er í heiminum myndi það að öllum líkindum vera Las Colinas – svona hljóta vellirnir að vera á himnum.
Til þess að sjá myndaseríu frá Las Colinas – smellið hér: MYNDASERÍA – LAS COLINAS – 28.11.2010
- ágúst. 9. 2022 | 14:00 Ágúst Ársælsson klúbbmeistari í Svíþjóð
- ágúst. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Webb Simpson —— 8. ágúst 2022
- ágúst. 8. 2022 | 08:00 Evróputúrinn: Callum Shinkwin sigraði á Cazoo Open
- ágúst. 7. 2022 | 20:00 AIG Women’s Open 2022: Ashleigh Buhai sigraði!!!
- ágúst. 7. 2022 | 17:30 Íslandsmótið 2022: Kristján Þór og Perla Sól Íslandsmeistarar 2022!!!
- ágúst. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Andri Páll Ásgeirsson – 7. ágúst 2022
- ágúst. 7. 2022 | 15:15 Áskorendamótaröð Evrópu: Guðmundur Ágúst lauk keppni T-3 og Bjarki T-35 á Vierumäki Finnish Challenge
- ágúst. 7. 2022 | 14:50 Íslandsmótið 2022: Perla Sól og Kristján Þór leiða eftir 3. dag
- ágúst. 7. 2022 | 14:30 Íslandsmótið 2022: Lokatilraun til að spila 4. hring verður gerð kl. 16:30
- ágúst. 6. 2022 | 22:00 Íslandsmótið 2022: Hulda Clara og Sigurður Bjarki jöfnuðu vallarmetin á Vestmannaeyjavelli
- ágúst. 6. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (31/2022)
- ágúst. 6. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Doug Ford, Pétur Steinar Jóhannesson og Michel Besancenay – 6. ágúst 2022
- ágúst. 5. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gylfi Rútsson – 5. ágúst 2022
- ágúst. 4. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hjörtur Þór Unnarsson – 4. ágúst 2022
- ágúst. 4. 2022 | 14:00 Forsetabikarinn 2022: Davis Love III útnefnir Simpson og Stricker sem varafyrirliða