Tiger sigraði á Chevron! – Tveggja ára sigurleysi lokið
Tiger Woods sigraði á Chevron World Challenge mótinu á Sherwood vellinum í Thousand Oaks, Kaliforníu. Fugl á 18. braut tryggði honum 1 höggs sigur yfir Zach Johnson og forðaði því að til umspils kæmi líkt og gerðist í fyrra, þegar Graeme McDowell hafði síðan betur gegn Tiger í bráðabana. Samtals var Tiger á -10 undir pari, samtals 278 höggum (69 67 73 69). Með þessum sigri Tigers er lokið 2 ára sigurleysi hans. Í 2. sæti, 1 höggi á eftir varð Zach Johnson. Í 3. sæti varð Paul Casey, sem hvarf frá sveiflubreytingum, sem hann hafði verið að vinna að og leiddu til slaks upphafshrings (79 högg) en eftir að Lesa meira
Viðtalið: Ella María Gunnarsdóttir og Helga Rún Guðmundsdóttir, GL.
Í gær birtist myndasería hér á Golf 1 frá Helenu Rubinstein kvennamóti GL, sem fram fór í sumar, nánar tiltekið 9. júlí 2011. Þær sem áttu veg og vanda á mótinu og voru í óða önn að fara yfir skor þátttakendanna 78 í mótinu, þegar Golf 1 bar að garði voru þær Ella María Gunnarsdóttir og Helga Rún Guðmundsdóttir, en auk þess að vera mágkonur eru þær í kvennanefnd GL. Þær höfðu frá mörgu skemmtilegu að segja úr kvennastarfinu á Skaganum, m.a. mótinu Leynisskvísan 2011, sem er holukeppni og nýjung sem fleiri klúbbar mættu taka upp – en alltof lítið er um holukeppni hérlendis. Hér fara nokkrar spurningar Golf 1 Lesa meira
Birgir Leifur á glæsilegum 68 höggum á 3. degi úrtökumótsins á Costa Ballena
Birgir Leifur lauk 3. hring á 2. stigi úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina á 68 höggum. Glæsilegt! Þetta er skorið sem maður vildi hafa séð Birgi Leif á alla dagana þrjá. Og hann er svo sannarlega búinn að berjast upp úr 72. sætinu, sem hann var í eftir óheillaskorið 1. daginn í 42. sætið í dag. Birgir Leifur er á samtals sléttu pari nú, samtals 216 höggum (77 71 68). Fyrsta sætinu í mótinu nú deila Daninn Thomas Nörret, sem spilar á Evrópumótaröðinni og Argentínumaðurinn Emiliano Grillo. Hinn 19 ára gamli Emiliano býr í Bradenton, Flórída og sigraði m.a. á Junior World Golf Championships í júlí fyrir 2 árum á móti bandaríska AGJA Lesa meira
Lee Westwood sigraði á Nedbank Golf Challenge
Það tókst engum að ná upp 7 högga forystu Lee Westwood á Nedbank Golf Challenge í dag. Lee sigraði örugglega á samtals -15 undir pari, samtals 273 höggum (68 70 62 73) og munaði þar mestu um glæsihring hans á 3. degi upp á 62 högg – segja má að sá hringur hafi tryggt honum sigurinn. Í 2. sæti var Svíin Robert Karlson, en hann spilaði feykivel í dag og saxaði jafnt og þétt á forskot Lee og að lokum var aðeins 2 högga munur á þeim. Karlson er búinn að spila frábært golf alla dagana. Robert Karlson spilaði á samtals -13 undir pari, 275 höggum (69 69 69 68). Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Valdís Þóra Jónsdóttir – 4. desember 2011
Það er Valdís Þóra Jónsdóttir, GL og Texas State, sem er afmæliskylfingur dagsins. Valdís fæddist 4. desember 1989 og er því 22 ára í dag. Afrek hennar verða ekki tæmandi talin í stuttri afmælisgrein og aðeins tæpt á nokkrum. Valdís er t.a.m. klúbbmeistari GL 2011, sem og mörg ár á undan. Valdís Þóra tók þátt í nokkrum opnum mótum á árinu m.a. Miðnæturmóti Norðuráls hjá GL, þar sem hún sigraði höggleikinn glæsilega var á -4 undir pari, 68 höggum á Garðavelli. Valdís var snemma á árinu valin íþróttamaður Akraness árið 2010, enda varð hún það ár m.a. Íslandsmeistari í holukeppni á heimavelli sínum. Alls hefir Valdís Þóra hlotið þá nafnbót Lesa meira
Rory McIlroy sigraði á UBS Hong Kong Open
Rory McIlroy sigraði í Fanling á UBS Hong Kong Open á samtals -12 undir pari, samtals 268 höggum (64 69 70 65). Fyrir sigurinn hlaut hann €341.724 og setti þar með stórt strik í reikninginn fyrir Luke Donald, að verða sá fyrsti til þess að verða efstur á peningalista Evrópumótaraðarinnar og PGA sama árið. „Ég hef viljað sigra þetta mót svo mikið síðan ég lenti í umspilinu 2008,“ sagði McIlroy eftir sigurinn, en frammistaða hans í mótinu er eftirfarandi s.l. 4 ár: 2. sætið (2008); 2. sætið (2009) 6. sætið (2010). „Ég þurfti að bíða í nokkur ár, en að halda á þessum bikar í höndunum er mjög sérstakt.“ Í Lesa meira
Sigmundur Ófeigsson nýr formaður GA
Þann 24. nóvember s.l. var haldinn aðalfundur Golfklúbbs Akureyrar. Halldór Rafnsson formaður, GA, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn, sem og varaformaður GA og gjaldkeri. Því fór fram stjórnarkjör. Eins voru veittar ýmsar viðurkenningar á aðalfundi. Á heimasíðu Golfklúbbs Akureyrar gefur að finna eftirfarandi endurrit úr fundarbókun frá aðalfundi: „Formaður bað fundarmenn að minnast eins félaga okkar sem féll frá á árinu. Í árskýrslu stjórnar var ítarlega gerð grein fyrir starfi síðasta árs og störfum nefnda klúbbsins. Formaður og gjaldkeri komu báðir inn á það í máli sínu hversu erfitt þetta ár var klúbbnum veðurfarslega. Formaður gat þess þó að margt var gert og framkvæmt á Lesa meira
Zach Johnson efstur á Chevron eftir 3. dag – myndskeið af erni hans á 18. braut
Zach Johnson er kominn í forystu á Chevron World Challenge fyrir lokahringinn, sem spilaður verður seinna í dag. Zach var á 68 höggum og er á samtals -8 undir pari, þ.e. samtals 208 höggum (73 67 68). Zach var höggi á eftir Tiger á 18. flöt og var 163 yarda þ.e. 149 metra frá pinna í teighöggi sínu, en hamraði bolta sínum beint í holu í 2 höggi – örn staðreynd og forystan í mótinu. „Ég hefði verið ánægður með 4 (högg), hvað þá 3 (högg) en 2 högg kallar maður að stela (forystunni).“ Hér má sjá myndskeið af frábærum erni Zach sem kom honum í forystuna: ÖRN ZACH Lesa meira
Lee Westwood í 1. sæti – spilaði á 62 höggum á Nedbank Golf Challenge –
Lee Westwood fór á kostum á Nedbank Golf Challenge. Hann kom í hús á 62 höggum – skilaði skollafríum hring upp á -10 högg undir pari, þ.e. fékk 10 fugla á hringnum. Hann hefir 7 högga forystu á þá sem deila 2. sætinu, Svíann Robert Karlson og Norður-Írann Graeme McDowell. Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag á Nedbank Golf Challenge smellið HÉR:
Golfvellir í Bandaríkjunum: Stoneybrook í Sarasota, Flórída.
Hér fyrr í dag var viðtal við Ragnheiði Matthíasdóttur, GSS, sem nefndi m.a. í viðtalinu að sérstæðasti golfvöllur, sem hún hefði spilað á væri Stoneybrook í Flórída, vegna þess hversu langt hefði verið að keyra milli teiga. Hér verður völlurinn kynntur í stuttu máli. Stoneybrook er hannaður af Arthur Hills og opnaði árið 1994 í Sarasota, Flórída. Þetta er par-72 völlur með 6 teigum á hverri braut. Af hvítum teigum er lengd vallarins 6587 yarda (6023 metra) og af fremstu teigum 4965 yarda (4539 metra). Það er Bermuda gras í brautum og í flötum er Tiffeagle Ultra Dwarf, sem gerir flatir mjög hraðar. Á 17 af 18 brautum koma vatnshindranir Lesa meira








