Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2011 | 07:00

Rory kóngur sandglompunnar í Hong Kong

Rory McIlroy fór á kostum þegar hann sigraði Hong Kong Open s.l. sunnudag og hleypti þar með spennu í Race to Dubai. „Ég var snælduvitlaus þarna,” viðurkenndi stjarnan (Rory) ánægð stuttu eftir að hafa sigrað í 5. sinn sem ativnnumaður með ótrúlegu chippi úr flatarglompu á 18. sem hann setti niður fyrir fugli á lokaholunni í Fanling. „Þetta er eins geggjað og ég hef nokkru sinni verið á golfvelli“ bætti strákurinn frá Ulster (Rory) við þegar hann steypti hnefa, opineygur í fagnaðarlátunum. Sigur McIlroy á US Open á Congressional s.l. júní var tertusneið samanborið við hörkubaráttu hins 22 ára við Frakkann Grégory Havret, en þeirri baráttu lauk þó með því að Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2011 | 20:30

Birgir Leifur lauk leik á Costa Ballena á 71 höggi og í 42. sæti – kemst ekki áfram á lokaúrtökumótið

Birgir Leifur lauk leik á 2. stigi úrtökumótsfyrir Evrópumótaröðina í dag á Costa Ballena. Hann spilaði á 71 höggi og endaði í 42. sæti og er því úr leik að þessu sinni. Alls spilaði Birgir á – 1 undir pari, samtals 287 höggum (77 71 68 71). Alls deildu 7 42. sætinu þ.á.m. áhugamaðurinn Peter Uihlein, sem eitt sinn var áhugamaður nr. 1 í heiminum. Frakkinn Guillaume Cambis og Englendingurinn Luke Goddard deildu 1. sætinu voru á samtals -16 undir pari þ.e. 272 höggum samtals hvor. Til þess að sjá úrslitin á Costa Ballena smellið HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2011 | 17:00

Viðtalið: Guðni Oddur Jónsson, GS.

Viðmælandi Golf 1 að þessu sinni er Guðni Oddur Jónsson í GS. Þegar viðtalið var tekið nú s.l. sumar voru meistaramót golfklúbbana í fullum gangi og Guðni nýbúinn að landa 2. sætinu á meistaramóti GS í 1. flokki.  Í sumar starfaði Guðni sem starfsmaður í golfverslun GS. Hér fara spurningar Golf 1 og svör Guðna: Fullt nafn:  Guðni Oddur Jónsson. Klúbbur: GS. Hvar og hvenær fæddistu?  Ég fæddist í Keflavík, 25. mars 1989. Hvar ertu alin upp? Í Keflavík. Hverjar eru fjölskylduaðstæður?  Ég bý einn með kærustunni. Hvenær byrjaðir þú í golfi? Það var 2000. Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi?  Mig langaði að prófa eitthvað nýtt og fannst Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2011 | 15:00

Afmæliskylfingur dagsins: Andrea Maestroni – 5. desember 2011

Það er ítalski kylfingurinn Andrea Maestroni, sem er afmæliskylfingur dagsins í dag. Andrea er fæddur 5. desember 1976 í Bergamo á Ítalíu og er því 35 ára í dag. Bergamo er staðurinn þar sem átrúnaðargoð Andrea, Constatino Rocca ólst upp, en Constatino átti einmitt 55 ára afmæli í gær og því 20 ár á milli þeirra næstum upp á dag.  Andrea þekkir þennan fyrrum Ryder Cup leikmann vel og hefir þegið ráð frá honum allan feril sinn. Andrea ólst upp í húsi, sem hefir gott útsýni yfir Garda golfvöllinn, en meðal félaga í Garda golfklúbbnum eru m.a. leikarinn góðkunni George Clooney. Þjálfari Andrea alla tíð hefir verið pabbi hans, Franco, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2011 | 10:00

Myndskeið: Lítill aðdáandi Rickie Fowler hermir eftir goðinu á Chevron

Á Chevron World Challenge var ungur aðdáandi Rickie Fowler, sem mætti í stælingu á appelsínugulum PUMA einkennisgalla Rickie Fowler. Aðdáandinn ungi brá sér upp á 2. teig á par-5 braut Sherwood vallarins og fór að herma eftir sveiflu goðsins. Það er bara ótrúlegt hversu lík sveifluplön litla aðdáandans og Rickie eru. Til þess að sjá myndskeiðið smellið HÉR:    

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2011 | 09:00

Viðtal við Paul Casey, sem var í 3. sæti á Chevron

Hér á eftir fer viðtal blaðafulltrúa PGA við Paul Casey, eftir hring hans á Chevron World Challenge, sem tryggði honum 3. sætið: Blaðafulltrúinn: Paul lýstu þessari skrítnu viku hjá þér. PAUL CASEY: Yeah, ég meina fyrsta hringinn var einbeitinginn á golfsveiflunni. Eins og þið vitið þá stendur okkur strákunum, þ.á.m. mér lítill tími til boða í fríinu. Ég vann að sveiflunni með Costas í síðustu viku. Fór þarna út og spilaði með þeirri (nýju) golfsveiflunni. Það er ekki hægt að gera það á neinum golfvelli og alls ekki Sherwood. Það er ansi tricky.  Það endurspeglaðist í skorkorti mínu. S.l. 3 dagar hafa verið mjög góðir. Sp. Fannst þér eins og þú Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2011 | 07:00

Tiger í 21. sæti á heimslistanum

Eftir 1 höggs sigur sinn á Chevron World Challenge í gær, þá er Tiger kominn í 21. sætið á heimslistanum, eftir að hafa verið 3 mánuði utan topp 50. Tiger Woods Þetta 18 manna lokamót PGA, þar sem aðeins 18 kylfingar taka þátt fór að telja til heimslistans 2009. Woods var kominn niður í 58. sætið á heimslistanum (6. nóvember 2011) og hefir ekki verið meðal efstu 20 frá því um miðjan júlí á þessu ári. Búist er við að hann muni áfram klífa upp heimslistann 2012, þar sem afleita árið hans 2010 telur ekki lengur skv. útreikningum heimslistans, árið 2012. Á einum tímapunkti var fór Tiger niður á við Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2011 | 02:30

Myndskeið: Bestu högg Tiger á Chevron World Challenge

Hér að neðan er myndskeið, þar sem tekin eru saman bestu högg Tiger á Chevron World Challenge. Höggin eru frá öllum 4 hringjum mótsins… og hvert augnkonfektið á eftir öðru lítur dagsins ljós. Ef þetta er forsmekkurinn af því sem 2012 ber í skauti sér, þá eigum við golfáhugamenn von á góðu. Til þess að sjá myndskeið með samantekt af bestu höggum Tigers smellið hér: BESTU HÖGG TIGER Á CHEVRON

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2011 | 02:00

Myndskeið: Viðtal við Tiger eftir sigurinn á Chevron World Challenge

Til þess að sjá myndskeið á ensku af viðtali, sem tekið var við Tiger rétt eftir sigur hans á Chevron World Challenge, smellið hér: VIÐTAL VIÐ TIGER EFTIR SIGUR Á CHEVRON WORLD CHALLENGE Hér að neðan má sjá afar lauslega þýðingu á viðtalinu á íslensku: Fréttamaður: Tiger, þetta hafa verið löng 2 ár, hvernig er tilfinningin að sigra? Tiger: Hún er frábær, það var gaman að enda þetta svona, þetta var tvísýnt á 16., en höggið sem hann (Johnson) spilaði á 14. var brandari var það ekki?  Það fór svolítið til vinstri. Ég hélt ég væri kominn í forystu þarna. Ég held að það hafi snúið leiknum við. Ég hélt Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2011 | 01:30

Myndskeið: Hápunktar dagsins sem Tiger sneri aftur – 4. dagur á Chevron

Hinn 4. desember 2011 sneri Tiger aftur á sigurbraut – eftir 2 ára eyðimerkurgöngu, sem hófst með að hann keyrði á tré og lauk með skilnaði hans við eiginkonuna Elínu Nordegren. Í 2 ár höfum við fylgst með sorgum Tigers, en í dag er dagur sigurs. Þetta er dagur fögnuðar fyrir alla golfáhugamenn, sem elska fallegan golfleik. Og leikur Tigers var svo sannarlega fallegur – Hann bauð upp á allt sem fylgir góðri skemmtun í golfi – að vera undir, berjast og komast yfir – sigra. Með því að smella hér má sjá myndskeið af hápunktum 4. dags: CHEVRON WORLD CHALLENGE 4. DAGUR