Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2011 | 17:00

Viðtalið: Þorsteinn Hallgrímsson, GO & GOT

Fullt nafn: Þorsteinn Hallgrímsson. Klúbbur: GO og GOT. Hvar og hvenær fæddistu?  Ég fæddist 13. september 1969 í Vestmannaeyjum. Hvar ertu alinn upp? Í Vestmannaeyjum – flyt frá Eyjum 1997. Hverjar eru fjölskylduaðstæður – spilar einhver í fjölskyldunni golf?   Konan mín heitir Ingibjörg Valsdóttir og við eigum 2 börn Kristínu Maríu, 13 ára og Val 10 ára.  Börnin mín eru bæði klúbbmeistarar 2011 í GKJ í sínum aldursflokki. Hvenær byrjaðir þú í golfi?  9 ára gamall – ég tók þátt í mínu fyrsta móti 1979 í Vestmannaeyjum. Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi? Þetta var svona fjölskyldusjúkdómur – Pabbi spilar mikið golf og bróðir pabba – Þeir Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2011 | 15:00

Hver er kylfingurinn: Camilo Villegas? (III. hluti af III)

Atvinnumennskan Camilo Villegas fylgdi eftir sigri sínum 2008  á BMW Championship með sigri á The Tour Championship.  Hann vann Sergio Garcia í umspili, eftir að hafa verið á eftir 5 högg fyrir lokahringinn. Með þessum sigri varð Camilo í 7. sæti á heimslistanum og festi hann í sessi sem „hæst rankaða“ kylfings í Suður-Ameríku. Hann lauk tímabilinu í 7. sæti á peningalista PGA Tour. Seint á árinu 2008 hóf Villegas að spila á Evrópumótaröðinni og spilaði í fyrsta móti sínu HSBC Champions, sem var fyrsta mót 2009 keppnistímabilsins. En hann hélt sig samt við að spila aðallega í Bandaríkjunum. Hann var sigurlaus 2009 en var 5 sinnum meðal 10 bestu Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2011 | 14:00

Hugleiðingar golffréttamanna um hina nýbökuðu móður: Lorenu Ochoa nr. 4

Jafnvel á tímum vonbrigða missti  hún sig aldrei  eftir Ashley Mayo Ég var að skrifa um Opna bandaríska í Interlachen 2008 og Ochoa hafði sigrað tvö af undanförnum 3 risamótum kvennagolfsins. Þannig að það var pressa á henni að sigra aftur í þeirri viku. Á sunnudeginum, hvað sem öðru leið, var ljóst að Ochoa var ekki að keppa til úrslita og vonbrigði hennar voru augljós. En jafnvel þá kom hún ekki fram við aðra á annan hátt þ.e.a.s. hún kom enn fram við alla eins og þeir væru gull og gersemar. Ég man að hún var sú síðasta sem sló af 1. teig þennan sunnudag og með örlítið bros á vörunum Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2011 | 13:30

John Daly reynir að gleyma síðustu uppákomu í Ástralíu – hlakkar til að keppa í Thaílandi

John Daly sagði fyrr í dag (tíminn í Thaílandi aðeins á undan okkar) að hann hefði ekkert heyrt meira frá áströlskum golfyfirvöldum eftir síðustu uppákomu hans þegar hann stormaði út úr móti þar í síðasta mánuði eftir að hafa slegið 6 bolta í vatn. „Ég hef ekki talað við neinn og þeir hafa ekki talað við mig,“ sagði Bandaríkjamaðurinn skapstóri, sem hlotið hefir viðurnefnið „Wild Thing.“ Aðspurður hvort hann héldi að málinu væri lokið sagði hann, „Ég held það.“ Daly gekk af vellinum í Australian Open á 11. braut, sem varð til þess að framkvæmdastjóri mótsins, Trevor Herden, sagði að þetta væri „ópró“ framkoma hjá Daly. PGA í Ástralíu sagðist Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2011 | 13:00

Hver er konungurinn í Dubai?

„Konungurinn í Dubaí“ er nýtt uppnefni á Álvaro Quirós García, vegna tveggja sigra á Evrópumótaröðinni, sem hann hefir unnið á árinu 2011 í Dubai. En hver er „konungurinn í Dubai“? Álvaro fæddist 21. janúar 1983 i Guadiaro, sem er úthverfi San Roque í Cádiz. Hann er því 28 ára. Álvaro gerðist atvinnumaður í golfi fyrir 7 árum síðan, 2004. Hann spilaði á Áskorendamótaröðinni 2006 og vann 1 mót. Jafnfram ávann hann sér kortið sitt á Evrópumótaröðina, með því að verða í 35. sæti í Q-school. Hann vann fyrsta titil sinn á Evrópumótaröðinni á Alfred Dunhill Championship í Suður-Afríku.   Atvinnumannsferillinn Quirós vann 2. sigur sinn á Evróputúrnum  árið 2008 þ.e. Portugal Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Sun Young Yoo – 13. desember 2011

Það er Sun Young Yoo (유선영) sem er afmæliskylfingur dagsins en hún er fædd 13. desember 1986  í Seúl í Suður-Kóreu og því 25 ára í dag. Hún gerðist atvinnumaður í golfi 2004. Fyrst spilaði hún á Áskorendamótaröðinni, þar sem hún á skráðan 1 sigur á ferli sínum: á  Betty Puskar Golf Classic árið 2005.  Sigurinn og 10 aðrir topp-10 árangrar hennar í þeim 18 mótum sem hún spilaði í það ár urðu til þess að hún hlaut keppnisrétt á LPGA 2006. Árið 2010 vann hún síðan fyrsta og eina sigur sinn til þessa á LPGA. Það var í Sybase holukeppninni, þar sem hún varð m.a. að spila gegn Jiyai Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2011 | 11:00

Golfkennaranemar PGA með ferð til Costa Ballena í mars 2012

Kylfingum gefst einstakt tækifæri á að undirbúa golfsumarið og bæta leik sinn í golfskóla á Spáni. Útskriftarnemar PGA golfkennaraskólans munu sjá um alla kennslu í ferð sem verður dagana 24. – 31. mars 2012. Farið verður til Costa Ballena á vegum Heimsferða þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar; 27 holu völlur, 9 holu æfingavöllur og frábær æfingaaðstaða fyrir öll högg. Þátttakendur taka þátt í golfskóla fyrir hádegi og svo eru spilaðar 18 holur eftir hádegi – oftast með PGA kennaranema. Eftirtaldir aðilar eru að útskrifast næsta vor og munu sjá um golfskólann: Árni Páll Hansson, Heiðar Davíð Bragason, Birgir Leifur Hafþórsson, Hlynur Geir Hjartason, Björn Kristinn Björnsson, Ingibergur Jóhannsson, Cedric Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2011 | 10:00

Lexi Thompson og Sophie Gustafson unnu holukeppnina í Dubai

Sigurliðið Lexi Thompson og Sophie Gustafson! Sophie Gustafson og Alexis Thompson sigruðu  Omega Dubai Ladies Masters Challenge holukeppnina, sem spiluð var í gær á par-3 golfvelli Emirates Golf Club í gær, mánudaginn 12. desember 2011. Omega Dubai Ladies Masters hefst á morgun og holukeppnin var hugsuð sem skemmtileg upphitun. Sophie og Lexi voru á samtals -4 undir pari 23 höggum og sigruðu helstu keppinauta sína Lauru Davies og Melissu Reid frá Englandi með 1 höggi. Bandarísku kylfingarinir og vinkonurnar Michelle Wie og Christina Kim urðu í 3. sæti á -1 undir pari, 26 höggum. Leikfyrirkomulag var Greensome. Það var mikill fjöldi áhorfenda og áhangenda sem fylgdist með keppni kvengolfstjarnanna, en mótið Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2011 | 06:00

Kristinn Daníelsson nýr framkvæmdastjóri Golfklúbbs Hveragerðis (GHG)

Kristinn Daníelsson hefur tekið til starfa sem framkvæmdastjóri Golfklúbbs Hveragerðis. Kristinn hefir verið gjaldkeri í stjórn klúbbsins undanfarin ár og þekkir því vel til starfseminnar. Kristinn er vélfræðingur að mennt og hefur langa reynslu af stjórnun og rekstri. Hann hefir m.a. starfað síðustu 2 árin, sem verslunarstjóri hjá Kraftvélum ehf. Heimild: Heimasíða GHG

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2011 | 22:00

Natalie Gulbis í næsta bikiníblaði Sports Illustrated

Bandríski kylfingurinn Natalie Gulbis kemur fram í bikiníblaði SI, þ.e. Sports IllustratedSwimsuit Issue, 2012.  Heimildarmaður þessarar fréttar er engin önnur en góð vinkona Natalie, kylfingurinn Cristie Kerr. Cristie skrifaði á Twitter: „Look for (Gulbis) in the SI swimsuit issue coming out soon! Body painting!“ (Ísl: Lítið á (Gulbis) í næsta tölublaði bikiníblaðs SI, sem kemur út nú á næstunni! Líkamsmálning!) Líkamsmálning? Ef það er rétt sem Kerr tweetaði það verður Natalie ekki einu sinni í bikiní, heldur aðeins með sundfötin máluð á sig. Með því að smella hér má sjá hvernig líkamsmálning fer fram. LÍKAMSMÁLNING – BODY PAINT Þess skal getið að engar heimildir hafa fundist fyrir því þar sem Natalie sjálf Lesa meira