Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2011 | 20:00

Viðtalið: Tómas Þráinsson, GSG

Viðtalið í dag er við Tómas Þráinsson, GSG, en Tómas fékk glæsilegan albatros í sumar á á par-5 3. brautinni, á Kirkjubólsvelli á 3. degi meistaramóts GSG.  Það er ekki á hverjum degi sem fréttir berast af kylfingi hér á landi sem nær að spila par-5 braut á 2 höggum!!! Tómas sagðist hafa verið 175 metra frá holu eftir drævið sem var nokkuð gott og notaði 6-járn í höggið góða, sem fór beint ofan í holu! Hér fara spurningar Golf1 og svör Tómasar: Fullt nafn:  Tómas Þráinsson. Klúbbur: GSG. Hvar fæddistu? 8. mars 1968 í Reykjavík –  Ég er nýfluttur til Keflavíkur (2006). Hvar ertu alinn upp?  Í Breiðholtinu (Fellahverfinu Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2011 | 17:00

Myndskeið: Golf spilað á tunglinu

Golf er eina íþróttin, sem spiluð hefir verið á tunglinu. Það gerðist fyrir 30 árum í ár, þ.e. nákvæmlega 6. febrúar 1971. Það var geimfarinn Alan Shepard sem sló nokkur golfhögg með 6-járni. Ja, golfsettin fara víða með, m.a.s. út í geim. Hér að neðan má sjá myndskeið af högginu, sem slegið var af Alan Shepard á tunglinu: ALAN SHEPARD SLÆR GOLFHÖGG Á TUNGLINU

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2011 | 16:30

Bradley og Steele unnu Franklin Templeton Shootout

Nýliðarnir á PGA Tour, Keegan Bradley og Brendan Steele unnu Franklin Templeton Shootout í Tiburon Golf Club í Flórída, með 3 höggum eftir lokahring upp á 59. Liðstvenndin komst yfir undirbúningsleysið og hafði yfirburði alla 3 daga, sem mótið var haldið. Þeir voru -32 undir pari, sem er 1 höggi frá mótsmetinu. Þeim tókst líka að ljúka mótinu með umdeilanlegum hætti þegar þeir völdu að klára fyrr en Nick Price og Mark Calcavecchia, þó að þessir fulltrúar Champions Tour ættu eftir að sökkva púttum fyrir 2. sætinu. Steele reyndi að afsaka þetta að leikslokum: „Við erum nýliðar – hvað getum við sagt? Við erum með nokkra vinninga undir beltinu en Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2011 | 14:00

Luke Donald: „Að verða faðir hefir gert mig að betri kylfingi.“

Að sýna tilfinningar hefir aldrei verið sterka hlið hins mjög svo hlédræga Luke Donald, en að loknu Dubai World Championship veitti Luke innsýn inn í sál mannsins á bakvið grímuna. Hann sagði m.a. frá þeim öldudal tilfinninga að missa föður sinn og eignast aðra dóttur sína skömmu síðar. Þó Luke hafi nú tekist að verða efstur á peningalista PGA og Evrópumótaraðarinnar á sama árinu, hefir golf ekki verið svo ofarlega í huga hans upp á síðkastið. Hann talaði um það, miðvikudaginn í síðustu viku þ.e. fyrir Dubai mótið, að hann vildi sigra í Dubai til þess að heiðra minningu föður síns. „Að (andlát hans) skyldi bera að höndum að eins Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Benedikt Sveinsson – 12. desember 2011

Það er Benedikt Sveinsson, GK, sem er afmæliskylfingur dagsins, en Benedikt fæddist 12. desember 1994 og er því 17 ára í dag. Benedikt er afrekskylfingur í Golfklúbbnum Keili. Hann hefir spilað á Arionbankamótaröð unglinga í ár, með góðum árangri. Svo góðum að nú nýverið valdi Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari hann í afrekshóp Íslands. Benedikt er m.a. Íslandsmeistari í sveitakeppni GSÍ með piltasveit GK árið 2011. Golf 1 óskar afmæliskylfingnum innilega til hamingju með afmælið! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.:   Shirley Englehorn, 12. desember 1940 (71 árs);  Leslie Holbert, 12. desember 1945 (66 ára); Lenore Rittenhouse, 12. desember 1955 (56 ára);  Philip Parkin, 12. desember 1961 (50 ára); Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2011 | 10:00

Hugleiðingar golffréttamanna um hina nýbökuðu móður: Lorenu Ochoa nr. 3

Meistarinn á bakvið meistarann eftir Roger Schiffman ——————————————— Lorena var ein af fjölmörgum krökkum, sem kom sér áfram í unglingaprógrammi klúbbsins síns (í Guadalajara í Mexíkó). Hún var feimin, en einstakur íþróttamaður, stundaði aðrar íþróttir eins og að klifra og detta úr trjám (þar sem hún úlnliðsbraut sig eitt sinn í slæmu slysi) og vera á hestbaki, en í klúbbnum hennar voru líka hestar. En Rafael Alarcon gat séð að það var eitthvað alveg spes og sérstakt við hana. Hún var með mjög rannsakandi hugsunarhátt. Hann byrjaði á að biðja hana að spila nokkrar holur með sér og fékk hana til þess að stæla sveiflu hans. Hann fór með hana á Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2011 | 08:00

Luke Donald: „Þú þarft ekki að vera langur til að vera laglegur.“

Fyrirsögnin er aumleg tilraun til þýðingar á inntaki þess, sem Luke Donald var að reyna að koma til skila eftir sigur sinn í gær og hljómar mun betur á ensku: „You don´t have to be big to be beautiful.“ Hljómar næstum því eins og gamall vinsæll dægurlagatexti Prince: „You don´t have to be cool to rule my world.“…. en aftur að Luke… Það sem hann á við er að ekki þarf að vera högglangur til þess að landa peningatitlunum beggja vegna Atantshafs, en honum tókst það þrátt fyrir að vera mun kraftminni og höggstyttri en margir félagar hans á báðum mótaröðum. „Ég er viss um að sumir kylfingar þarna úti Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 11. 2011 | 22:30

Sam Hutsby leiðir enn á lokaúrtökumóti Evrópumótaraðarinnar

Sam Hutsby er áfram í forystu á lokastigi Q-school Evrópumótaraðarinnar, en hann fylgdi eftir frábærum hring upp á 60 högg í gær með öðrum upp á 69 högg í dag á Stadium golfvellinum á PGA Catalunya Resort. Hann á 2 högg á landa sinn Andy Sullivan, sem er í 2. sæti. Hinn 23 ára Breti var með 3 fugla og 2 skolla og 1 örn á lengri vellinum  af tveimur sem notaðir eru í lokaúrtökumótinu og er á samtals -13 undir pari. Sullivan er fast á hæla Hutsby, spilaði á 66 höggum í dag og er kominn í samtals -11 undir par. Hutsby viðurkenndi að hann hefði verið hissa að Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 11. 2011 | 19:10

Quiros – sigurvegarinn í Dubai – lyftir sér í 21. sæti heimslistans

Alvaro Quiros lauk sinni eiginn Dubai tvennu þegar hann bætti Dubai World Championship styrktu af DP World við Dubai Desert Classic titil sinn, sem hann átti fyrir. Spánverjinn setti niður skrímsla arnarpútt á lokaholunni og lauk keppni 2 höggum á undan þeim, sem varð í 2. sæti Paul Lawrie. Quiros var líka 2 höggum á undan Lawrie fyrir lokahringinn og tvöfaldaði forystuna og vel það með 3 fuglum á fyrstu holunum. En Skotinn (Lawrie) fékk fugla á 5 af fyrstu 7 holunum og þegar Quiros fékk 3. skollann á 9. braut var hann allt í einu kominn 1 höggi á eftir Lawrie. Paul Lawrie sló úr röffi í sandinn á Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 11. 2011 | 18:30

Hver er kylfingurinn: Camilo Villegas? (II. hluti af III)

Camilo og atvinnumennskan Camilo Villegas hóf að spila á PGA Tour 2004 og fékk kortið sitt á 2006 keppnistímabilinu. Hann tók nýliðaárið með stæl varð tvívegis í 2. sæti og í 3. sæti á Players Championship í fyrstu 9 mótum, sem hann tók þátt í. Hann rétt missti af því að fá þátttökurétt á Masters 2006, munaði aðeins 1 sæti á PGA peningalistanum, en hann varð í 11. sæti þar. Árið 2007 spilaði hann í fyrsta skipti á Masters vegna þess að hann varð meðal efstu 40 á peningalista PGA Tour 2006. Hann fékk þátttökurétt á Masters vegna framúrskarandi leiks síns í FedEx Cup umspilinu, þar sem hann var m.a. Lesa meira