Fyrrverandi kæresta Rory McIlroy:„Ég trúði því aldrei að hann myndi gera mér þetta.“
Fyrrverandi kæresta Rory McIlroy, Holly Sweeney sagði í viðtali við Paul Martin s.l. laugardag:„Ég trúði því aldrei að hann myndi gera mér þetta.“ Í dínamítviðtali sagði Holly, 21 árs, hvernig heimur hennar hrundi þegar margmilljónera golfstjarnan, kæresti hennar, Rory McIlroy sagði henni upp til þess að geta byrjað með konu nr. 1 í tennisheiminum, Caroline Wozniacki. Holly sagði Irish Sunday Mirror frá sársauka sínum þegar McIlroy sagði henni að sér „líkaði“ við Wozniacki þegar þau horfðu á tennisleik saman í €1.75milljóna glæsihýsi þeirra í Co Down. Og hún sagði að hjarta hennar hefði brostið þegar hann fór að heiman og flaug til Þýskalands til að horfa á boxkeppni þar sem hann Lesa meira
Wahlin leiðir á Omega Dubai Ladies Masters
Lotta Wahlin frá Svíþjóð leiðir eftir 1. dag á Omega Dubai Ladies Masters. Hún átti glæsihring í dag eða eins og sagði á heimasíðu LET þá setti hún niður „Lotta birdies!“ M.ö.o. hún setti niður alls 7 fugla en fékk skolla á par-4 16. brautina. Í 2. sæti er Becky Brewerton frá Wales, höggi á eftir Lottu. Þriðja sætinu deila 4 stúlkur: W-7 módelið finnska Minea Blomqvist, Julieta Granada frá Paraguay, Stacy Lee Bregman frá Suður-Afríku og Linda Wessberg frá Svíþjóð, allar á 68 höggum í dag eða -4 undir pari. Af stórstjörnum mótsins er eftirfarandi að frétta: Lexi Thomspon skilaði sér inn með hring upp á 70 högg og Lesa meira
Aðalfundur GHG: Rúm 400.000 króna rekstrarhagnaður 2011 – Erlingur Arthúrsson áfram formaður
Aðalfundur GHG var haldinn í golfskálanum í Gufudal síðastliðinn fimmtudag, þ.e. 8. desember 2011. Eftirfarandi er fundargerð aðalfundar ásamt rekstrarreikningi, sem gefur að finna á heimasíðu GHG, þ.e. www.ghg.is: „Mæting var með allra besta móti eða yfir 30 manns. Fundarstjóri var kosinn Kristinn Kristjánsson og var farið yfir lögbundin aðalfundarstörf. Erlingur formaður gaf skýrslu stjórnar og fór yfir ágætt starfsár. Kristinn fráfarandi gjaldkeri skýrði reikninga. Árið endaði með rúmlega 400 þúsund króna hagnaði eftir afskriftir og fjármagnsgjöld. Hér á eftir er rekstrarreikningurinn sýndur. Þá voru árgjöld ákveðin 49.000 fyrir einstaklinga, 75.000 fyrir hjón og 27.000 fyrir eldri borgara og námsmenn. Önnur gjöld haldast óbreytt. Rekstraráætlun næsta árs gerir ráð fyrir svipaðri Lesa meira
Hugleiðingar golffréttamanna um hina nýbökuðu móður: Lorenu Ochoa nr. 5
Ekta þokki eftir Stina Sternberg „Ég hitti Lorenu Ochoa fyrst vorið 2004, á golfstað rétt fyrir utan Puerto Vallarta, sem heitir Four Seasons Punta Mita. Ég var ritstjóri Golf For Women á þeim tíma og meðal starfa minna var að kynna áfangastaði fyrir golfferðalanga í golfþætti í bandarísku sjónvarpi. Ochoa var á þeim tíma eini kvenkyns atvinnumaðurinn frá Mexíkó, þannig að framleiðandinn hafði sett sig í samband við Alejandro Ochoa, bróður Lorenu, en Lorena var þá á 2. ári sínu á LPGA og umboðsmann til þess að sjá hvort systir hans vildi koma fram í þættinum og tala um uppgang golfíþróttarinnar í Mexíkó. Á þeim tíma var mér aðeins óljóst kunnugt Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Ragnar Davíð Riordan – 14. desember 2011
Það er Ragnar Davíð Riordan, GVS, sem er afmæliskylfingur dagsins, en hann fæddist 12. desember 1982 og er því 29 ára í dag. Ragnar Davíð Riordan er nafn sem sést oft ofarlega á ýmsum opnum mótum sem haldin hafa verið hérlendis. Hann á fast sæti í sveit GVS í sveitakeppni GSÍ. Meðal afreka Ragnar Davíðs á golfsviðinu mætti nefna að hann varð klúbbmeistari GVS 2010. Golf 1 óskar afmæliskylfingnum innilega til hamingju með afmælið! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Jóhann Þorgrímur Hallgrímsson, 14. desember 1971 (Til hamingju með stórafmælið!); Ásgeir Bjarni Ásgeirsson, 14. desember 1974 (37 ára) Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings Lesa meira
Kiradech Aphibarnrat í draumaholli með Clarke og Daly á morgun
Thaílenska golfstirnið Kiradech Aphibarnrat, sem er uppnefndur John Daly Asíu fær heiðurinn af því að spila við átrúnaðargoð sitt á morgun, en þá hefst í fyrsta sinn Thailand Golf Championship. Verðlaunaféð þar er ekki af verri endanum eða um US $ 1 milljón. Dregið var um hverjir spila saman og fékk Kiradech draum sinn uppfylltan að spila við John Daly en auk þess líka sigurvegara Opna breska, Darren Clarke. „… ég var að vonast eftir því að fá að spila við John Daly og ég fékk það. Við erum næstum með sömu sveilfu og fólk hefir þess vegna kallað mig John Daly Asíu. Þetta verður gaman. Hann er eitt af Lesa meira
Golfkúlur skornar út í listilegar jólakúlur
Þessi græna kúla væri flott á hvaða jólatré sem er, er það ekki? Við fyrstu sýn gæti maður haldið að hún væri greypt í einhvers konar framandi stein eða kannski unnin í mjólkurgrænan jaði-stein. En það er ekki einu sinni nálægt því. Þessi græna kúla er búin til úr innri kjarna golfbolta. Mintugræni liturinn (á kúlunni hér að ofan á myndinni) er sami litur og er á efni golfboltakjarnans, en hann er síðan skreyttur með gylltu, handmáluðu bandi. Þeir sem hafa tréristu að áhugamáli hafa uppgötvað nýtt efni, sem eru innri kjarnar golfbolta, til þess að skera í allskyns falleg mynstur og endurnýta notaða golfbolta í jólakúlur. Þetta er iðja Lesa meira
Caroline Hedwall gæti náð 2. sætinu á peningalista LET í Dubai
Henderson nýliðinn Caroline Hedwall segir að ef hún myndi vinna 5. titil sinn á Evrópumótaröð kvenna (Ladies European Tour, skammst. LET) í Dubaí n.k. laugardag yrði það stærsti sigur hennar sem atvinnukylfings.Caroline hefir sigrað 6 sinnum á nýliðaári sínu í ár, þar af 4 titla á LET: í Slóvakíu, Finnlandi, Austurríki og í Indland nú s.l. helgi. Þar að auki sigraði hún í New South Wales Open og PowerPlay Golf tournament.En Caroline segir að það að sigra Omega Dubai Ladies Masters, en mótið hefst í dag, myndi vera stærsti sigurinn af öllum.„Miðað við samkeppnina í mótinu, yeah, þetta yrði stærsti sigurinn,“ sagði Hedwall..Það eru aðeins €12,183 sem skilja að Caroline og Lesa meira
Luke Donald kylfingur ársins – Keegan Bradley nýliði ársins
Luke Donald var valinn kylfingur ársins á PGA TOUR og kom fáum á óvart og nýliði ársins var valinn Keegan Bradley. Það voru félagar þeirra á PGA TOUR sem kusu þá. „Af hálfu PGA TOUR óska ég Luke og Keegan til hamingju með verðskulduð afrek þeirra á árinu 2011,“ sagði framkvæmdastjóri PGA TOUR, Tim Finchem. „Báðir kylfingar sýndu umtalsverðan og áhrifamikinn leik á árinu og kjörið endurspeglar þá virðingu, sem félagar þeirra bera fyrir þeim.“ LUKE DONALD -Kylfingur ársins á PGA TOUR Donald Luke Donald, sem varð 34 ára 7. desember er fyrsti kylfingurinn frá Englandi sem er valinn kylfingur ársins á PGA TOUR frá því fyrst var farið að Lesa meira
Sam Hutsby leiðir enn á úrtökumóti Evrópu- mótaraðarinnar á PGA Catalunya eftir 4. dag
Englendingurinn Sam Hutsby, sem átti svo frábæran 1.hring í Q-school Evrópumótaraðarinnar upp á 60 högg leiðir enn eftir 4. dag lokaúrtökumótsins. Hann er þá búinn að leiða alla daga lokaúrtökumótsins, hefir aldrei látið forystuna af hendi. Hann er búinn að spila á samtals – 16 undir pari, samtals 268 höggum (60, 69, 68, 71). Enn eru 2 dagar eftir af þessu mjög svo erfiða móti sem spilað er á 2 ólíkum golfvöllum. Það eru enskir kylfingar sem raða sér í 3 efstu sætin því í 2. sæti er Andy Sullivan 2 höggum á eftir Sam Hutsby og í 3. sæti er David Dixon, 3 höggum á eftir forystumanninum. Dixon deilir Lesa meira










