Rory McIlroy grét eftir að hann glutraði niður sigurfæri á Masters
Rory McIlroy hefir sagst hafa grátið þegar honum mistókst (þrátt fyrir frábært tækifæri) að sigra á Masters í apríl, fyrr á árinu. Átta mánuðum frá deginum, þegar hann spilaði á 80 og sneri 4 högga forystu í -10 högga ósigur í Augusta, þá viðurkenndi McIlroy að hann hefði orðið fyrir slíkum vonbrigðum að hann grét þegar hann talaði við foreldra sína í símann daginn eftir. Rory talaði við foreldra sína heima á Norður-Írlandi til þess að hleypa ergelsinu út. Hin 22 ára stjarna (Rory McIlroy) upplýsti: „Það gæti hafa verið vegna þess að annað þeirra (foreldra hans) sagði eitthvað á þá leið: „Það verður allt í lagi með þig.“ „Ég Lesa meira
Lexi leiðir fyrir lokahringinn í Dubai
Alexis Thompson, unga, fallega, bandaríska golfstjarnan er enn í forystu á Omega Dubai Ladies Masters. Hún kom inn á 70 höggum í dag, -2 undir pari, á hring þar sem hún fékk 4 fugla og 2 skolla. Samtals er Lexi búin að spila á -10 undir pari, 206 höggum (70 66 70). Í 2. sæti er hin sænska Sophie Gustafsson, sem minnkaði aðeins bilið milli sín og Lexi en aðeins 1 högg skilur þær að. Hún spilaði á 69 höggum í dag og er samtals búin að spila á -9 undir pari, 207 höggum (71 67 69). Þriðja sætinu deila Lee-Anne Pace frá Suður-Afríku og hin sænska Pernilla Lindberg, 2 Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Trevor Immelman – 16. desember 2011
Trevor John Immelman er afmæliskylfingur dagsins, en hann fæddist 16. desember 1979, í Höfðaborg, Suður-Afríku og er því 32 ára í dag. Trevor er atvinnukylfingur, frægastur fyrir að hafa sigrað eitt af risamótum PGA, Masters, árið 2008 og síðan einnig fyrir að hafa spilað við Gústa, fv. framkvæmdastjóra GK, en Immelman kom til Íslands og hefir m.a. spilað Hvaleyrina (Sjá skemmtilegt viðtal Golf1 við Gústa (Ágúst Húbertsson) með því að smella HÉR:) Trevor Immelman kemur úr mikilli „golffjölskyldu“ en pabbi hans, Johan, er fyrrum framkvæmdastjóri „Sólskinstúrsins“ (ens.: the Sunshine Tour) í Suður-Afríku, þ.e. aðalmótaraðar atvinnukylfinga í Suður-Afríku, samsvarandi Evróputúrnum eða PGA mótaröðinni í Bandaríkjunum. Trevor byrjaði að spila golf 5 Lesa meira
10 vitlausustu golfjólagjafirnar – strikið þær út af jólagjafalistanum!
Golf Digest hefir tekið saman lista yfir 10 vitlausustu golfjólagjafirnar. Sýnist sitt hverjum. Meðal gjafa sem þar eru talin eru t.d. kylfan frá Hammacher Schlemmer, sem er með 33 stillingar, þannig að í raun er verður settið óþarft. Hér eru allar kylfur í einni. Frábær kylfa i einnarkylfumóti…. en ekki ódýr $ 199 (u.þ.b. kr. 24.000,-) út úr búð í Bandaríkjunum. Digital skorkort er heldur ekki svo vitlaust fyrir þá sem ekki kunna að telja! „Go Girl!¨fær hins vegar allt aðra merkingu! Síðan er kannski líka alveg óþarfi að hafa Loudmouth buxur á þessum lista, svona buxur eins og John Daly er alltaf í. Kannski að einhverjum langi í þær? Lesa meira
Lee Westwood leiðir þegar Thailand Golf Championship er hálfnað
Lee Westwood fylgdi besta hring ferils síns í gær upp á 60 högg eftir með öðrum glæsihring í dag á golfvelli Amata Springs Golf & Country Club í Chonburi á Thailandi. Hann kom inn í dag á 64 höggum í dag, deildi þessu jafnt þ.e. fékk 4 fugla á fyrri 9 og 4 fugla á seinni 9 á skollafríum hring. Hann er nú samtals á -20 undir pari eftir 2 daga, þ.e. á 124 höggum (60 64) og jafnvel þó nokkrir eigi eftir að ljúka leik er enginn, sem getur náð Lee. John Daly spilaði á 73 höggum í dag og er samtals búinn að spila á – 6 undir Lesa meira
Ian Poulter efstur á JB Were Australian Masters eftir 2. dag
Ian Poulter heldur forystu sinni á Australian Masters. Hann var á 68 höggum og er samtals búinn að spila á -9 undir pari þ.e. 133 höggum (65 68). Það eru eintómir Ástralar í næstu sætum: Matthew Giles í 2. sæti og Ashley Hall í 3. sæti, en þeir eru 2 og 3 höggum á eftir Poulter. Geoff Ogilvy er búinn að mjaka sér í 4. sætið, sem hann deilir ásamt 5 löndum sínum. Hann spilaði á 66 höggum í dag og er samtals-5 undir á 137 höggum (71 66). Til að sjá stöðuna á JB Were Australian Masters smellið HÉR:
Myndskeið: Kylfukast Sergio Garcia í Thaílandi í gær
Golf getur verið ansi hreint pirrandi íþrótt þegar ekki gengur vel. Það fékk Sergio Garcia að reyna í gær, 15. desember 2011 á fyrsta degi Thailand Golf Championship. Eftir misheppnað högg af 8. teig henti hann 5-járninu sínu út í tjörn sem var vinstra megin við hann. Þessum skapstóra Spánverja er hins vegar búið að ganga vel á árinu s.s. sigrar hans í Castelleon og á Andalucia Masters á Valderrama, viku eftir viku í síðasta mánuði sýna. Frekar leiðinlegt hjá honum að ljúka árinu með broti á siðareglum golfþróttarinnar. Sjá má myndskeið af kylfukasti Sergio Garcia með því að smella HÉR:
Peter Alliss og Sandy Lyle hljóta inngöngu í Frægðarhöll kylfinga
Peter Alliss og Sandy Lyle, tveir af þekktustu bresku kylfingunum munu hljóta viðurkenningu á næsta ári 2012 fyrir framlag sitt til golfíþróttarinnar, þegar þeir verða teknir í frægðarhöll kylfinga. Alliss, var valinn vegna lífstíðarafreka sinna en Lyle skv. alþjóðlegri atkvæðagreiðslu. Þeim verða veittar viðurkenningarnar ásamt Phil Mickelson, Hollis Stacy og Dan Jenkins við virðulega athöfn í World Golf Village, í St. Augustine í Flórída, 27. maí 2012 n.k. Forsvarsmaður frægðarhallarinnar George O´Grady sagði við þetta tækifæri: „Þetta er sérstakur dagur fyrir Evróputúrinn. Peter Alliss og Sandy Lyle eru báðir verðugir fulltrúar frægðarhallarinnar.“ „Peter fylgdi eftir góðum ferli sínum með því að verða virtur og skemmtilegur golffréttaskýrandi og Sandy átti stóran Lesa meira
David Dixon vann Q-school Evrópumótaraðarinnar – 37 strákar frá 13 löndum hlutu kortin sín á Evróputúrinn
Það var Englendingurinn, David Dixon, sem stóð uppi sem sigurvegari í lokaúrtökumóti Q-school Evrópumótaraðarinnar á PGA Catalunya völlunum í Girona á Spáni í gær, eftir 6 erfiðishringi í golfi spiluðum á 2 mismunandi völlum golfstaðarins. Dixon spilaði á samtals -21 undir pari, þ.e. samtals 407 höggum (74 65 63 69 67 69) og vann sér inn € 16.000,- sigurtékka. Í öðru sæti aðeins 1 höggi á eftir Dixon var Sam Hutsby, sem byrjaði mótið með látum á 60 höggum og leiddi fyrstu 4 daga mótsins, en var ekki nógu sterkur á endasprettinum. Hutsby var sem segir á -20 undir pari, 408 höggum (60 69 68 71 72 68) og hlaut Lesa meira
Bobby Brown aftur á pokanum hjá Dustin Johnson
Dustin Johnson réði nú fyrr í vikunni gamla kylfuberann sinn, Bobby Brown, aftur í vinnu til sín. Dustin var áður með fyrrum kylfubera Fred Couples til 20 ára, Joe La Cava, sem sagði upp störfum hjá Dustin til þess að geta unnið hjá Tiger. Bobby hefir verið á pokanum hjá Dustin í 4 af 5 sigrum þess síðarnefnda, en hlaut gagnrýni vegna slæms gengis Dustin í 2 risamótum, þar sem Dustin hreinlega glutraði sigurtækifærinu úr höndunum á sér. „Ég er virkilega spenntur að vera með Bobby á pokanum aftur,“ sagði Dustin í viðtali við Golf Channel. „Hann og ég höfum alltaf verið nánir og ég kann vel að meta vinnusiðferði Lesa meira










