Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 18. 2011 | 06:00

Manassero heitir því að snúa aftur til Ástralíu

Ítalski unglingurinn Matteo Manassero hefir lokið leik á JBWere Australian Masters í Victoria Golf Club og vonast eftir að geta snúið aftur til Ástralíu sem fyrst. Jafnvel þó Manassero hafi ekki alveg staðið undir væntingum, þá lauk hann leik á ágætisskori 68 höggum, þar sem hann fékk m.a. 4 fugla og örn og var samtals á -1 undir pari. Nr. 58 á heimslistanum (Matteo Manassero) sagðist hafa skemmt sér á Masters og vonaðist til að fá meiri tíma til að spila í Ástalíu í framtíðinni. „Ég kom hér í mesta flýti vegna þess að ég var að spila í Dubai í síðustu viku,“ sagði Manassero eftir lokahringinn. „En ég er virkilega Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2011 | 17:00

Myndasería: Horft tilbaka yfir íslenska golfsumarið: Styrktarmót fyrir sveitir GHG, 1. ágúst 2011

Þann 1. ágúst 2011 fór fram Styrktarmót fyrir sveitir GHG. Það var rigning allan tímann, en eins og alltaf gaman að spila „nývökvaðan” Gufudalsvöllinn. Mótið var punktamót, en einnig voru veitt verðlaun fyrir besta skor. Verðlaun í mótinu komu frá fjölmörgum fyrirtækjum og einstaklingum. Styrktarmótið var haldið til að standa straum af kostnaði klúbbsins vegna þátttöku karla og kvennasveita klúbbsins í sveitakeppni GSÍ. GHG sendi á árinu 2011 í fyrsta sinn kvennasveit í sveitakeppnina og spiluðu stelpurnar í 2.deild. Helstu úrslit voru þessi: Besta skor: Guðmundur Sveinbjörnsson, GK, 73 högg. Hann hlaut Canon ip 4700 prentara og 5×18 holu hringi á Gufudalsvöll. Golf 1 tók viðtal við Guðmund fyrir mótið Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2011 | 16:20

Styrktarmót fyrir sveitir GHG – 1. ágúst 2011

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2011 | 16:00

Öruggur sigur Lexi í dag í Dubai

Lexi Thompson líður ósköp vel í Dubai – kannski vegna þess að það minnir hana á einhvern arabískan máta á heimaríki hennar í Bandaríkjunum, Flórída, en þessi ríki eru á svipaðri breiddargráðu. (Reyndar eru Dubai og Miami á MJÖG svipaðri breiddargráðu!!!) Þessi unga stúlka frá Coral Springs er svo sannarlega að slá í gegn. Hún sigraði í dag í Dubai aðeins 16 ára á -15 undir pari, samtals 273 höggum (70 66 70 67). Hún er í einu orði sagt „frábær!“ Þar með varð hún yngst atvinnumanna til þess að sigra mót á LET! Enn eitt metið sem hún slær!!!  Fyrir sigurinn fær Lexi €75.000,- (u.þ.b. 12 milljónir ísl. króna). Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingar dagsins: Hafdís Alda Jóhannsdóttir GHR & GK og Anton Helgi Guðjónsson, GÍ

Það eru  Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GHR  & GK og Anton Helgi Guðjónsson, GÍ, sem eru afmæliskylfingar dagsins í dag. Hafdís Alda er fædd 17. desember 1997 og er því 14 ára í dag. Hún er í 2 golfklúbbum GK og GHR. Þrátt fyrir ungan aldur varð hún klúbbmeistari GHR 2011. Eins spilaði Hafdís Alda á unglingamótaröð Arionbanka í sumar. Síðsumars var Hafdís Alda í A-sveit GK í unglingasveitakeppni GSÍ í flokki 15 ára og yngri telpna, sem varð í 3. sæti, eftir hörkubáráttu við sveit GR, sem varð í 2. sæti. Keppt var í Leirunni í Keflavík – sigur GR varð til þess að sveit GHD vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2011 | 10:30

Hugleiðingar golffréttamanna um hina nýbökuðu móður: Lorenu Ochoa nr. 7

Hún lærði af  lexíunum á golfvellinum eftir Ron Sirak Eitt af því eftirtektarverða við Ochoa snemma á ferli hennar var hversu oft svo virtist sem hún léti mistök engin áhrif hafa á sig. Hún bjó yfir þeim hæfileika að láta vonbrigðin ljá sér vængi í stað þess að láta þau grafa sig. Á móti í Phoenix árið 2005 var Ochoa með 4 högga forystu yfir Anniku Sörenstam þegar óspilaðar voru 3 holur en fékk skramba á 16. holu og skolla á 17. og þegar Annika fékk fugl á 18. braut varð Lorena að fara í umspil. Ochoa fór á 18. teig á Superstition Mountain og eftir 1. högg hennar lenti boltinn í Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2011 | 09:59

Lee Westwood heldur naumri forystu í Thaílandi eftir 3. dag – Charl Schwartzel spilaði frábært golf – er í 2. sæti

Maður dagsins á Thaíland Golf Championship er sigurvegari Masters í ár, Suður-Afríkumaðurinn Charl Schwartzel. Leikur hans í dag var hreint augnkonfekt. Hann var skilaði sér í hús á -6 undir pari í dag þ.e. 66 höggum,  fékk 4 fugla á fyrri 9 og 3 á seinni og síðan einn ólukkans skolla á 18. holu. Samtals er Charl búinn að spila á 201 höggi (69 66 66). Eftir frábært gengi fyrstu 2 dagana var leikur Lee Westwood langt því frá að vera einhver sýning. Svo virtist að hann ætlaði bara að halda sínu, spila öruggt og það leiddi til lummulega skorsins í dag +1 yfir pari, 73 vonbrigðahögga. Samtals er Lee Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2011 | 09:30

Lexi og Sophie berjast um sigurinn í Dubai í dag

Hin 16 ára Lexi Thompson komst í forystu á Omega Dubai Ladies Masters í gær þegar hún setti niður fugl á 18. holu Majlis golfvallarins í Emirates Golf Club.  Eftir hringinn góða sagði hún: „Ég var að slá vel. Ég skildi eftir nokkur pútt, en vitið þið, það er fullt að stelpum sem eiga sjéns á að stela sigrinum, þannig að þetta verður frábær dagur (í dag).“ „Auðvitað er ég svolítið taugaóstyrk […] hver væri það ekki? En vonandi, held ég einbeitingunnni, spila eina holu í einu og sigra. Ef mér tækist það myndi það vera svalt.“ Sophie Gustafsson, sem er í 2. sæti, höggi á eftir hafði eftirfarandi að segja: Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2011 | 09:00

Geoff Ogilvy leiðir á JB Were Australian Masters eftir 3. dag – spilaði á 63!

Það er heimamaðurinn Geoff Ogilvy, sem stal forystunni á JB Were Australian Masters úr höndum Ian Poulter í nótt, eftir að hafa komið inn á frábæru skori 63 höggum! Með þessu glæsiskori jafnar hann vallarmetið á Victoria golfvellinum í Melbourne, þar sem mótið fer fram.  Ogilvy fékk glæsilegan örn á 1. holunni, sem er par-4, 9 fugla og 3 skolla á þessum frábæra hring. Samtals er Ogilvy búinn að spila á 200 höggum sléttum (71 66 63), samtals -13 undir pari og bætir sig með hverjum hring. „Mér líður greinilega mjög vel hér á þessum golfvelli. Ég hef líklega spilað hérna meira en á nokkrum öðrum golfvelli í heiminum,“ sagði Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2011 | 07:00

Jeff Overton ákærður fyrir mótþróa við handtöku

Bandaríski kylfingurinn Jeff Overton á yfir höfði sér 3 ákærur fyrir mótþróa við handtöku í Indiana í Bandaríkjunum, en lögreglan gerði tilraun til að handtaka hann fyrir óspektir og ölvun á almenningsfæri skv. heimild NewsCore í gær (föstudaginn 16. desember 2011). Overton, 28 ára, dró að sér athygli lögreglu þegar hann öskraði úr limósínu sinni, sagði í WFIE-sjónvarpsstöðinni í Evansville, Indiana, en hún hafði það eftir heimildarmanni innan lögreglunnar. Overton, sem var í Ryderbikarsliði Bandaríkjanna árið 2010, var ákærður fyrir svipuð brot 2007, en ákæran á hendur honum þá var látin falla niður. Hann var líka ákærður fyrir ólöglega neyslu árin 2001 og 2003, þegar hann var undir lögaldri. Hinn Lesa meira