Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2011 | 18:00

Viðtalið: Agnes Ingadóttir, GKJ

Viðmælandi Golf 1 í dag er Agnes Ingadóttir, GKJ. Hún er búin að vera 3 ár í golfi og vann það frækilega afrek að slá draumahöggið í sumar á 2. degi meistaramóts GKJ. Um það og kylfinginn Agnesi Ingadóttur er fjallað hér á eftir: Fullt nafn: Agnes Ingadóttir. Klúbbur: GKJ. Hvar og hvenær fæddistu?  Ég fæddist á Akureyri, 16. október 1965. Hvar ertu alin upp? Ég er alin upp á Akureyri. Hverjar eru fjölskylduaðstæður – er einhver í fjölskyldunni í golfi? Ég er gift Þór Sigurðssyni, sem líka spilar golf og við eigum 3 börn, en ekkert þeirra er í golfi. Hvenær byrjaðir þú í golfi?  Þetta er 3. sumarið mitt, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2011 | 16:15

Hugleiðingar golffréttamanna um hina nýbökuðu móður: Lorenu Ochoa nr. 6

Dýr vanans eftir John Strege Lorena Ochoa er ein af hæverskustu stjörnunum í sögu golfleiksins, hún er eins góð og hún er hæfileikarík. Hún er svo undantekningalaust kurteis að hver blaðamannafundur byrjaði óumbreytanlega á orðum hennar, „halló þið.“ (Ens.: „Hello everybody!“ Í einu mótinu var golffréttamaður USA Today ákveðinn að telja hana á að breyta kveðju hennar. Þannig að hann bauðst til þess að gefa fé til góðgerðarstofnunnar hennar ef hún breytti kveðjuorðum sínum úr „halló þið“ í „hvað er að gerast?“ (ens. What´s up?). Og Ochoa, sem hefir húmor samþykkti, þannig að hún hóf fundinn á „hvað er að gerast?“  Kveðjublaðamannafundur er líklega of sorgleg stund fyrir gamanyrði, en Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2011 | 15:00

Aðalfundur GOB: Gunnar Ingi Björnsson endurkjörinn formaður – félagsgjöld lækkuð

Aðalfundur GOB rekstrarárið 2010-2011 var haldinn mánudagskvöldið 12. desember 2011. Það sem hér fer á eftir má finna á góðri heimasíðu GOB, www.gob.is: „Alls mættu til fundar 19 félagsmenn og hlýddu á skýrslu stjórnar, yfirferð ársreikninga og tóku þátt í líflegum umræðum um starfsemi GOB , framtíð og rekstrarárið sem nú er að líða. Reikningar klúbbsins voru samþykktir samhljóða enda rekstrarniðurstaða ársins mjög góð. Hagnaður var á eiginlegum rekstri klúbbsins upp á 2.783.098 krónur fyrir afskriftir og fjármagnsliðum. Rekstrargjöld klúbbsins voru 23.964.042 krónur utan afskrifta en rekstrartekjur 26.747.140 krónur. Eftir afskriftir ársins var bókfært tap á rekstri klúbbsins 1.562.322 krónur. Rétt er að taka fram að háar afskriftir af fasteignum Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2011 | 14:00

Lexi leiðir þegar Omega Dubai Ladies Masters er hálfnað

Hin unga Alexis Thompson frá Flórída kom í hús á 66 glæsihöggum í dag og er í 1. sæti á Omega Dubai Ladies Masters þegar mótið er hálfnað. Hún missti hvergi högg og fékk 6 frábæra fugla. Hún er samtals á -6 undir pari, samtals 136 höggum (70 66). Í 2. sæti eru Sophie Gustafsson frá Svíþjóð og hin ítalska Margarita Rigon frá Ítalíu  2 höggum á eftir Lexi. Fjórða sætinu deila Julieta Granada frá Paraguay og Becky Morgan frá Wales, 3 höggum á eftir Lexi. Í 6. sæti eru 4 kylfingar: Michelle Wie og síðan 3 sænskar: Pernilla Lindberg, Lotta Wahlin, sem leiddi í gær og Louise Larson, allar Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2011 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jeev Milkha Singh – 15. desember 2011

Það eru margir frábærir kylfingar, sem eiga afmæli í dag. Sá sem er afmæliskylfingur dagsins að þessu sinni eru þó sá sem á 40 ára stórafmæli af þessum stjörnufans: indverski kylfingurinn Jeev Mikha Singh. Jeev fæddist 15. desember 1971 í Chandigarh á Indlandi. Hann er fyrsti indverski kylfingurinn til þess að spila á Evrópumótaröðinni. Foreldrar hans eru indverski Olympíufarinn Milkha Singh og Nirmal Kaur, sem er fyrrum fyrirliði indverska kvennablakliðsins. Frá því Jeev gerðist atvinnukylfingur 1993 hefir hann sigrað 19 sinnum, þar af þrívegis á Evrópumótaröðinni og 4 sinnum á japanska PGA. Besti árangur hans á risamótum er að verða jafn öðrum í 9. sæti á PGA Championship árið 2008. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2011 | 11:30

Lee Westwood í 1. sæti í Thaílandi – spilaði á glæsilegum 60 höggum!

Í dag hófst í Amata Spring Golf & Country Club í Chonburi, Thailand Golf Championship. Keppt er um $1 milljón í verðlaunafé en þetta er í fyrsta sinn sem mótið er haldið og það er jafnframt lokamót á Asíumótaröðinni. Eftir 1. dag er það Englendingurinn Lee Westwood sem leiðir. Hann var á -7 undir pari, 29 höggum, fyrri 9 og fékk síðan 5 fugla á seinni 9 og skilaði sér í hús á glæsilegum 60 höggum, samtals -12 undir pari. Þetta er besta skor Lee Westwood, sem atvinnumanns og vallarmet á golfvelli Amata golfklúbbsins. John Daly kann vel við sig í Thaílandi. Hann var í dag með mikinn aðdáanda sinn í holli, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2011 | 10:00

Annika Sörenstam: Hvernig golfið bjó mig undir að verða móðir

Á Golf1.is hefir hér á undanförnu mikið verið fjallað um kylfinga, sem foreldra. Luke Donald  efsti maður á peningalistum beggja vegna Atlantshafs segist hafa orðið betri kylfingur við fæðingu fyrstu dóttur sinnar, Elle, sbr. Luke, sem sagði m.a.: „Þegar ég lít aftur á fæðingu fyrsta barnsins míns Elle, þá hefir golfleikur minn bara orðið sterkari og sterkari frá þeim tímapunkti. Það var blessun að verða faðir, ég er orðinn ábyrgðarfyllri sem manneskja. Ég hef vaxið og orðið að betri manneskju. Hún er mér virkilega hvatning, bara að horfa á hana vaxa og læra nýja hluti, aðlagast og verða betri og betri en hún var í gær: það er það sem Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2011 | 09:00

Ian Poulter leiðir á JB Were Australian Masters eftir 1. dag

Það er enski kylfingurinn Ian Poulter sem leiðir eftir 1. dag JB Were Australian Masters. Hann kom inn á – 6 undir pari, 65 höggum. Poulter fékk 7 fugla og 1 skolla á par-4 11. braut Victoria golfvellinum í Melbourne. Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir er Ástrali Ashley Hall. Þriðja sætinu deila 6 landar hans, þ.á.m. Jarrod Lyle, sem komst nú nýverið í gegnum Q-school PGA, en þeir sem eru í 3. sæti hafa allir spilað á -4 undir pari, þ.e. 67 höggum. Níunda sætinu deila svo 2 þekktari Ástralir, Rod Pampling og Richard Green, þeir komu inn á -3 undir pari 68 höggum. Loks eru 10 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2011 | 07:00

Henrý Þór Gränz endurkjörinn formaður LEK á aðalfundi

Aðalfundur LEK (Landsambands Eldri Kylfinga) var haldinn í 11. desember s.l.  í golfskála GR í Grafarholti. Á heimasíðu LEK sagði eftirfarandi frá fundinum: „Fundarstjóri var Guðmundur Friðrik Sigurðsson og var dagskrá eins og lög LEK segja til um og hófst með þvi að Henrý Þór Gränz formaður flutti ársskýrslu og Helgi Hólm las upp endurskoðaðan ársreikning félagsins. Samkvæmt rekstraryfirliti varð um 1670 þúsund króna afgangur á rekstri ársins.  Skýrsla formanns og ársreikningurinn voru samþykkt að loknum umræðum. Ein lagabreyting var samþykkt og fólst hún í því að hér eftir er ekki skylt að halda aðalfund í Reykjavík. Að lokum flutti formaður erindi um starfið framundan sem og drög að fjárhagsáætlun. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 15. 2011 | 06:00

Sam Hutsby fatast flugið – David Dixon leiðir í Q-school Evópumótaraðarinnar eftir 5. dag

Englendingurinn David Dixon hefir tekið forystuna úr hendi hins unga landa síns, Sam Hutsby, sem búinn er að leiða alla fyrstu 4 daga Q-school. Eftir 5 spilaða hringi er David á samtals -18 undir pari, samtals 338 höggum (74  65 63 69 67). Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir er Þjóðverjinn Bernd Ritthammer, á -17 undir pari, samtals 339 höggum (65 71 68 68 67).  Sam Hutsby er síðan fallinn niður í 3. sætið og er á samtals -16 undir pari,  2 höggum á eftir David Dixon. Í dag verður spilaður 6. og síðasti hringurinn í Q-school og verður fróðlegt að sjá hvað gerist en munur milli efstu Lesa meira