Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2012 | 10:58

Ryder Cup 2012: Tiger nær nýjum lægðum í ferli sínum

Eftir að 2 dagar eru liðnir af Ryder bikars keppninni í Medinah nálægt Chicago í Bandaríkjunum og 4 leikir, sem leikmenn kynnu mögulega að hafa leikið – hefir Tiger aðeins spilað í 3 og tapað þeim öllum.  Hann hefir ekki lagt til eitt einasta stig til yfirburðastöðu bandaríska liðsins. Tiger hefir s.s. aldrei náð að sýna sitt rétta andlit í Ryder bikars keppninni en þetta eru alveg nýjar lægðir í ferlinum hjá honum. Hann var m.a. látinn sitja hjá í leikjum laugardagsmorgunsins, en það hefir aldrei áður gerst. Þegar Ryder Cup gleðin braust út allt í kringum Tiger meðal félaga hans í bandaríska liðinu í gær eftir að hann og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2012 | 10:30

Golfvellir í Bandaríkjunum: Broad Run Golfers Club í Pennsylvaníu

Bandaríkin eru fjársjóðskista þegar kemur að frábærum golfvöllum. Flestir Íslendingar kannast við golfvelli í Flórída, Kaliforníu eða New York. En það eru svo miklu fleiri fallegir golfvellir dreifðir um öll Bandaríkin: Einn þeirra er Broad Run Golfers Club í Pennsylvaníu. Heimilisfang klúbbsins er: 1520 Tattersall Way, West Chester, Pennsylvanía 19380. Völlurinn er 6.826 yarda (6242  metra) af öftustu teigum og 5.286 yarda (4834 metra)  af þeim fremri og dæmigerður langur bandarískur völlur, þó víða finnist enn lengri vellir.  Á vellinum eru 4 par-3 brautir, 10 par-4 brautir og 4 par-5 brautir. Aðeins er 1 par-3 og 1 par-5 á fremri 9. Meðal hindrana á vellinum eru 54 sandglompur, 3 tjarnir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2012 | 05:00

Ryder Cup 2012: Staðan 10:6 fyrir Bandaríkin eftir leiki laugardagsins

Fjórbolta viðureignir gærdagsins voru æsispennandi og fóru svo: N. Colsaerts / P. Lawrie  Wins 1Up details D. Johnson / M. Kuchar J. Rose / F. Molinari  Wins 5 & 4 details B. Watson / W. Simpson S. Garcia / L. Donald  Wins 1Up details T. Woods / S. Stricker R. McIlroy / I. Poulter  Wins 1Up details J. Dufner / Z. Johnson Lið Evrópu sigraði í tveimur leikjum: Rory McIlroy og Ian Poulter unnu sinn leik 1&0 gegn þeim Jason Dufner og Zach Johnson. Luke Donald og Sergio Garcia höfðu líka betur í sínum leik; unnu með minnsta mun gegn sigurlausum Tiger og Steve Stricker. Minnstu munaði í viðureign Dustin Johnson og Matt Kuchar gegn Nicolas Colsaerts og Paul Lawrie en Bandaríkjamennirnir sigruðu þá viðureign 1&0. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2012 | 20:00

GG: Keiliskonur sigursælar – Þórdís Geirsdóttir og Ásdís Hugrún Reynisdóttir sigruðu í Blue Lagoon Open

Í dag fór fram Blue Lagoon Open kvennamótið  á Húsatóftavelli þeirra Grindvíkinga. Þátttakendur voru 60 eldhressar konur, sem léku golf við nokkuð hvassar aðstæður. Leikfyrirkomulag var punktakeppni með forgjöf og höggleikur án forgjafar.  Allir þátttakendur fengu í teiggjöf Boðskort fyrir tvo í Bláa Lónið, Algea Mask 10 ml og Mineral Moisturizing Cream 5 ml. Sigurvegarinn í höggleik án forgjafar varð Þórdís Geirsdóttir en hún lék Húsatóftavöll í dag á 3 yfir pari, 73 höggum. Laufey Valgerður Oddsdóttir, GR, varð í 2. sæti á 86 höggum; Ásta Óskarsdóttir, GR, í 3. sæti á 88 höggum og Þóranna Andrésdóttir, GS í 4. sæti  sömuleiðis á 88 höggum. Í verðlaun fyrir 1. sætið hlaut Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2012 | 18:30

Ryder Cup 2012: Staðan 8-4 fyrir Bandaríkin eftir fyrri leiki dagsins

Nú rétt í þessu lauk 3. umferð í Ryder bikarnum.  Bandaríska liðið hélt uppteknum hætti á heimavelli að rúlla upp liði Evrópu. Með áframhaldandi slöku gengi evrópska liðsins getur vel farið svo að Ryder bikarinn snúi aftur til Bandaríkjanna. Svona fóru leikir í 3. umferð: Keegan Bradley og Phil Mickelson unnu Lee Westwood og Luke Donald stórt 7&6. Jason Dufner og Zach Johnson sigrðuð Nicolas Colsaerts og Sergio Garcia 2&1. Norður-írska gengi Mac-ana tapaði fyrir Brandt Snedeker og Jim Furyk með minnsta mun 1&0. Ian Poulter og Justin Rose höluðu inn eina vinning Evrópu gegn Bubba Watson og Webb Simpson; unnu með minnsta mun 1&0. Eftir 3. umferð er staðan Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2012 | 16:30

Bandaríska háskólagolfið: Stefanía Kristín hefur keppni á Lady Bearcat Invitational í dag

Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, GA og golfliði Pfeiffer, Lady Falcons tekur þátt í Lady Bearcat Invitational, á Old South Golf linksaranum á Hilton Head í Suður-Karólínu. Það er  Lander University sem er gestgjafi í mótinu. Þátttakendur eru alls 60 frá 12 háskólum. Þessir háskólar eru eftirfarandi: Lander University, USC Beaufort, Armstrong Atlantic State, Carson-Newman, Coker, Columbus (Ga.) State, Flagler, Montevallo, North Georgia, Pfeiffer, Savannah College of Art and Design and West Georgia. Golf 1 óskar Stefaníu Kristínu góðs gengis í dag!


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2012 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Berglind Björnsdóttir – 29. september 2012

Það er Berglind Björnsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Berglind er fædd 27. september 1992 og á því 20 ára stórafmæli í dag!!! Berglind er afrekskylfingur í Golfklúbbi Reykjavíkur og spilar með liði UNCG í bandaríska háskólagolfinu. Berglind sigraði m.a. á 2. stigamóti Eimskipsmótaraðarinnar í Vestmannaeyjum í sumar. Sjá má nýlegt viðtal Golf 1 við Berglindi með því að SMELLA HÉR:  Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan: Berglind Bjornsdottir (20 ára stórafmæli!!! Innilega til hamingju!!!)  Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Kermit Millard Zarley, Jr., 29. september 1941  (71 árs);  Vicky Fergon, 29. september 1955 (57 ára) , sigraði  CA LPGA 1979 Lady Stroh´s á sínum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2012 | 14:30

Kærestur og eiginkonur Ryder Cup liðsmanna vekja alltaf athygli

Í allri spennunni sem fylgir Ryder Cup keppnum er nauðsynlegt að hafa þá þætti í lífi leikmanna til staðar, sem veita þeim mesta stuðninginn og fær þá vonandi til að mæta afslappaðri til leiks: eiginkonur og kærestur.  Þeim er alltaf helgaður sérstakur þáttur í Ryder bikarskeppnunum. Þær eru sjaldnast kynntar eins og gert var í opnunarhátíðinni í Medinah s.l. fimmtudag, þ.e. þeim helgaður sérstakur hluti hátíðarinnar. Síðan er haldinn sérstakur Gala-dinner fyrir keppni og þar er mikil samkeppni milli eiginkvenna og kæresta beggja liða ekki síður en milli eiginmanna og kæresta á golfvellinum. A.m.k. virðist fyrirliði evrópska liðsins ánægður með WAGS-in sín þetta árið, en tekin var skemmtileg mynd af Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2012 | 14:30

Íslenska landsliðið í 39. sæti á heimsmeistaramóti áhugamanna – Lydia Ko í 1. sæti í einstaklingskeppninni eftir 3. dag

Þriðja hring á heimsmeistaramóts áhugamanna kvennalandsliða lauk í Antalya í Tyrklandi í dag. Þátttakendur eru 157 frá 53 þátttökuþjóðum og er keppt um hinn fræga Espirito Santo Trophy, sem keppt hefir verið um frá árinu 1964. Íslenska landsliðið skipað þeim Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur, GK; Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur, GR og Valdísi Þóru Jónsdóttur, GL, er í 39. sæti. Ólafía Þórunn spilaði best af íslensku þátttakendunum í dag; er samtals á 9 yfir pari, 225 höggum (79 70 76) og er ásamt 5 öðrum kylfingum í 66. sæti í einstaklingskeppninni, fyrir lokahringinn, sem leikinn verður á morgun. Valdís Þóra spilaði á samtals 14 yfir pari, 230 höggum (77 76 77) og deilir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2012 | 13:15

Hver er kylfingurinn: Lloyd Mangrum?

Lloyd Eugene Mangrum ( f. 1. ágúst 1914 – d. 17. nóvember 1973) var bandarískur atvinnukylfingur.  Hann var þekktur fyrir mjúka sveiflu sína og afslappaða hegðun sína á golfvellinum, sem varð til þess að hann fékk viðurnefnið  „Mr. Icicle“ Mangrum fæddist í Trenton, Texas. Hann gerðist atvinnukylfingur 15 ára og van sem aðstoðarmaður bróður síns, Ray, sem var yfirkennari í Cliff-Dale Country Club í Dallas. Mangrum gerðist atvinnumaður 1929 og komst á PGA Tour 1937 þar sem hann vann 36 af 42 mótum sínum, sem atvinnumaður.  Hann myndi eflaust hafa sigrað á fleiri mótum ef 2. heimstyrjöldin hefði ekki komið á milli, sem þýddi  7 ára hlé á golfleik. Fyrir stríð var Lesa meira