Berglind Björnsdóttir, GR. Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2012 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Berglind Björnsdóttir – 29. september 2012

Það er Berglind Björnsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Berglind er fædd 27. september 1992 og á því 20 ára stórafmæli í dag!!! Berglind er afrekskylfingur í Golfklúbbi Reykjavíkur og spilar með liði UNCG í bandaríska háskólagolfinu. Berglind sigraði m.a. á 2. stigamóti Eimskipsmótaraðarinnar í Vestmannaeyjum í sumar. Sjá má nýlegt viðtal Golf 1 við Berglindi með því að SMELLA HÉR: 

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan:

Berglind Bjornsdottir (20 ára stórafmæli!!! Innilega til hamingju!!!)
 Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Kermit Millard Zarley, Jr., 29. september 1941  (71 árs);  Vicky Fergon, 29. september 1955 (57 ára) , sigraði  CA LPGA 1979 Lady Stroh´s á sínum tíma;  Kelly Robbins, 29. september 1969 (43 ára);  Tina Fischer, Bad Nauheim, Þýskalandi, 29. september 1970  (42 ára) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is