Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2012 | 12:30
Ryder Cup 2012: Colsaerts hetja evrópska liðsins

Eftir aðeins 1 leik í Ryder Cup er Nicolas Colsaerts þegar orðinn Ryder Cup stjarna – hann bjargaði Evrópu eftir hádegi í gær frá algjöru bursti. Fyrsti kylfingur frá Belgíu til að spila í Ryder keppninni fékk ótrúlega 8 fugla og 1 örn í síðasta fjórbolta dagsins í Chicago. Félagi hans í evrópska liðinu Lee Westwood, sem nú tekur þátt í 8. keppni sinni lagði ekki einn einasta fugl í púkkið, en saman komu þeir færandi hendi fyrir Evrópu og urðu til þess að staðan eftir gærdaginn er 5-3. Colsaerts-Westwood unnu Tiger Woods og Steve Stricker á vellinum í Medinah þar sem Tiger hefir spilað í 2 risamótum og unnið bæði. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2012 | 23:45
Ryder Cup: Staðan 5:3 fyrir bandaríska liðið eftir 1. dag

Eftir hádegið var spilaður fjórbolti í Medinah í Chicago. Úrslitin voru eftirfarandi: P. Lawrie / P. Hanson vs. B. Watson / W. Simpson details Wins 5 & 4 R. McIlroy / G. McDowell vs. P. Mickelson / K. Bradley details Wins 2 & 1 J. Rose / M. Kaymer vs. D. Johnson / M. Kuchar details Wins 3 & 2 L. Westwood / N. Colsaerts vs. T. Woods / S. Stricker details 1Up thru 17 Það var bara einn leikur sem vannst af liði Evrópu í fjórboltanum eftir hádegi þ.e. hinn reynslumikli Westwood og nýliðinn belgíski, Nicolas Colsaerts unnu Steve Stricker og Tiger, en þeim síðarnefndu hefir enn ekki tekist að sigra í keppninni, sem reyndar er nýhafin. Rose og Kaymer töpuðu fyrir DJ og Kuch 3&2, Mickelson og Bradley Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2012 | 19:00
Nýju stúlkurnar á LET 2012 (23. grein af 34): Kendall R. Dye

Bandaríski kylfingurinn Kendall R. Dye var ein af 7 stúlkum sem urðu í 9. sæti á Q-school LET á La Manga fyrr á árinu. Þrjár af þessum 7 stúlkum hafa þegar verið kynntar þ.e.: Liebelei Lawrence, Jennie Lee og Charlotte Ellis og þær þrjár sem eftir eru verða kynntar á næstu dögum. Kendall R. Dye fæddist 3. mars 1987 í Memphis, Tennessee og er því 25 ára. Kendall byrjaði að spila golf 8 ára. Meðal áhugamála hennar er að horfa á kvikmyndir, fara í verslunarleiðangra, lesa og háskólaíþróttir. Hún segir fjölskyldu sína hafa haft mest áhrif á að hún byrjaði í golfi. Kendall var í University of Oklahoma og útskrifaðist Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2012 | 18:05
Ryder Cup 2012: Staðan 2-2 eftir leiki morgunsins

Staðan eftir fyrstu leiki í Ryder bikars keppninni er eftirfarandi: Fjórmenningsleikir föstudagsins R. McIlroy / G. McDowell Wins 1Up details | J. Furyk / B. Snedeker L. Donald / S. Garcia Wins 4 & 3 details | P. Mickelson / K. Bradley L. Westwood / F. Molinari Wins 3 & 2 details | J. Dufner / Z. Johnson I. Poulter / J. Rose Wins 2 & 1 details | S. Stricker / T. Woods Gríðarsterka liðsheild Norður-Íranna G-Mac og R-Mac unnu fyrsta leik keppninnar með minnsta mun þ.e. þá Jim Furyk og nýliðann fræga Brandt Snedeker, sem vann Tour Championship s.l. helgi. Phil Mickelson og Keegan Bradley unnu Luke Donald og Sergio Garcia með mesta mun þennan morguninn 4& 3. Westy og Molinari urðu að láta í minni pokan fyrir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2012 | 18:00
Afmæliskylfingur dagsins: Sigurjón Harðarson – 28. september 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Sigurjón Harðarson. Sigurjón er fæddur 28. september 1952 og á því 60 ára stórafmæli í dag!!! Sigurjón er formaður Golfklúbbs Ásatúns og er þar að auki eigandi bifreiðaverkstæðisins Topps. Sigurjón er kvæntur Valgerði Jönu Jensdóttur, sem líka spilar golf og þau eiga tvo stráka. Sjá má nýlegt viðtal Golf 1 við afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Sigurjon Harðarson (Innilega til hamingju!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Margaret „Wiffi“ Smith 28. september 1936 (76 ára); Giuseppe Calì, 28. september 1952 (60 ára stórafmæli); Gustavo Rojas, 28. september 1967 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2012 | 17:00
Birgir Leifur komst á 2. stig úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina!!!

Birgir Leifur er kominn á 2. stig úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina!!!! Birgir Leifur lauk leik í Bogogno á Circolo golfvellinum í dag. Hann lék lokahringinn á sléttu pari, 72 höggum, fékk 1 skramba og 2 fugla. Birgir Leifur lauk leik á samtals 2 undir pari, 286 höggum (71 74 69 72). Hann varð T-23, þ.e deildi 23. sætinu með tveimur öðrum kylfingum. Aðeins 28 efstu í mótinu komust á 2. stig úrtökumótsins og er þetta því glæsilegur árangur hjá Birgi Leif! Annað stig úrtökumótsins fer fram í nóvember n.k. Til þess að sjá úrslitin á 1. stigi úrtökumótsins í Bogogno SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2012 | 16:30
Ólafía Þórunn lék á 2 undir pari á 2. degi á heimsmeistaramóti áhugamanna í Tyrklandi

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, lék best allra á í íslenska landsliðinu á Gloria golfvellinum í Antalya í Tyrklandi í dag. Hún kom í hús á 2 undir pari, 70 höggum. Ólafía Þórunn fékk 3 fugla og 1 skolla á hringnum og er í 56. sæti í einstaklingskeppninni. Samtals er Ólafía Þórunn búin að spila á 149 höggum (79 70). Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, var á 4 yfir pari, 76 höggum. Valdís fékk 4 fugla og 6 skolla og 1 skramba. Samtals er Valdís Þóra búin að spila á 153 höggum (77 76) í mótinu Hún er sem stendur í 84. sætinu í einstaklingskeppninni. Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK, er samtals búin Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2012 | 10:00
Ryder Cup 2012: Keegan Bradley hlakkar til fyrstu Ryder bikars keppni sinnar

Frammistaða Keegan Bradley á Tour Championship er líklega nokkuð sem hann vill gleyma sem fyrst. Á sunnudaginn þegar hann lauk leik í FedExCup umspilinu tvítaði hann eftir hring upp á 4 yfir pari, 74 högg á East Lake, sem skilaði honum lokaniðurstöðu upp á 7 yfir pari og T-23 sæti af þeim 30 sem þátt tóku. Hann varð einnig í 21. sæti á FedExCup stigalistanum. Varðandi Ryder bikars keppnina sem framundan er sagði Bradley: „Á þessum augnblikum – þessum áköfu, alvarlegu augnablikum – hreinlega elska ég leikinn. Mér líkar virkilega vel við seinni-9 tilfinninguna á sunnudaginn.“ Bradley er heilmikill keppnismaður sem m.a. sást þegar hann náði sér eftir þrefaldan skolla á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2012 | 08:30
Ryder Cup 2012: McIlroy og McDowell spila saman í fyrstu leikjunum í dag

Rory McIlroy og Graeme McDowell hefja leik fyrir hönd Evrópu í Ryder bikarsvörninni gegn Jim Furyk og Brandt Snedeker í fjórmenningum dagsins í dag. Þetta norður-írska lið vann vel saman þegar lið Evrópu vann Ryder bikarinn í The Celtic Manor Resort, 2010. Luke Donald og Sergio Garcia munu síðan fara næstir út gegn Phil Mickelson og Keegan Bradley áður en Lee Westwood og Francesco Molinari hefja leik gegn Jason Dufner og Zach Johnson. Einn af hápunktum mogunsins er síðan enska liðið Ian Poulter og Justin Rose gegn nr. 2 á heimslistanum Tiger Woods og Steve Stricker.Woods og Stricker eru með frábæran feril saman 6-2 (þ.e. 6 sigra og 2 jafntefli). Leikir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2012 | 21:30
Bandaríska háskólagolfið: Ragna Björk tók þátt í NCAA Women´s Fall Preview
Ragna Björk Ólafsdóttir, klúbbmeistari GKG og liðsfélagar í St. Leo, tóku þátt í NCAA Women´s Fall Preview mótinu dagana 16.-18. september s.l. Lokahringurinn var ekki spilaður í mótinu vegna mikillar rigningar, eldinga og þrumuveðurs. Ákveðið var að stytta mótið í 36 holu mót. Ragna Björk lék á samtals 185 höggum (85 80) og taldi skor hennar ekki að þessu sinni. Lið St. Leo varð í 9. sæti Næsta mót Rögnu Bjakar er Myrtle Beach Intercollegiate í Sea Trail Golf Club og hefst það 1. október þ.e. á mánudaginn n.k. Sjá má myndaseríu frá mótinu með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

