Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2012 | 11:00
Ryder Cup 2012: Kaymer hugsaði um Langer áður en hann púttaði úrslitapúttið

Martin Kaymer sagði eftir að Ryder bikarinn var í höfn að hann hefði hugsað um Bernhard Langer áður en hann setti niður púttið sem hélt bikarnum í Evrópu. Langer missti 6 feta (1.8 metra) pútt á 18. flöt í Kiawah Island árið 1991, sem varð til þess að Ryder bikarinn fór til Bandaríkjamanna. Kaymer átti nákvæmlega sama pútt þ.e. af sömu lengd eftir í viðureign sinni gegn Steve Stricker í Medinah en ólíkt læriföður sínum setti hann púttið niður. „Ég hugsaði um hann, sérstaklega þegar ég gekk í kringum holuna til að lesa púttið frá hinni hliðinni,“ sagði Kaymer. „Það var fótspor á línunni minni (í tilviki Langer var það Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2012 | 02:00
Ryder Cup 2012: Evrópa sigraði 14 1/2 – 13 1/2 – hápunktar lokadagsins – myndskeið

EVRÓPA SIGRAÐI!!!! Mögnuð Ryder bikarsvörn, sem á sér fáa líka og það á útivelli …. og það var Martin Kaymer sem innsiglaði sigurinn – sigurinn sem allir í frábæru liði Evrópu lögðu sitt af mörkum til !!!! Sögulegan sigur!!!!! Að koma tilbaka eftir að hafa verið undir 10-6 er ótrúlegt …. og hvatning og innblástur allra Seve Ballesteros!!! Olé, Olé; Olé Ollie….. Til þess að endurupplifa nokkra hápunkta gærkvöldsins í sigri Evrópu í Medinah SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá úrslitin á Ryder Cup 2012 SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2012 | 21:00
Bandaríska háskólagolfið: Eygló Myrra tekur þátt í Rose City Collegiate á morgun

Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO og University of San Francisco taka þátt í Rose City Collegiate í Langdon Farm GC, í Aurora, Kaliforníu á morgun. Komast má á heimasíðu Langdon Farms með því að SMELLA HÉR: Gestgjafi er Portland State. Golf 1 óskar Eygló Myrru góðs gengis!!!
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2012 | 20:40
Afmæliskylfingur dagsins: Anna Einarsdóttir – 30. september 2012

Það er Anna Einarsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Anna er fædd 30. september 1964 og er því 48 ára í dag. Anna er í Golfklúbbi Akureyrar. Sjá má nýlegt viðtal við afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebooksíðu Önnu til þess að óska henni til hamingju hér að neðan: Anna Einarsdóttir (Innilega til hamingju!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Kim Bauer, 30. september 1959 (53 ára); Nadine Handford, 30. september 1967 ástralskur kylfingur frá Adelaide (1993 T77 Alpine Aust Ladies) ….. og ….. Ragnheiður Elín Árnadóttir (45 ára) Þot -Bandalagþýðendaogtúlka Herdís Jónsdóttir Magnús M Norðdahl (56 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2012 | 20:25
Bandaríska háskólagolfið: Arnór Ingi hefur leik á morgun á Myrtle Beach Invitational

Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR og The Crusaders, golflið Belmont Abbey tekur þátt á morgun í Myrtle Beach Invitational, í Suður-Karólínu. Mótið er tveggja daga og stendur fyrstu tvo dagana í næsta mánuði. Golf 1 óskar Arnóri Inga góðs gengis!!!
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2012 | 20:10
Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór spilar á morgun á Jim Rivers Intercollegiate

Golflið Nicholls State University tekur þátt í Jim Rivers Intercollegiate mótinu sem er tveggja daga, frá 1. -2. október 2012. Gestgjafi mótsins er Louisiana Tech. Meðal þeirra sem þátt taka í mótinu er Andri Þór Björnsson, GR. Spilað er á Squire Creek golfvellinum í Choudrant, Louisiana. Þátttakendur er golflið 14 háskóla. Golf 1 óskar Andra Þór góðs gengis á morgun!!! Fylgjast má með gengi Andra Þórs með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2012 | 20:00
Bandaríska háskólagolfið: Sunna og Berglind hefja keppni á morgun á UNCG Starmount Classic

Klúbbfélagarnir Sunna Víðisdóttir, GR og Berglind Björnsdóttir, GR, keppa á morgun á UNCG Starmount Classic mótinu, sem fram fer í Greensboro, Norður-Karólínu, nánar tiltekið í Starmount Forest CC. Mótið er tveggja daga frá 1. október -2. október 2012 og gestgjafi er háskóli Berglindar UNCG. Golf 1 óskar þeim Berglindi og Sunnu góðs gengis!!! Til þess að fylgjast með gangi mála á Starmount Classic mótinu á morgun getið þið SMELLT HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2012 | 12:50
Íslenska landsliðið lauk leik í 36. sæti á heimsmeistaramóti áhugamanna

Í dag lauk keppni á heimsmeistaramóti áhugamanna kvennalandsliða í Antalya í Tyrklandi. Þátttakendur voru 157 frá 53 þátttökuþjóðum og var keppt um hinn fræga Espirito Santo Trophy, sem keppt hefir verið um frá árinu 1964. Íslenska landsliðið skipað þeim Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur, GK; Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur, GR og Valdísi Þóru Jónsdóttur, GL, hafnaði í 36. sæti ásamt liði heimamanna, þ.e. Tyrkja, Austurríkismanna og Rússa. Ólafía Þórunn spilaði best af íslensku þátttakendunum, lauk keppni á samtals á 8 yfir pari, 296 höggum (79 70 76 71) og lauk keppni ásamt 2 öðrum kylfingum í 54. sæti í einstaklingskeppninni. Valdís Þóra spilaði á samtals 21 yfir pari, 309 höggum (77 76 77 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2012 | 12:30
Bandaríska háskólagolfið: Theodór Emil Karlsson og Ari Magnússon hefja leik í dag á Texoma Championship í Oklahoma

Þeir Theodór Emil Karlsson, GKJ og Ari Magnússon, GKG spila með golfliði University of Arkansas í Monticello. Þeir hefja leik í dag ásamt golfliði sínu í Texoma Championship í Kingston, Oklahoma. Mótið stendur dagana 30. september – 2. október 2012. Gestgjafi er SE Oklahoma State University. Golf 1 óskar þeim Theodór Emil og Ara góðs gengis!!!
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2012 | 11:55
Bandaríska háskólagolfið: Íris Katla og Ragna Björk hefja leik á Myrtle Beach Intercollegiate á morgun

Íris Katla Guðmundsdóttir, GR og The Royals, golflið The Queens University of Charlotte og Ragna Björk Ólafsdóttir, klúbbmeistari GKG 2012 og lið hennar í St. Leo, spila á Myrtle Beach Intercollegiate mótinu. Mótið hefst á morgun, 1.október á Sunset Beach í Norður-Karólínu. Spilað verður í Sea Trail Golf Resort á norðurhluta Myrtle strandar. Gestgjafar mótsins eru Lincoln Memorial University og Lenior-Rhyne University. Golf 1 óskar Írisi Kötlu og Rögnu Björk góðs gengis!!!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

