Ragnheiður Jónsdóttir | október. 5. 2012 | 17:00
Evróputúrinn: Branden Grace í 1. sæti þegar Dunhill Links Championship er hálfnað

Það er „Amazing Grace“ þ.e. Branden Grace frá Suður-Afríku, nýliðinn á Evrópumótaröðinni, sem er í forystu á Dunhill Links Championship, þegar mótið er hálfnað. Grace er búinn að spila á samtals 17 undir pari, 127 höggum (60 67) og á 5 högg á þá sem deila 2. sætinu Svíanum Joel Sjöholm (65 67) og Thorbjörn Olesen frá Danmörku (63 69). Grace og Sjöholm spiluðu á St. Andrews í dag en Olesen á Carnoustie. Grace sagði eftir hringinn:„Ég held að það hvernig ég er að spila og slá boltann þá hlakka ég reglulega til að spila á Carnoustie. Pútterinn er að virka og ég hlakka til þess.“ Til þess að sjá stöðuna Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 5. 2012 | 16:45
LET: Diana Luna í 1. sæti í Frakklandi

Það er ítalska stúlkan Diana Luna, sem tekið hefir forystuna á Lacoste Ladies Open de France, sem hófst á golfvelli Chantaco Golf Club í Saint-Jean-de-Luz, í Aquitaine, í Frakklandi í gær. Luna er búin að spila á samtals 9 undir pari, 131 högg (67 64). Í 2. sæti er forystukona gærdagsins Stacey Keating frá Ástralíu á samtals 7 undir pari, 133 höggum (62 71). Lorena Ochoa sem er að keppa í fyrsta sinn eftir barneignir á „alvörumóti“ er búin að spila á samtals 1 yfir pari, 141 höggi (69 72). Hún deilir 25. sætinu með 6 öðrum. Það var tilkynnt í dag að fyrirliði Evrópu í Ryder bikarskeppninni José María Olazábal Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 5. 2012 | 16:25
Leik frestað vegna myrkurs á HM áhugamanna í Tyrklandi

Íslenska karlalandsliðið í golfi sem skipað er þeim Axel Bóassyni GK, Haraldi Franklín Magnús GR og Rúnari Arnórssyni GK, náði ekki að ljúka leik í dag fyrir myrkur. Vegna veðurs frestaðist ræsing um sex klukkutíma í morgun. Axel var staddur á 18 flöt, Haraldur á 17 flöt og Rúnar á 17 teig þegar leik var frestað vegna myrkurs, þeir munu klára hringinn í fyrramálið. Haraldur Franklín er búin að spila best allra í liðinu er á 2 undir pari, þegar leik var frestað. Axel og Rúnar voru báðir á 3 yfir pari. Golf 1 óskar þeim Axel, Haraldi Franklín og Rúnari góðs gengis á morgun! Til þess að sjá stöðuna Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 5. 2012 | 16:00
Ólafur Björn í 63. sæti á úrtökumótinu í Frilford – komst ekki á næsta stig úrtökumótsins
Ólafur Björn Loftsson, NK, lauk í dag keppni á golfvelli Friford Heath golfklúbbnum í úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina. Ólafur Björn spilaði á samtals 11 yfir pari, 299 höggum (77 73 76 73). Hann varð í 63. sæti og komst því ekki á næsta stig úrtökumótsins. Aðeins þeir sem voru í 29 efstu sætunum komust áfram. Til þess að sjá úrslitin á Frilford Heath SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 5. 2012 | 14:00
Afmæliskylfingur dagsins: Geir Hörður Ágústsson – 5. október 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Geir Hörður Ágústsson. Geir Hörður fæddist 5. október 1962 og á því 50 ára stórafmæli í dag!!! Geir Hörður er í Golfklúbbi Ólafsfjarðar. Hann tók m.a. þátt í Bændaglímu GÓ, 23. september s.l. með góðum árangri. Geir Hörður á eina dóttur, Sonju. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Geir Hörður Ágústsson (50 ára – innilega til hamingju!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Laura Davies, 5. október 1963 (49 ára) …. og …… Inga Þöll Þórgnýsdóttir (51 árs) Margrét Grímlaug Kristjánsdóttir (54 ára) Sigurveig Árnadóttir (47 ára) Hallsteinn Traustason Eggert Steinar (17 ára) Guðmundur Bj. Hafþórsson (37 ára) Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 5. 2012 | 12:40
Ryder Cup 2012: Peter Hanson óánægður með Olazábal

Í íþróttum, líkt og stjórnmálum er samstaða í Evrópu brothættur hlutur. Aðeins fjórum dögum eftir að álfan sameinaðist í sigri Jose Maria Olazábal í Ryder bikars keppninni í Medinah, er fyrsta sprungan byrjuð að myndast á ásýnd glaðværðar liðsheildarinnar eftir uppljóstranir Svíans Peter Hanson um spennuna, sem kraumaði undir yfirborðinu, í Chicago. Hanson fékk aðeins að leika í einum leik á fyrstu tveimur dögum keppninnar, en hann lék ásamt Paul Lawrie í leik sem þeir töðuðu 5&4 gegn Bubba Watson og Webb Simpson í fjórbolta föstudagsins, fyrir viku síðan. Hann gerði ráð fyrir að fá að spila aftur á laugardagssíðdeginu og var bitur þegar Olazábal lét hann sitja hjá. Reiðin hafði Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 5. 2012 | 12:00
Dýr á golfvöllum: Paul Casey í vandræðum með Digby
Paul Casey gat ekki leikið á Dunhill Links Championship mótinu eftir að lítill hundur hljóp á flötina, þar sem hann var búinn að eygja skemmtilegan hvítan bolta sem tilvalið var að leika sér svolítið með. Atvikið átti sér stað við 12. holu Kingsbarns golfvallarins, þar sem Paul Casey var ásamt olympíusundstjörnunni Michael Phelps í Pro-Am hluta mótsins fyrr í vikunni. Litli hvuttinn heitir Digby. Hann tók upp boltann í kjaftinn á sér, hljóp af stað með hann og vildi ekki sleppa, enda stórskemmtilegt að láta alla hlaupa eftir sér. Að lokum náðist boltinn, að vísu svolítið blautur og Casey setti niður …..hmmm hunda eða fuglapútt? Ef áhugi er að lesa fréttina Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 5. 2012 | 08:00
Hvað er óhollt að borða fyrir golfhring?
Þeir hjá Golf Digest eru alltaf að taka saman skemmtilega lista yfir hitt og þetta sem við kemur golfi; t.a.m. lista yfir verst klæddu kylfingana, lista yfir það sem mest fer í taugarnar á kylfingum á golfhring o.s.frv.; o.s.frv. Nú hefir nýjasta samantekt Golf Digest litið dagsins ljós þ.e. listi yfir það sem óhollt er að boða fyrir golfhring. Ýmislegt á þeim lista kemur ekki á óvart s.s. – hver fer að úða í sig franskar eða eina með öllu fyrir hring eða pretzel-um? Kannski betra að bíða með pylsuna eftir hring 🙂 Annað á e.t.v. eftir að vekja meiri athygli. Til þess að sjá lista Golf Digest yfir það Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 5. 2012 | 07:00
PGA: Moore á 61 á Justin Timberlake Shriners Hospitals for Children Open – hápunktar og högg 1. dags

Ryan Moore náði e.t.v. ekki að komast í lið Bandaríkjamanna í Ryder bikarnum en hann sýndi hversu mikill klassakylfingur hann er í Justin Timberlake Shriners Hospitals for Children Open. Hann hóf leik í gær á 10 undir pari, 61 höggi höggi á TPC Summerlin í Las Vegas. Moore er með 1 höggs forystu á Brendon de Jonge frá Zimbabwe meðan Tim Herron og John Huh deila 3. sæti á 8 undir pari, hvor. Eftir 1. hring sagði Moore m.a. að hann hefði bara verið að slá vel. Chris Kirk, Justin Leonard og Jonas Blixt eru síðan í 5. sæti á 7 undir pari, hver og Vijay Singh frá Fidji er í hóp kylfinga Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 4. 2012 | 17:00
LET: Stacey Keating í 1. sæti á Lacoste mótinu eftir 1. dag – var á 62 glæsihöggum!!!

Það er ástralska stúlkan Stacey Keating, sem tekið hefir forystuna á Lacoste Ladies Open de France, sem hófst á golfvelli Chantaco Golf Club í Saint-Jean-de-Luz, í Aquitaine, í Frakklandi. Keating skilaði sér í hús á 8 undir pari, 62 glæsihöggum. Hún fékk 9 fugla og 1 skolla á par-70 golfvellinum. Í 2. sæti eru heimakonurnar Virginie Lagoutte-Clement og Sophie Giquel-Bettan, Lydía Hall frá Wales og spænski stórkylfingurinn Azahara Muñoz. Þær spiluðu á 4 undir pari, 66 höggum. Lorena Ochoa, sem er ekki í neinu spilaformi vegna langrar fjarveru frá keppnisgolfi var á 1 undir pari, 69 höggum í dag. Þessi mexíkanska fyrrum nr. 1 í heimi kvennagolfsins deilir 17. sæti ásamt nokkrum öðrum, Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

