Ragnheiður Jónsdóttir | október. 4. 2012 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Sunna Víðisdóttir, Kolbrún Ólafsdóttir og Haukur Hólm Hauksson – 4. október 2012

Þetta er stór afmælisdagur kylfinga þ.e. það eru margir frábærir kylfingar, sem eiga afmæli í dag. Þegar unnið er alla daga við að skrifa afmælisgreinar sést fljótt að suma daga er varla hægt að finna kylfing sem fæddur er á viðkomandi degi og svo aðra daga, sem margir stórkylfingar eru fæddir á. Þeir sem fæddir eru í dag virðast fæddir undir stórri golfstjörnu!!! Afmæliskylfingar dagsins eru þrír í dag, en þeir eiga allir stórafmæli. Sunna Víðisdóttir er fædd 4. október 1994 og á því 18 ára afmæli í dag!!!! Sunna er afrekskylfingur í GR og stundar nám og spilar golf með golfliði Elon háskóla í Norður-Karólínu, í Bandaríkjunum.  Sjá má nýlegt viðtal Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 4. 2012 | 15:30

Evróputúrinn: Branden Grace tekur forystuna á Dunhill Links Championship á 60 höggum!!!

Dunhill Links Championship hófst í Skotlandi í dag. Spilað er á 3 golfvöllum, hverjum öðrum þekktari: Carnoustie, Kingsbarns og St. Andrews. Branden Grace, frá Suður-Afríku hefir tekið forystu snemma dags, kom inn á 12 undir pari, 60 glæsihöggum í dag en hann spilaði Kingsbarns golfvöllinn. Grace fékk hvorki fleiri né færri en 10 glæsifugla og einn æðislegan örn! Í 2. sæti er Frakkinn Victor Dubuisson á 62 höggum, en hann spilaði á St. Andrews Old Course. Til þess að fylgjast með stöðunni á Dunhill Links Championship SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 4. 2012 | 15:15

Ólafur Björn í 69. sæti – Ólafur Már dró sig úr keppni á 3. degi úrtökumótsins í Frilford

Ólafur Björn Loftsson, NK, spilaði í dag á 76 höggum á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í Frilford í Englandi. Hann er samtals búinn að spila á  10 yfir pari, 226 höggum (77 73 76).  Hann er í 69. sæti þegar þetta er ritað kl. 15:15, en nokkrir eiga eftir að ljúka keppni og því gætu sætistölur hnikast aðeins til.  Aðeins 29 efstu komast upp á næsta stig úrtökumótsins. Ólafur Már Sigurðsson, GR, dró sig úr mótinu í dag, en honum hafði ekki gengið vel; var á samtals 162 höggum (83 79) eftir 2 hringi. Golf 1 óskar Ólafi Birni góðs gengis á morgun! Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 4. 2012 | 15:00

GKJ: Kristín María og Kristófer Karl efnilegust á Uppskeruhátíð unglinga

Uppskeruhátíð unglinga í GKJ fór fram fyrir viku síðan 27. september 2012.  Frábær mæting var á uppskeruhátíðna og hafa aldrei eins margir látið sjá sig. Þar var börnum og unglingum í GKJ veittar margvíslegar viðurkenningar og verðlaun fyrir góða frammistöðu á mótum s.l. sumars. Þau Kristín María Þorsteinsdóttir og Kristófer Karl Karlsson þóttu efnilegust hjá GKJ 2012. Fleiri myndir frá uppskeruhátíðinni má sjá með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 4. 2012 | 14:45

Íslenska karlalandsliðið í 25. sæti eftir 1. dag í Tyrklandi – Axel á besta skorinu 69 höggum!!!

Íslenska karlalandsliðið, skipað þeim Axel Bóassyni, GK, Haraldi Franklín Magnús, GR og Rúnari Arnórssyni, GK spilaði fyrsta hring á heimsmeistaramóti áhugamanna í dag, í Antalya í Tyrklandi. Keppendur eru 215 frá 72 þátttökuþjóðum. Axel Bóasson spilaði best Íslendinganna, kom í hús á 2 undir pari, 69 höggum, en á hringnum fékk Axel fjóra fugla og tvo skolla. Axel deilir 24. sætinu í einstaklingskeppninni. Haraldur Franklín Magnús byrjar keppnina á 4 yfir pari, 75 höggum og deilir 99. sætinu. Rúnar var á 5 yfir pari, 76 höggum og deilir 113. sætinu. Tvö bestu skor hvers liðs telja og er lið Íslands á samtals 144 höggum í liðakeppninni, en í efsta sæti Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 4. 2012 | 10:30

The Clicking of Cuthbert 3. saga: Þrjú ólík í holli

Vegna Ryder bikarsins á sunnudaginn og umfjöllunar um hann, sem rétt í dag er farið að draga aðeins úr frestaðist birting sunnudagsgolfsögunnar hér á Golf 1 „Clicking of Cuthbert“ til dagsins í dag.“ En hér kemur hún þótt síðar sé og jafnframt loforð um að 4. hluti sögunnar birtist n.k. sunnudag: „Golf like measles should be caught young, for if postponed to riper years, the result may be serious.“ „Golf er eins og mislingar, það ætti að fá þá ungur því ef frestast að fá þá þar til á eldri árum, getur lokaniðurstaðan orðið alvarleg.“ Svona segir í upphafi 3. sögu The Clicking of Cutbert þ.e. Klikkun Cuthberts, sem ber Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 4. 2012 | 08:00

Paul Lawrie gagnrýnir bandaríska áhangendur í Ryder bikarnum í Medinah

Golf er heiðursmannsíþrótt. Það er í lagi að vera kappsamur … en allt kapp er best í hófi. Golf 1 greindi frá því í frétt í gær að rannsókn stæði yfir á þeim ókvæðisorðum, sem keppendur liðs Evrópu í Ryder bikarnum og kærestur þeirra hefðu orðið að þola í Medinah í Chicago meðan á Ryder bikars keppninni stóð. Þetta setur ljótan blett á keppnina, sem þó var vandað svo til í alla staði. Nú hefir Skotinn Paul Lawrie tjáð sig um ofangreint, en hann flaug með sjálfan Ryder bikarinn til Gleneagles í gær (sjá má myndir frá komu Lawrie til Gleneagles  með Ryder bikarinn, með því að SMELLA HÉR:). Fertugasta Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 4. 2012 | 07:00

Nicolas Colsaerts fær undanþágu til að spila á PGA

Belgíski kylfingurinn Nicolas Colsaerts er nálægt því að verða fullgildur félagi á PGA Tour með full keppnisréttindi nær en forsvarsmenn mótaraðarinnar héldu í fyrstu. Leið Colsaerts á mótaröðina er ekki hefðbundin – hann þarf ekkert að fara í gegnum einhver leiðindaúrtökumót. Colsaerts fékk undanþágu til þess að spila á Frys.com Open mótinu.  Sem sérstakur tímabundinn meðlimur gæti hann hlotið kortið sitt og þar með full keppnisréttindi ef hann verður í 125. sæti eða ofar á peningalistanum í lok árs. Á þriðjudaginn sagði talsmaður Mótaraðarinnar að Colsaerts hefði unnið sér inn  $494,386, sem er aðeins $100,000 frá 125. sætinu. Í gær leiðrétti PGA mótaröðin fyrri útreikninga, sagði að gleymst hefði að reikna verðlaunafé Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2012 | 18:00

Bandaríska háskólagolfið: Arnór Ingi varð í 10. sæti á Myrtle Beach Intercollegiate

Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR og The Crusaders, þ.e. golflið Belmont Abbey, kepptu á Myrtle Beach Intercollegiate í Suður-Karólínu, dagana 1. -2. október, þ.e. mótinu lauk í gær. Myrtle Beach mótið var stórt og voru 3 Íslendingar staddir á því Ragna Björk Ólafsdóttir, GKG, sem náði þeim glæsilega árangri að verða í 3. sæti auk þess sem lið hennar St. Leo varð í 1. sæti og Íris Katla Guðmundsdóttir, GR, sem var þar með The Royals, golfliði The Univeristy of Queens, Charlotte. Keppt var bæði í karla og kvennaflokki og því var einnig staddur þar  Arnór Ingi, GR, með golfliði Belmont Abbey, The Crusaders. Arnór Ingi lék á samtals 139 höggum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2012 | 17:00

Afmæliskylfingur dagsins: Fred Couples – 3. október 2012

Afmæliskylfingur dagsins Fred Couples. Hann er fyrirliði Bandaríkjanna í forsetabikarnum, sem Bandaríkjamenn reyna nú að einbeita sér að eftir tapið í Rydernum. Fred hefir verið í fréttum nú nýverið vegna þess að hann bauð Jack Nicklaus stöðu aðstoðarfyrirliða, sem Nicklaus afþakkaði. Fred er fæddur 3. október 1959 og því 53 ára í dag.  Couples gerðist atvinnumaður í golfi 1980 og hefir unnið í 55 mótum þ.á.m. 15 á PGA Tour og þ.á.m. 1 risamót fyrir nákvæmlega 20 árum, þ.e. the Masters 1992. Hann hefir löngum verið uppáhald golfaðdáenda um allan heim. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Jack Wagner, 3. október 1959 (53 ára);  Matthew Southgate, 3. Lesa meira