Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2012 | 11:00
Næsta Volvo heimsmeistaramót í holukeppni mun fara fram á „Pebble Beach“ Búlgaríu – myndskeið

Volvo World Match Play Championship mun nú í fyrsta sinn verða haldið í Búlgaríu 2013, nánar tiltekið í norðaustur-hluta landsins, innan um hina fögru og fornu kletta Þrakíu við Svartahaf. Sjá má myndskeið frá golfvellinum, sem hannaður var af Gary Player og nefnist Thracian Cliffs á ensku með því að SMELLA HÉR: Mótið átti sér fast heimili á árunum 1964-2007 á Wentworth vellinum í Englandi en var síðan flutt á Finca Cortesin, í Andaluciu á Spáni, þar sem það var 2008-2012. Nýi mótsstaðurinn nú er Kavarna í Búlagaríu. „Það er frábært að Búlgaría skuli hafa verið valið til að halda svona virt alþjóðlegt mót með ríka arfleifð og íþróttahefð,“ sagði Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2012 | 10:00
Evróputúrinn: evrópsku Ryder bikars stjörnurnar hittust aftur fyrir BMW Masters

José María Olazábal fyrirliði Evrópu í Ryder bikarnum hitti alla leikmenn sína nema 1 aftur þegar leikmenn komu saman fyrir BMW Masters, sem hefst í Lake Malaren golfklúbbnum í Shanghai, Kína nú í vikunni. Þarna voru saman komnir þeir Nicolas Colsaerts, Luke Donald, Peter Hanson, Martin Kaymer, Paul Lawrie, Rory McIlroy, Graeme McDowell, Francesco Molinari, Ian Poulter, Justin Rose og Lee Westwood, sem nú munu keppa gegn hver öðrum til þess að reyna að hreppa 1. vinninginn, en vinningspotturinn er upp á $ 7 milljónir (u.þ.b. 840 milljónir íslenskra króna). Það er aðeins Sergio Garcia sem vantar upp á að allir í liðinu séu saman komnir. Ian Poulter sagði um Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2012 | 09:30
Bandaríska háskólagolfið: Íris Katla í 16. sæti á Flagler Fall Slam – Ragna Björk og St. Leo Lions í 3. sæti í liðakeppninni

Íris Katla Guðmundsdóttir, GR og the Royals, golflið The Queens University of Charlotte og Ragna Björk Ólafsdóttir, klúbbmeistari GKG 2012 og í golfliði St. Leo Lions hafa báðar lokið 1. hring á the Flagler Fall Slam í St. Augustine, í Flórida. Mótið er tveggja daga og stendur 22.-23. október og því verður lokahringurinn spilaður í dag. Spilaði er í Marsh Creek Country Club. (Smellið á undirstrikuðu orðin til þess að komast á heimasíðu klúbbsins). Þátttakendur eru alls 91 frá 18 háskólum. Íris Katla lék fyrri hringinn á 6 yfir pari, 78 höggum og er í 16. sæti í einstaklingskeppninni. Hún var á 2. besta skori í liði sínu The Royals og taldi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2012 | 09:00
Þrír íslenskir kylfingar taka þátt í NGA Pro Tour – Bridgestone Winter Series
Þrír íslenskir kylfingar: Alexander Aron Gylfason, GR; Nökkvi Gunnarsson, NK og Þórður Rafn Gissurarson, GR , hefja í dag leik á bandarísku NGA-mótaröðinni. Hér er um sterka atvinnukylfingaröð að ræða, sem margir af bestu kylfingum heims s.s. Bubba Watson og Keegan Bradley hafa keppt í. Þátttakendur eru 81 og fer fyrsta mót mótaraðarinnar fram í Metro West Golf Club í Flórída, dagana 23.-25. október. Alls eru mótin 12, það síðasta fer fram í janúar 2013. Golf 1 óskar þeim Alexander Aron, Nökkva og Þórði Rafni góðs gengis!!! Til þess að sjá þátttakendalistann í mótinu SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2012 | 07:00
10 skrýtnustu sveiflurnar í golfi – myndskeið

„Tveggja hanska“ Tommy Gainey minnti okkur á það með sigri sínum s.l. sunnudag á the McGladrey Classic hvernig gott hjartalag, dirfska og ákveðni geta yfirunnið alla tækni skv. golfkennslubókum. Gainey er dæmi þess að ekki eru allir steyptir í eitt mót þegar kemur að sveiflum í golfi. Hér áður fyrr áður en golfkennslan varð svona vísindaleg eins og hún er orðin í dag; áður en myndbandsupptökur fóru að móta stöðluð grundvallaratriði golfsveiflu, þá voru golfsveiflur litríkari og með persónulegri einkennum en þær eru í dag. En það þýðir ekki að uppreisnarmennirnir með heimatilbúnu sveiflurnar séu ekki þarna úti líka. Þeir eru bara ekki svo margir. Áður en vikið verður að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2012 | 22:00
„You´ve been Trumped“ sýnd á BBC 2 í gær og vekur andstöðu gegn Donald Trump

Heimildarmyndin um bolabrögð Donald Trump við byggingu golfvallar síns í Aberdeenshire í Skotlandi var sýnd í gær á BBC 2. Hún ber heitið „You´ve been Trumped“ (Golf 1 fjallaði um heimildarmyndina fyrir ári síðan sjá með því að SMELLA HÉR:) Talið er að 1,1 milljón manna hafi séð heimildarmyndina, sem er 40% yfir venjulegu áhorfi og hefir hún skapað mikla reiði í garð Trump og umfjöllun á samfélagsmiðlunum. Umfjöllun í breskum dagblöðum um bolabrögð Trump, sem lýst er í myndinni er særandi og gróf í garð billjónamæringsins í The Guardian, meðan Neil Midgeley hjá Telegraph veltir sér mikið upp úr reiði áhorfenda, sem sáu myndina. Myndin er gerð án samráðs Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2012 | 21:30
Tiger hlakkar til að mæta Rory í golfeinvígum næsta áratuginn

Tiger Woods sagði í dag að hann hlakkaði til keppni við Rory McIlroy næsta áratuginn, en þessir tveir efstu menn á heimslistanum munu m.a. mætast í Kína í næstu viku. Margir líta á hinn 23 ára McIlroy, sem unnið hefir tvo risamótstitla sem arftaka hins 36 ára Tiger, sem á 14 risamótssigra í beltinu. Síðasti risamótssigur Tiger var á Opna bandaríska 2008 og kom stuttu áður en ferill hans lenti í niðursveiflu í miðjum skandal um einkalíf hans, þar sem hann féll m.a. af topp-50 á heimslistanum. En 3 sigrar á PGA Tour hafa komið honum í 2. sæti heimslistans á þessu ári. Nú segist Tiger tilbúinn að skora efsta mann heimslistans Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2012 | 18:30
18 atriði sem eru jákvæð við golf (2. hluti af 6)

Hér verður fram haldið með atriðin 18 sem greinarhöfundurinn David Owen telur að séu jákvæð við golfið. Listi hans hefir birtst á Golf Digest: 4. Félagsskapurinn. Það er jafngaman að spila við þá sem maður þekkir og þá sem maður þekkir ekki neitt. Það er svo mikill tími sem fer í einn golfleik að mikill tími gefst til að tala saman… nokkuð sem ekki er t.a.m. hægt í handbolta, tennisleik eða öðrum íþróttum meðan á leik stendur. David segist oft hafa spilað við ókunnuga og þá kynnst jafnfjölbreytilegum hóp og franska fasteignasalanum, sem átti sumarbústað í Marokkó (vegna þess að þar eru að rísa æðislegir golfvellir); gæjann frá Kólombíu sem Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2012 | 15:00
Afmæliskylfingur dagsins: Kristinn Reyr Sigurðsson – 22. október 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Kristinn Reyr Sigurðsson. Kristinn Reyr er fæddur 22. október 1996 og er því 16 ára í dag. Kristinn Reyr er í Golfklúbbi Reykjavíkur. Hann spilaði m.a. á Unglingamótaröð Arion banka í sumar með góðum árangri. Þannig varð Kristinn Reyr í 4. sæti í flokki 15-16 ára drengja á 1. mótinu uppi á Skaga; í 14. sæti á 2. mótinu á Þverárvelli; í 2. sæti á 3. mótinu í Korpunni; og í 8. sæti í Íslandsmótinu í höggleik, svo dæmi séu tekin) Eins tók Kristinn Reyr þátt í nokkrum mótum Eimskipsmótaraðarinnar þ.e. 1. mótinu í ár í Leirunni þar sem hann hafnaði í 68. sæti og 2. mótinu, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2012 | 14:00
PGA: Harrington spilar í stað Els og Bradley í stað McIlroy á Grand Slam

Næsta mót á PGA mótaröðinni er Grand Slam mótið á Bermúda þar sem etja kappi 4 sigurvegarar úr risamótum ársins: Bubba Watson, sigurvegari the Masters og Webb Simpson, sigurvegari Opna bandaríska mæta. Sigurvegarinn í Opna breska 2012, Ernie Els, hefir tilkynnt að hann verði fjarri góðu gamni og í stað hans fær að spila Írinn Pádraig Harrington, tvöfaldur sigurvegari á Opna breska 2007 og 2008. Eins leysir Keegan Bradley, Rory McIlroy , sigurvegara PGA Championship 2012 af hólmi, en Bradley sigraði á PGA Championship 2011. Rory kemst ekki vegna þess að hann er að verja BMW titil sinn í Shanghai í vikunni. Bara fyrir þátttökuna eru Pádraig Harrington og Keegan Bradley tryggð £125,000 Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

